Stjórnarfundur 21/4 2010-05-27
Fundur með frjálíþróttaráði 8/4 2010
90. ársþing UMSS í Árgarði 25. mars 2010
Fundargerð 89. Ársþings UMSS haldið 6.3 2009 í Höfðaborg í boði Ungmennafélagsins Neista
Mætt:Hrefna Gerður, Sigurjón og Hjalti
Sævar Péturs mætti til fundar. Farið yfir úthlutun Sveitafélagsins á 10 milljónum sem Sveitafélagið lætur til málaflokkinn. Sveitafélagið vill ekki sjá um úthlutunina. Ákveðið að UMSS sjái um verkið en kalli ekki upplýsingar frá félögum heldur noti úthlutunina frá síðasta ári. Fundur ákveðinn til að klára málin 17. mai.
Borist hafði bréf frá ÍSÍ með athugasemdum um lög Siglingarklúbbsins. Athugasemd gerð við tvö lög. Málið sent til Siglingaklúbbsins.
Elmar framkvæmdarstjóri kemur norður um 20. mai. Ákveðið að bjóða honum laun 230. þúsund á mánuði
Hugmynd um að UMSS taki að MÍ 15-22 ára, dagana 17-18. júlí. Frjálsíþróttaráðið vinnur úr því máli.
Unglingalandsmótið – búið að finna þrjá í ráðið;Tullan Lunder, Hrannar Ingvarsson og Sigurjón Leifsson
Afmælisnefnd – Ómar Bragi er tilbúinn að starfa í nefndinni. Haraldur Þór að hugsa.
Samráðsfundur UMFÍ, Hrefna fer á fundinn.
Hjalti Þórðarson
Hrefna Gerður Björnsdóttir
Sigurjón Leifsson
Mætt: Hrefna Gerður, Sigurgeir og Hjalti
Úthlutun til íþróttafélaga – Sveitafélagið búið að úthluta helming af styrk ársins eða 5 milljónir af 10 milljónum. Ræða þarf málið betur við Sveitafélagið. Stefnt að því að funda með fulltrúm Sveitafélagsins
Frjálsíþróttafundur með ráði var haldinn fyrir nokkrum dögum. Starfið snýst um nokkur mót og frjálsíþróttaskóla. Umræður um starf framkvæmdarstjóra. Elmar hefur gefið upp að hann verði við fram í miðjan ágúst.
Unglingalandsmótsnefnd – skipa þarf í hana sem fyrst. Hugmynd um Tullan, Sigurjón og helst einhverja frá körfunni og fótboltanum
Starfsíþróttaþing verður á laugardaginn 24. apríl , spurning um hvort einhver komist, sennilega kemst enginn.
Hjalti Þórðarson
Hrefna Gerður Björnsdóttir
Sigurgeir Þorsteinsson
Mætt; Gunnar Sigurðsson, Friðrik Steinsson, Sigurjón Leifsson, Þórey Gunnarsdóttir og Hjalti Þórðarson.
Gunnar fór yfir yfir starf og skipulag hjá ráðum, mót og verkefni ársins. Gunnar hefur gert þetta áður og stjórnar þessu verki áfram. Fimmtudagsmótin verða aðeins tvo daga í sumar 15 júl og 19 ágúst. Ekki ástæða til að hafa fleiri mót. Bikar verður á Sauðárkróki 13 og 14 ágúst og er stærsta mótið að þessu sinni. Grunnskólamótið verður 7 sept,fyrir 5. og 8. bekk. G.S. telur að fjölga þurfi mótum heimafyrir. Mjög slæmt að Norðurlandsmótið detti niður í ágúst. Þristurinn er á Blöndósi 10 ágúst. Umræður um mótið í fyrra og hve sigur UMSS hefi verið neyðarlega stór.
Fjármál: Friðrik fór aðeins yfir fjármál og hvernig staðan væri. Litlar tekjur af mótum á þessu ári. Aðalatriði er að lipurt sé á milli aðalstjórnar og ráðs.
Frjálsíþróttaskólinn – Samstarf UMFÍ og UMSS, mikilvægt að halda þessu gangandi. Tókst vel á síðasta ári.
Þungamiðjan í starfi ársins verða mótahald Bikarkeppni FRÍ og frjálsíþróttaskólinn. Mikilvægt að nýta sumarstarfsmann vel til þessara starfa.
Unglingalandsmót í Borganesi. Talið mikilvægt að stefna þangað með eins mikinn fjölda og möglegt er.
Starfslið í héraði: Gunnar telur að starfslið sé að eflast , ekki síst hjá Smára. Mikilvægt að ná starfinu á flug í Hofsós og víðar. Frjálsar hafa ekki auglýst sig neitt.
Námskeið á Akureyri fyrir dómara í frjálsum. Gæti verið haldið á Hrafnagili klukkan 10 til 17:30
Þjálfunarmenntun og stig í FRÍ kerfum til umræðu. Talið mikilvægt að UMSS styðji við bakið á þeim sem vilja mennta sig.
Gunnar Sigurðsson,
Friðrik Steinsson,
Sigurjón Leifsson
Þórey Gunnarsdóttir
Hjalti Þórðarson.
Mætt:Nýr formaður Hrefna Gerður Björnsdóttir, Sigurjón Leifsson, Hjalti Þórðarson Sigurgeir Þorsteinsson og Sigmundur Jóhannesson
Embætti innan stjórnar
Hjalti Þórðarson – Gjaldkeri
Sigurjón Leifsson – Varaformaður
Sigmundur Jóhannesson - Ritari
Sigurgeir Þorsteinsson – Meðstjórnandi
Elmar Eysteinsson hafi samband vegna framkvæmdarstjórastarfs næsta sumar, en hann vann fyrir sambandið í fyrra, skoða málið með Vinnumálastofnun, uppá þátttöku í greiðslum á launum. Stefnt að því að ráða hann í þrjá mánuði í sumar
Afmælisár – ákveðið að skipa afmælisnefnd til að vinna að afmælihófi í haust og útgáfu einhvers rits. Stungið uppá Haraldi Jóhannessyni, Ómari Braga og Sigríði Sigurðardóttur. Hjalti ætlar að ræða við þau.
Styrkir frá Sveitafélagi - Verið að velta fyrir sér tölum frá ársreikningum 2008 og 2009 en árið 2009 var upphæðin 1.000.000 lægri. Ákveðið að vita hvort Helga fráfarandi gjaldkeri viti eitthvað um málið
Gjafabréf barst frá ÍSÍ uppá 100.000 til tækjakaupa í tilefni 100 ára afmælis UMSS. Bréf sem hafa borist: Kjörbréf frá Júdósambandi Íslands. 30 apríl ársþing Badmintonsambands Íslands. Námsboð frá “kids athletic” þar sem senda á 5 fulltrúa. Ákveðið að styrkja þátttakendur um 20.000. Starfsþing UMFÍ 24 apríl á Akureyri. Eigum rétt fulltrúm.
Næsti fundur, fyrsta þriðjudag í næsta mánuði. Næsta 4 mai klukkan 20.
Hrefna Gerður Björnsdóttir
Sigurjón Leifsson
Sigurgeir Þorsteinsson
Sigmundur Jóhannesson
Hjalti Þórðarson
1. Formaður setur fund
Formaður UMSS Sigurjón Þórðarson setti fund og bauð alla fundarmenn velkomna og þá sérstaklega gesti sem væri komnir langt að. Flutti svo skýrslu formanns og stjórnar fyrir árið 2009. Fór þar nokkrum orðum yfir starf ársins sem var mikið og fjölbreytt. Fyrst minntist hann á að fjárhagur UMSS væri góður og gæfi því tækifæri til aukinna og jafnvel nýrra verkefna. Eitt stærsta verkið á síðasta ári var Unglingalandsmótið sem Skagfirðingar tóku að sér með skömmum fyrirvara eftir að Grundfirðingar hættu við. Að mati formannsins tókst mótið frábærlega og var Skagfirðingum til mikils sóma. Eins var Landsmót á Akureyri þangað sem UMSS fór með öflugt lið. Mótið var formanni verulega eftirminnilegt þar sem hann sigraði í sjósundi. Í lokin minnti formaður á 100 ára afmælisár UMSS sem stæði nú yfir á árinu 2010.
2. Kosinn þingforseti sem tekur við stjórn þingsins
Formaður gerði tillögu að Jakobi Frímanni Þorsteinssyni sem þingforseta og var það samþykkt.
3. Kosinn varaþingforseti, þingritari og varaþingritari
Nýkjörinn þingforseti tók við stjórn fundar og kom með tillögu að Haraldi Þór Jóhannssyni sem varaþingforseta, Hjalta Þórðarsyni sem þingritara og Hörpu Kristinsdóttur sem varaþingritara. Allir samþykkir þessum starfsmönnum þingsins.
4. Kjörin þriggja manna kjörnefnd og fimm manna kjörbréfanefnd
Tillögur um kjörbréfanefnd: Sigmundur Jóhannesson, Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir og Sigurjón Leifsson.
Tillögur um kjörnefnd: Ómar Bragi Stefánsson, Magnús belgason, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Þröstur Ásgrímsson og Þorgils Pálsson.
Tillögur samþykktar.
5. Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar
Skýrsla stjórnar var ekki flutt en Sigurjón formaður fór yfir reikninga í fjarveru gjaldkera. Niðurstaða ársins var alveg ásættanleg á stóru og útgjaldasömu ári. Afgangur ársins var kr 386.132, rekstrartekjur kr 5.129.874 og rekstrargjöld kr 4.884.598. Nokkrir aurar eru til í sjóðum sambandsins.
6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
Spurning kom frá Skúla Jónssyni af hverju Tindastóll fengi svona lítið úr Lottósjóði. Lítið var um svör.
7. Kjörbréfanefnd fer yfir mætingu þingfulltrúa
Sigmundur Jóhannesson gerði grein fyrir kjörbréfum og mætingu fulltrúa
Umf Tindastóll 9 mættir af 11
Umf Neisti 3 mættir af 7
Hmf Léttfeti 4 mættir af 6
Bílaklúbbur Skagafjarðar 2 mættir af 3
Véhjólaklúbbur Skagafj 1 mættur af 3
Hmf Svaði 5 mættir af 5
Hmf Stígandi 3 mættir af 6
UÍ Smári 5 mættir af 7
Golfklúbbur Sauðárkróks 2 mættir af 5
Íþf Gróska 0 mættur af 3
Umf Hjalti 0 mættur af 5
Alls 34 mættir af 61
8. Atkvæðagreiðsla um skýrslu og reikninga
Skýrsla og reikningar samþykktir af fundarmönnum
9. Aðildarumsókn Siglingaklúbbsins Drangeyjar að UMSS tekin fyrir
Siglingaklúbburinn Drangey hefur óskað eftir aðild að UMSS og samþykktu fundarmenn það með fyrirvara um samþykki UMFÍ og ÍSÍ. Stjórninni falið að klára málið.
10. Ávörp gesta, fyrri hluti
Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ steig í pontu og flutti smá ræðu: Hvatti forkólfa íþróttalífsins í Skagafirði til áframhaldandi góðra verka og þakkaði fyrir allt það góða sem gert hefur verið. Líney minnti á FELIX skráningarkerfið og hvatt alla þá sem ekki hefði notað kerfið að drífa í því og skrá félagsmenn og iðkendur inn í kerfið. FELIX kerfið sé það besta sem héldi utan um iðkendur íþróttafélaganna á Íslandi. Í ár er afmælisár, 100 ára afmæli UMSS en Líney gleymdi viðurkenningarplattanum sem hún ætlaði að koma með. Kom þó með blómvönd og bað formann að taka við honum. Sigurjón tók við blómvendinum og þakkaði Líney fyrir hlý orð í garð UMSS. Taldi sig hafa komið alltof sjaldan í höfuðstöðvar ÍSÍ.
11. Mál lögð fyrir þingið
Sigurjón fór yfir mál sem lögð fyrir þingið af stjórn UMSS.
12. Tillögur lagðar fram af þinfulltrúum
Engar tillögur lagðar fram.
13. Nefndarkosning
Nefndarskipan, frjálst val um setu í nefndum en formenn nefnda skipaðir:
Allsherjarnefnd: Gunnar Gestsson
Íþróttanefnd: Gunnar Sigurðsson
Fjárhagsnefnd: Sigurjón Þórðarson
10. Ávörp gesta, seinni hluti
Helga Guðjónsdóttir formaður UMFÍ kvaddi sér hljóðs og hélt stutta tölu. Byrjaði á því að hæla UMSS fyrir störfin á árinu 2009. Sagði svo aðeins frá stöðu húsnæðismála UMFÍ og frá nýja húsnæðinu í Sigtúni 42. Því miður væri þar ekkert gistirými. Næsta Unglingalandsmót verður í Borgarnesi vegna þess að Grundarfjörður hætti við. Helga hvatti til mikillar þátttöku frá UMSS. Minnti á ráðstefnu 7.-8. apríl um ungt fólk og lýðræði sem verður haldin í Dalabyggð. Helga bað fundarmenn að taka sérstaklega eftir því að Fræðslu-, Menningar- og Verkefnasjóður væru sjóðir í umsjá UMFÍ og nauðsynlegt fyrir aðildarfélögin að kanna hvað þar sé í boði. Margir vilja komast í Lottósjóðinn – besta leiðin, að mati Helgu, til að stækka sjóðinn sé að kaupa miða. Helga taldi að breytingar í þjóðfélaginu sl tvö ár ættu ekki að hafa áhrifa á ungmennahreyfinguna. Þakkaði svo UMSS fyrir frábær störf á sl ári og taldi sig ekki koma í heimsókn í Skagafjörð – henni finnist hún hálfpartinn eiga þar heima. Ræddi svo aðeins um árið 2010 sem sé stórt og mikið ár, 100 ára afmælisár UMSS. Þakkaði svo fráfarandi stjórn fyrir störfin á sl ári og óskaði Skagfirðingum til hamingju með árangurinn í körfuboltanum. Ísland allt.
Helga hélt áfram og sæmdi tvo menn starfsmerkjum UMFÍ, en það voru:
Snorri Styrkásson, búin að starfa til fjölda ára í sundhreyfingunni á Sauðárkróki og standa sig frammúrskarandi vel. Var greinastjóri í sundi á Unglingalandsmótinu 2009.
Stefán Öxndal Reynisson, einn aðalforkólfa hestamannalífsins í Skagafirði í nokkra áratugi. Var greinarstjóri hestaíþrótta á Unglingalandsmótinu 2009.
Að lokum tók Sigurjón Þórðarson við afmælisplatta vegna 100 ára afmælisins.
14. Nefndarstörf - kaffihlé
Nefndir að störfum og stórveisla á borðum
15. Þingnefndir skila áliti og umræður um tillögur nefnda
Gunnar Gestsson formaður allsherjarnefndar byrjaði og fór yfir tillögur sem hefðu komið til nefndarinnar og frá henni til fundsins. (Samþykktar tillögur undirstrikaðar)
Tillaga nr 5. - Afmælisár UMSS
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að minnast 100 ára afmælis UMSS á einhvern hátt á árinu, t.d. með samkomu og útgáfu lítils afmælisrits.
Breyting frá nefnd og hljóðar tillaga svona:
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að fela stjórn UMSS að minnast 100 ára afmælis UMSS á árinu með hátíðarsamkomu á afmælisdegi sambandsins þann 17. apríl 2010 og útgáfu afmælisrits.
Umræður um tillöguna
Ómar Bragi Stefánsson telur að 100 ára afmæli UMSS sé merkur viðburður. Telur ekki að eitthvað eigi að vera á afmælisdaginn sem er eftir mjög skamman tíma. Leggur til að fyrri tillagan verði notuð. Gunnar Sigurðsson tók undir tillögu Ómars svo og Haraldur Þór Jóhannsson.
Tillagan borin upp og samþykkt svona:
Afmælisár UMSS
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að minnast 100 ára afmælis UMSS á einhvern hátt á árinu, t.d. með samkomu og útgáfu afmælisrits.
Tillaga nr 7 - Þakkir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði þakkar sveitarstjórnarmönnum fyrir góðan stuðning við íþróttahreyfinguna í gegnum tíðina. Þingið þakkar einnig þann mikla stuðning sem UMSS hefur fengið vegna Unglingalandsmóts á Sauðárkrókur síðastliðið sumar.
Breyting frá nefnd og hljóðar tillaga svona:
Þakkir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði þakkar sveitarstjórn Skagafjarðar fyrir veittan stuðning við íþróttahreyfinguna í gegnum tíðina. Þingið þakkar einnig þann mikla stuðning sem UMSS fékk vegna Unglingalandsmóts á Sauðárkróki síðastliðið sumar.
Tillagan samþykkt
Tillaga nr 8. - Þakkir til UMFÍ
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði þakkar UMFÍ fyrir ómetanlega stuðning og samstarf á umliðnum árum. Samstarf þetta hefur á allan hátt verið frábært eins og þrjú landsmót í héraðinu frá árinu 2004 staðfesta.
Breyting frá nefnd og hljóðar tillaga svona:
Þakkir til UMFÍ
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði þakkar UMFÍ fyrir ómetanlega stuðning og samstarf á liðnum árum. Samstarf þetta hefur á allan hátt verið frábært eins og þrjú landsmót í héraðinu frá árinu 2004 staðfesta.
Tillagan samþykkt
Tillaga nr 12. - Næstu ársþing UMSS
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að 91. ársþing UMSS verði í umsjón Golfklúbbs Sauðárkróks og 92. ársþing árið 2012 verði í umsjón Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar.
Breyting frá nefnd og hljóðar tillaga svona:
Næstu ársþing UMSS
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að 91. ársþing UMSS árið 2011 verði í umsjón Golfklúbbs Sauðárkróks og 92. ársþing UMSS árið 2012 verði í umsjón Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar.
Tillagan samþykkt
Gunnar Sigurðsson gerði grein fyrir niðurstöðum Íþróttanefndar
Tillaga nr 6. Unglingalandsmót 2009 á Sauðárkróki
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði þakkar öllum þeim sem lögðu á sig gríðarlega vinnu við að gera Unglingalandsmótið á Sauðárkróki að glæsilegu móti.
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
Tillaga nr 10. Ráð á vegum UMSS
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að eftirfarandi ráð verði starfandi á vegum UMSS næsta starfsár:
Frjálsíþróttaráð
Hestaíþróttaráð
Sundráð
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt. Gunnar hvetur þó stjórn að taka á í boltamálum.
Tillaga nr 13. - Unglingalandsmót 2010
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði hvetur aðildarfélög til að vinna að því að þátttaka keppenda á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi um Verslunarmannahelgina verði sem mest. Unglingalandsmótin eru skrautfjaðrir UMFÍ og Héraðssambandanna og því mikilvægt að gefa sem flestum tækifæri til að keppa og vera með á þeim mótum.
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
Tillaga nr 14 – Mótaskrá UMSS árið 2010
Alls 9 mót á vegum UMSS á árinu
maí Héraðsmót í Hestaíþróttum Hólar
17. júní Unglingamót í sundi Sauðárkrókur
okt Héraðsmót í sundi Sauðárkrókur
21. jan Grunnskólamót UMSS yngri Varmahlíð
28. jan Grunnskólamót UMSS eldri Sauðárkrókur
11. mars 1 Góumót UMSS Sauðárkrókur
18. mars 2 Góumót UMSS Sauðárkrókur
18. júní FimmtarþrautarmótUMSS Sauðárkrókur
13-14. ágúst Bikarkeppni FRÍ 1 deild Sauðárkrókur
9. sept Grunnskólamót UMSS (5 og 8 bekkur) Sauðárkrókur
22. des Jólamót UMSS Sauðárkrókur
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
Sigurjón Þórðarson gerði grein fyrir tillögum fjárhagsnefndar
Tillaga nr 1. - Árgjöld félaga
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði leggur til að árgjöld félaga verði óbreytt frá síðasta ári eða 350 krónur á hvern félagsmann 16 ára og eldri.
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
Tillaga nr 3. - Skráningargjöld
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að þau ráð sem starfa á vegum UMSS ákveði sjálf þau skráningargjöld sem greidd verða fyrir þátttöku í þeirra mótum sem haldin eru á vegum UMSS og samþykkt eru af stjórn UMSS.
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
Tillaga nr 2. - Lottóreglugerð
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir eftirfarandi lottóreglugerð:
5% Afreksmannasjóður UMSS
25% Til reksturs UMSS
25% Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda félagsmanna samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ
45% Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda iðkenda 25 ára og yngri samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ
Rök fyrir breytingu á Lottóreglugerð: Landsmót eru nú haldin á hverju ári svo ekki er talin þörf á því að safna í sérstakan landsmótssjóð. Stór hluti af útgjöldum UMSS fara hvort sem er í útgjöld vegna landsmóta. Þau 5% sem nú fara landsmótssjóðinn renna beint til aðildarfélaganna samkvæmt tillögunni.
Breyting frá nefnd og hljóðar tillaga um óbreytta lottóreglugerð
5% Afreksmannasjóður UMSS
5% Landsmótssjóður UMSS
25% Til reksturs UMSS
20% Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda félagsmanna samkvæmt félagatali í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ.
45% Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda iðkenda samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ.
Umræður um tillöguna:
Hjalti Þórðarson lagði fram eins tillögu og tillagan frá stjórn hljóðaði.
Haraldur Þór Jóhannson vildi endilega halda lottósjóðnum inni og lagði því til að engin hækkun verði til aðildarfélaganna.
Gunnar Gestsson taldi að styrkja ætti yngri flokka og því etv betra að aldurstakmörkin enn neðar en 25 ár.
Jón Geirmundsson taldi að aldurstakmörk megi alls ekki vera – mismunandi aldur iðkenda inna félaga.
Sigurjón Þórðarson lagði til að skipuð verði nefnd til að fjalla um málið milli þinga.
Haraldur Þór Jóhannsson ræddi um mikilvægi að halda lottósjóðnum inni
Þingforseti lagði eftirfarandi tillögu fyrir fundinn.
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir óbreytta lottóreglugerð frá fyrra ári. Ársþingið samþykkir að skipa milliþingnefnd sem í sitja Gunnar Gestsson, Haraldur Þór Jóhannsson og Hjalti Þórðarson sem yfirfara reglugerðina og koma með rökstudda tillögu til breytingar fyrir næsta ársþing.
Tillagan samþykkt
Tillaga nr 11. - Starfssvið ráða
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir að ráðunum verði úthlutað fjármagni til þess að geta staðið að mótahaldi á vegum UMSS. Stjórn UMSS verði falið að setja upp sérstaka reikninga fyrir hvert ár og ákveða upphæð sem þeim er ætlað að vinna með. Með þessu móti er verið að hvetja til aukins sjálfstæðis ráðanna.
Tillagan óbreytt úr nefnd og samþykkt
16. Fjárhagsáætlun samþykkt
Tillaga nr 4. - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2010
90. ársþing UMSS haldið 25. mars 2010 í Árgarði samþykkir eftirfarandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.
Rekstrartekjur
Árgjöld aðildarfélaga 700.000
Lottó og útbreiðslustyrkur 1.080.000
Styrkir 1.700.000
Tekjur af íþróttastarfsemi 1.000.000
Aðrar tekjur 100.000
Afreksmannasjóður 180.000
4.760.000
Rekstrargjöld
Yfirstjórn 1.400.000
Kostnaður vegna íþróttastarfs 1.400.000
Íþróttastyrkir 300.000
Afmælisár 700.000
Annar kostnaður 300.000
Afreksmannasjóður 300.000
4.400.000
Niðurstaða ársins 360.000
Tillagan óbreytt (eingöngu hækkun á tekjum vegna þess að lottóreglugerð er áfram óbreytt) og samþykkt. úr nefnd
17. Kosningar
Ómar Bragi Stefánsson formaður kjörnefndar gerði grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar.
Formaður: Hrefna Gerður Björnsdóttir. Samþykkt
Tveir í stjórn til tveggja ára; Hjalti Þórðarson og Sigurjón Leifsson. Samþykkt
Þrír í varastjórn til eins árs: Guðmundur Björn Eyþórsson, Sigríður Magnúsdóttir og Valgerður Inga Kjartansdóttir. Samþykkt
Þrír í Afreksmannasjóð til eins árs: Haraldur Þór Jóhannsson, Birgir Rafnsson og Hrefna Gerður Björnsdóttir. Samþykkt
Tveir skoðunarmenn reikninga til eins árs: Frímann Guðbrandsson og Jóhann Sigmarsson. Samþykkt
Fjórir í Frjálsíþróttaráð til eins árs: Friðrik Steinsson, Guðríður Magnúsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Þórey Gunnarsdóttir. Samþykkt
Sex í Hestaíþróttaráð til eins árs: Bergur Gunnarsson, Bjarni Jónasson, Elisabeth Jansen, Friðgeir Jóhannsson, Hinrik Már Jónsson og Magnús Bragi Magnússon. Samþykkt
Þrír í Sundráð til eins árs: Hallfríður Guðleifsdóttir, Hrefna B. Guðmundsdóttir og Bryndís Aðalsteinsdóttir. Samþykkt
18. Önnur mál
Viðar Sigurjónsson mætti í pontu og byrjaði á að óska nýrri stjórn til hamingju með kjörið. Ræddi svo aðeins um fyrirmyndafélög ÍSÍ sem væru alls um 60. Hvetur félögin til að sækja um í þetta kerfi. Telur líka að Tindastóll sé á mörkum þess að detta inn í kerfið. Viðar sagði að fjarnám ÍSÍ sé gríðarlega vinsælt, 1. stig hjá ÍSÍ og svo eftir það hjá sérsamböndunum. Hvetur alla þá sem vilja auka við sína menntun að sækja um innan þessa kerfis. Nám á 2. stigi er að byrja, 4 tíma námskeið í hvert sinn, eitt atriði tekið fyrir og er menntað fólk hvert í sínu fagi sem sér um það. Viðar sagði frá Menntaráðstefnu sem væri á næstunni í Reykjavík. Viðar hvetur alla þá sem þurfa að sækja um í sjóði ÍSÍ t.a.m.vegna námskeiða erlendis þar sem veittir væru 50-100 þús kr styrkir. Kastaði svo fram nokkrum vísum.
Um mistök þingforseta:
Forsetanum leyfðist feill,
við fundinn náði sáttum.
Fall er reyndar fararheill,
því Frímann náði áttum.
Um sundafrek fyrrum formanns á Landsmóti:
Sjór á enni sindraði,
sá þó hvergi hrollinn,
því kom hann sá og sigraði
og synti yfir pollinn.
Ársþingin stundum æði skrítin:
Skrítin þessi skollans þing,
skauta menn á ísnum hálum.
Halli um borðið allt í kring
ávalt sat í öllum málum.
Að mati Viðars þá hafði þingforseti misskilið val stjórnar/þingheims á honum í embættið:
Á þingforseta þótti sýnt
að þekkingarskortur nagi.
Einkum þótti´ honum afar brýnt
að útlitið væri í lagi.
Ómar Bragi Stefánsson sagði nokkur orð og þakkaði fyrst fyrir frábærar undirtektir og þátttöku Skagfirðinga í Unglingalandsmótinu sem hefði tekist gríðarlega vel. Ræddi líka um hve íþróttaaðstaðan væri góð á Sauðárkrókur og einhver sú albesta á landinu til mótahalds eins og Unglingalandsmóts. Þakkaði svo verkefnastjóra Unglingalandsmótsins fyrir hans störf og minnti á að skrifstofan væri alltaf opin. Ómar sagði svo aðeins frá sínum störfum og að hann væri landsfulltrúi með aðaláherslu á Unglingalandsmótin. Hann væri núna búin að taka við erlendum samskiptum UMFÍ og taldi að ungmennafélagar gætu gert meira í því að fara erlendis í allskyns ungmennaskipti sem væru í boði. Ræddi svo aðeins meira um Unglingalandsmótin sem væru að stækka og endaði sjálfsagt með því að byrja þyrfti keppni á fimmtudegi. Taldi að mótið Borgarnesi verði gríðarlega stórt m.a. vegna nálægðar við höfuðborgina. Ný keppnisgrein verður í Borgarnesi – dans.
Hrefna Gerður Björnsdóttir þakkaði fyrir stuðninginn í formannsembættið.
Haraldur Þór Jóhannsson vildi að þingfulltrúar þökkuðu fráfarandi formanni fyrir góð störf í þágu hreyfingarinnar. Minnti svo á afmælisárið hjá UMSS og skaut að lokum nokkrum léttum glósum að Viðari Sigurjónssyni.
Jakob þingforseti þakkaði fundarmönnum fyrir góðan fund og UÍ Smára fyrir frábærar veitingar.
19. Fundarslit
Fundarritari:
Hjalti Þórðarson
Mætt: Sigurjón Helga, Sigurgeir auk Helga.
Undirbúningur við ársþing í Árgarði
Rætt um drög að skýrslu stjórnar
Hjalti Þórðarson ráðin í hlutastarf á verktakalaunum frá og með feb og er greitt 60.000- krónur á mánuði.
Samþykkt að Hjalti kaupi sjónvarpsflakkara fyrir UMSS
Borist hefur umsókn frá Elmari Eysteinssyni, ákveðið að láta nýja stjórn taka ákvörðun um ráðningu
Samþykkt að beina þeirri ósk til Sveitafélags Skagafjarðar að greiða strax út helming af fyrihugaðri styrktarfjárhæð til aðildarfélaga UMSS og síðan verði afgangurinn greiddur þegar búið er að fara yfir starfskýrslur.
Sigurjón Þórðarson.
Helga Eyjólfsdóttir
Sigmundur Jóhannesson
Mætt: Sigurjón,Helga,Sigmundur og Jakob
Sigurjón og Jakob ætla að tala við Hjalta um að starfa fyrir sambandið á næstunni
Sigurjón hittir forsvarsmenn Smára eftir helgi og ræðir um ársþingið, sem áætlað er að haldið verði 13 mars.
Sigmundur Jóhannesson
Jakob Frímann Þorsteinsson
Sigurjón Þórðarson.
Helga Eyjólfsdóttir
Mætt: Sigurjón, Jakob og Sigmundur. Friðrik Steinsson sem gestur.
Rætt um fjárframlög til frjálsíþróttadeildar UMSS og hvernig best væri að haga því. Sigurjón vildi fast fjárframlag ákveðið á ársþingi UMSS. Ákveðið að greiða þennan fasta kostnað frjálsíþróttaráðs, sem eru skráningarfjöld á mót utan héraðs, verðalaunagripir á héraðsmót og grunnskólamót. Ákveðið að vinna að ákveðnu verkskipulagi til að útdeila fjármagni til ráðsins.
Dagsetning á ársþing áætlað um 6 mars. Heyra í formanni Smára
Athugað að fá mann í hlutastarf við sambandið á næstunni, talað við Hjalta Þórðarson
Fundur 4 feb klukkan 16;30
Sigmundur Jóhannesson
Jakob Frímann Þorsteinsson
Sigurjón Þórðarson.
Mætt: Sigurjón, Sigmundur, Jakob og Sigurgeir. Auk þess frá Unglingalandsmótsnefnd Ómar Bragi, Halldór Halldórsson og Gunnar Gestson
Ómar Bragi kynnti uppgjör Landsmótsins, búið er að innheimta nánast öll gjöld. Skipar skoðanir eru um hvort skoða eigi útborganir til félagana vegan vinnuframlags um hálf milljón í staðin hjá UMSS. Sigurjón formaður var sérstaklega ósáttur vegana 500.000 kr sem voru dregnar af UMSS vegna hlaupabrautar. Jakob vill að mest mundi fara til aðildarfélaga sambandsins samkvæmt þessari skiptingartilögu. Samkomulag náðist
Mætt: Jakob, Sigurjón, Helga og Sigurmundur
Unglingalandsmót: Rætt um umgjörð og ákveðið að reyna að loka málinu sem fyrst svo hægt sé að greiða aðildarfélögum vinnulaun vegna jákvæðrar stöðu mótsins
Íþróttamaður Skagafjarðar: Sent út dreifibréf til félaganna um að tilnefna fólk fyrir 10 des. Kjörið fer fram samkvæmt nýrri reglugerð sem samþykkt var á síðasta ársþingi. Helga tók að sér að boða valnefnd til fundar 16/12 í Húsi Frítímans og einnig að athuga með Hús Frítímans
Formannafundur ÍSÍ. Sigurjón fór á fund og er kominn í nefnd sem fjallar um útnefningu á íþróttamanni héraðsambanda. Lottó skilar enn sínu. KSÍ nektarmálið var rætt á fundinum og þóttu siðareglur sjálfsagðar.
Lottó 1.600 verða greidd út næstunni
Næsti fundur – helst sama dag og uppgjör fyrir Unglingalandsmót
Sigmundur Jóhannesson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Jakob Frímann Þorsteinsson
Mætt: Sigurgeir, Helga, Sigmundur, og Sigurjón. Gestir Ómar Bragi og Gunnar Gestsson
Tillaga um skiptingu ágóða af Unglingalandsmóti 2009. Gunnar Gestsson tilkynnti um 8 og hálfs milljón kr. afgang. Staðan núna er um 6 milljónir sem standa inni á reikning. Ekki hefur ennþá verið greitt fyrir þátttökugjöld keppanda UMSS. Áætlað að sú upphæð sé um 1,2 milljónir. Ekki verður rukkað inn heldur verður fjárhæðin dreginn frá því þeim peningum sem félagið hefði annars fengið. Sigurjón Þórðarson þakkaði fyrir tilögunar og þeim Ómari og Gunnari fyrir komuna. Tillagan samþykkt en ákveðið að halda eftir 10% fyrir UMSS til að geta gert upp við sveitafélagið vegna mælinga á frjálsíþróttavelli.
Vegna 100 ára söguritunar UMSS. Samþykkt að Sigurjón formaður ræði við Árna Guðmundsson og verði í samráði við Helgu um fjárhaginn utan um það.
Sigmundur Jóhannesson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Sigurgeir Þorsteinsson
Mættir : Sigmundur, Sigurjón og Helga
Helga sagðist vera búin að senda reikning á Vinnumálastofnun vegna launa framkvæmdarstjóra. Einnig sagðist hún þurfa að fara að greiða út lottó til aðildarfélaga
Sigurmundur Jóhannesson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Mætt; Sigmundur, Sigurjón og Helga
46. sambandsþing UMFÍ í Reykjanesbæ 10. til 11. okt. Sigurjón ætlar að mæta. Eigum rétt á 4 fulltrúm + formann.
Ákveðið að gera upp laun við Elmar Eysteinsson samkvæmt umtali, hann hefur lokið störfum hjá UMSS.
Reglugerð um vinnulag við val á Íþróttamanni Skagafjarðar.
Skipting styrks frá sveitafélaginu samkvæmt starfsskýslum.
Rætt um söguritun vegna 100 ára afmælis UMSS.
Sigurmundur Jóhannesson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Mættir: Fulltrúar: Vélhjólaklúbbs, Þröstur formaður, Guðmundur Sveinsson fyrir Léttfeta, Hjalti Þórðar frá Neista, Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir frá Smára, Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir fyrir Svaða
Farið yfir skiptingu styrkja Sveitafélagsins.
Rætt verður um Unglingalandsmótið, sjálfboðliðar í upplýsingarmiðstöð, raðað niður á vaktir.
Reglugerð um val á íþróttamanni Skagafjarðar samþykkt af stjórn UMSS þeir setja fastmótaðar reglur um valið byggðar á drögum sem lögð voru fyrir fundinn.
Elmar Eysteinsson
Hjalti Þórðarson
Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir
Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir
Guðmundur Sveinsson
Mætt: Elmar Sigurjón Helga Sigmundur og Jakob
Helga greindi frá stöðu búningamála. Þar er allt í réttum farvegi.
Athuga að skila inn til umsókn til atvinnutyggingarsjóðs vegna launa framkvæmdarstjóra.
Ákveðið að setja litla auglýsingu í Sjónhornið til að fá þátttöku í sem flestar greinar á landsmóti á Akureyri.
Elmar er að leita af aðila til að sjá um mat fyrir frjálsíþróttaskóla.
Jakob kom með lög Siglingarklúbbs Drangeyjar og félagatal, sótt var um aðild að UMSS. Stjórn samþykkti að fara yfir umsóknina og síðan vísa umsókninni til staðfestingar á næsta ársþingi. Framkvæmdarstjóra falið að senda umsókn til UMFÍ til að fá aðild strax.
Fundi slitið
Sigurjón Þórðarson
Sigurgeir Þorsteinsson
Helga Eyjólfsdóttir
Elmar Eysteinsson
Jakob Frímann Þorsteinsson
Mættir: Sigurgeir, Helga, Sigurjón og Elmar
Ósk Siglingaklúbbs Drangey um inngöngu í UMSS. Stjórn UMSS fagnar ósk Siglingarklúbbsins Drangeyjar og mun óska eftir upplýsingum í samræmi við 12 grein laga UMSS og leggja fyrir næsta ársþing til staðfestingar.
Undirbúningur landsmóts. Akureyri rætt um allt sem tengist landsmóti.
Fundi slitið
Sigurjón Þórðarson
Sigurgeir Þorsteinsson
Helga Eyjólfsdóttir
Elmar Eysteinsson
Mætt: Elmar, Helga, Sigmundur og Sigurjón
Búningarmál – Á að skipta við Henson. Regnjakki kostar um 4500 kr – með merkingum. Ákveðið að fá nokkrar stærðir til mátunar og láta síðan panta eftir þörfum. Ákveðið að reyna fá K.S. til að styrkja búningakaup.
Athuga á með bekki í tjald á landsmóti og eining að fá kokk. Búið að fá tjald til notkunar á Akureyri. Á að ræða við Árna Björn í Sólvík.
Fundur sleginn af :
Sigmundur Jóhannesson
Elmar Eysteinsson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Mætt: Sigurjón, Jakob, Helga og Elmar
Samþykkt að leggja 250 þúsund króna fjárstyrk frá K.S inn á innlánsreikning hjá K.S, þar til ákvörðun um kaup á tjaldi verður tekin. Kaupum á tjaldi verður frestað vegna óvissu í gengismálum.
Ákveðið að stjórnarmenn og framkvæmdarstjóri setji upp auglýsingar fyrir frjálsíþróttaskóla UMFÍ í nágrannabyggðum.
Rætt um búningamál og ákveðið að fundin verði ódýr lausn.
Samþykkt að greiða ferðakostnað fyrir formann á Akureyri þann 9-10 maí 2009. (Sigurgeir kemur inn á fundinn)
Rætt um fyrirkomulag styrkveitinga sveitafélagsins. Ákveðið að ljúka tillögugerð og boða síðan formenn aðildarfélaga á fund og ræða um breytt fyrirkomulag.
Formaður Siglingarklúbbsins Drangeyjar tilkynnti að von væri á umsókn félagsins um aðild að UMSS.
Rætt um að vinna að góðri þátttöku á Landsmótinu á Akureyri og Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki.
Næsti fundur ákveðinn 27. maí klukkan 16.00
Fundi slitið
Helga Eyjólfsdóttir
Elmar Eysteinsson
Sigurjón Þórðarson
Jakob Frímann Þorsteinsson
Sigurgeir Þorsteinsson
Mætt : Helga, Sigmundur, Jakob, Elmar og Sigurjón
Rætt um leiðréttingu á lottóúthlutun 2008. Það var ákveðið að greiða til að leiðrétta málið úr sjóði UMSS
Ákveðið að setja saman ráðingarsamning við Elmar sem fyrst.
Rætt um bréf frá Íþrótta og Ólympusambandi Íslands vegna dvalarleyfa erlendra íþróttamanna.
UMFÍ auglýsir eftir gömlum kvikmyndarskeiðum frá eldri landsmótum, 1955 til 1987. Ákveðið að skella þessu bréfi inn á heimasíðu sambandsins.
Þarf að fara greiða út þau 20% sem eftir á að úthluta frá styrkjum sveitafélagsins. Elmar, Sigurjón og Helga fara í málið eftir helgi.
Tjaldamál skoðað. Stærð og kostnaður til nánari athugunar.
Rætt um fréttabréf fyrir unglingalandsmót sem UMFÍ og Tindastóll ætla að gefa út. UMSS ætlar að skoða málið. Sigurjón ætlar að ræða betur við þessa aðila
Næsti fundur þriðjudaginn 5 mai.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson
Helga Eyjólfsdóttir
Elmar Eysteinsson
Sigurjón Þórðarson
Mættir: Sigurjón, Sigurgeir, Helga, Jakob, Sigmundur, Elmar og Gunnar Sigurðsson
Formaður setti fund og fyrsta mál var að skipa með sér verkum í stjórn.
1. Helga bauðst til að taka að sér gjaldkerastöðuna, Jakob verður áfram varaformaður, Sigmundur ritari og Sigurgeir meðstjórnandi.
2. Laun framkvæmdarstjóra. Stefnt að því að gera verklýsingu fyrir starf Elmars og ráðingu út sumarið. Ákveðið að Sigurjón og Jakob setji niður og geri vinnudrög sem lögð verða fram á næsta fundi.
3. Friðrik Steinsson kom á fundinn með reikning vegna búningakaupa frjálsíþróttadeildar að upphæð tæplega 500,000 kr. Búningarnir verða til sölu í Tískuhúsinu og andvirðið svo fært inn á UMSS. Ákveðið af stjórn að greiða þennan pening.
4. Formannafundur ákveðinn kl 17:30 fimmtudaginn 26 mars í húsi frítímans. Helstu mál
a. Íþróttamaður Skagafjarðar
b. Úthlutun styrkfjár Sveitafélagsins
c. Styrkir vegna æfingargjalda
d. Námskeið í Felix
e. Unglingalandsmót 2009, hvetja til þátttöku
f. Landsmótsnefnd
g. Umræður um þær reglur sem farið er eftir við skiftingu styrks sveitafélagsins
5. Landsmótsnefnd fyrir sumarið, fá duglegt fólk til að peppa upp þátttöku fyrir landsmótin.
6. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ og FRÍ, Gunnar Sig. lagði til að halda hann áfram. Mælti með 22 – 26 júní.
7. Tengsl stjórnar inn í sérráð sambandsins, mælt með áheyrnarfulltrúa.
8. Gunnar Sigurðsson ræddi samstarf við grunnskólana á ýmsum sviðum til að auka áhuga á fleiri greinum en frjálsíþróttum t.d skák og boltaíþróttum. Gunnar benti svo á að sími hans væri í símaskránni.
9. Ákveðið að mæta kl 17:00 á formannafund í húsi frítímans
Fundi slitið
Formaður setur þing og lætur kjósa þingforseta.
Kosinn þingforseti sem tekur við stjórn þingsins.
3. Kosinn varaþingforseti, þingritari og varaþingritari.
4. a) kosin skal 3 manna kjörbréfanefnd sem tekur þegar til starfa.
b) kosin skal 5 manna kjörnefnd sem tekur þegar til starfa.
5. Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar.
6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
7. Kjörbréfanefnd skilar áliti
8. Atkvæðagreiðsla um skýrslu og reikninga
9. Ávörp gesta
10. Mál lögð fyrir þingið sem kynnt hafa verið í fundarboði.
11. Tillögur lagðar fram af þingfulltrúum
12. Nefndarkosning (val)
a) allsherjarnefnd
b) fjárhagsnefnd
c) íþróttanefnd
d) aðrar nefndir
13. Nefndarstörf
14. Þingnefndir skili áliti og tillögur þeirra, sem falla undir síðari teknar til umræðu og afgreiðslu.
15. Fjárhagsáætlun samþykkt.
16. Kosningar (kosningar skulu vera skriflegar, nema því aðeins að stungið sé upp á jafn mörgum og kjósa skal)
kosin stjórn og varastjórn
kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara
kosið í nefndir og ráð sambandsins eftir því sem þing ákveður hverju sinni
17. Önnur mál.
18. Þingslit.
Afgreiðslur:
Sigurjón Þórðarsson formaður setti þingi og bauð fundarmenn velkomna á 89. ársþing UMSS, en það er haldið í boði Ungmennafélagsins Neista. Bauð hann gesti velkomna en þeir voru: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri UMFÍ og Viðar Sigurjónsson starfsmaður ÍSÍ, Akureyri.
Sigurjón flutti ávarp formanns. Síðan tilnefndi hann Steinunni Hjartardóttur sem þinforseta og var það samþykkt.
3. Steinunn tók nú við fundarstjórn og tilnefndi Guðrúnu Þorvaldsdóttir sem varaþingforseta var það samþykkt. Síðan bar Steinunn upp Margréti Stefánsdóttir sem fundarritara og Kristínu Jóhannesdóttur til vara var það samþykkt.
4. a) 3 manna kjörbréfanefnd: Hjalti Þórðarson, Gunnar Gestsson og Þorgils Pálsson.
Samþykkt.
b) 5 manna kjörnefnd: Jón Geirmundsson, Jónína Stefánsdóttir, Þorvaldur Gestsson, Þórunn Eyjólfsdóttir og Snorri Styrkársson, samþykkt.
5. Skýrsla stjórnar: Sigurjón Þórðarson form. flutti. Í forföllum Páls Friðrikssonar gjaldkera UMSS þá kynnti Sigmundur Jóhannesson endurskoðaða reikninga.
6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Sævar Pétursson spurði um númeruð atriði í rekstrarreikning. Haraldur Jóhannsson spurði um stöðu afreksmannasjóðs og landsmótssjóðs. Gunnar Gestsson spurði um Lottóúthlutun.
Sigurjón Þórðarson kynnti að skýringar við rekstrarreikning fylgir ekki með í ársskýrslunni vegna mistaka, en skýringar og skipting lottóúthlutunar, verða sendar til aðildarfélaga síðar.
7. Hjalti Þórðarson flutti skýrslu kjörbréfanefndar.
UMF Tindastóll á rétt á 14 8 mættir + formaður
Gróska „ „ 2 0 mættir
GSS „ „ 4 1 mættur
Svaði „ „ 4 4 mættir + formaður
Stígandi „ „ 6 5 mætttir
Léttfeti „ „ 5 3 mættir
Smári „ „ 7 5 mættir
Hjalti „ „ 4 4 mættir
Neisti „ „ 6 5 mættir
Vélhjólakl. „ „ 3 1 mættir
Bílakl. Skagafjar ðar 2 0 mættir
Samtals 38 fulltrúar mættir.
8. Atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga. Samþykkt.
9. Ávörp gesta:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir form. UMFÍ tók til máls og flutti kveðjur frá stjórn UMFÍ. Þakkaði hún fyrir skýrslu stjórnar og reikninga, hvatti hún nýja stjórn til að standa vel að ársreikningum og hafa öll mál uppi á borðinu. Niðurstaða reikninga er góð þó skýringar vanti. Hvatti hún UMSS til að sækja um í Verkefna- og fræðslusjóð UMFÍ til að standa straum af kostaði við að skrá sögu Ungmennasambands Skagafjarðar, en að skrá söguna er ómetanlegt.
Minnti hún á þjónustumiðstöð UMFÍ, þar sem við erum ætið velkomin til að nota okkur þjónustuna. Ræddi hún um hin mörgu verkefni sem UMFÍ stendur fyrir s.s Gæfuspor, Fjölskyldan á fjallið, Sýndu hvað í þér býr, Leiðtogaskólinn og hin ýmsu fræðslunámskeið sem UMFÍ standur fyrir. Sagði hún frá því að Skinfaxi er elsta tímarit á Íslandi með samfellda útgáfusögu. Ræddi hún um frestun UML í Grundarfirði. Sex aðilar sóttu um að fá að halda mótið, en það fellur í hlut UMSS með stuðningi Sveitarfélagins Skagafjarðar, að halda mótið á sumri komanda. Þakkaði hún sveitarstjórn Sv. Skagafjarðar fyrir þann mikla stuðning sem þeir hafa sýnt við að sækja um mótið. Taldi hún að okkur væri vel treystandi til að standa vel að mótinu, þrátt fyrir skamman undirbúningstíma. 26. Landsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri í sumar á 100 ára afmæli UMFÍ og hvatti hún félaga UMSS til að fjölmenna til Akureyrar til að taka þátt í afmælishátíðinni. Í lok erindisins minnti hún á ungmennafélagsandann „Íslandi allt“.
Síðan afhenti hún Steinunni Hjartardóttur starfsmerki UMFÍ. Í máli hennar kom fram að Steinunn hefði unnið lengi óeigingjarnt starf fyrir hreyfinguna og ávallt tilbúin til að taka að sér hin ýmsu verkefni, meðal annars hafði hún tekið að sér framkvæmdastjóra stöðu. Steinunn þakkaði fyrir sig og sagði: „Ég á þetta ekki skilið, ég hef bara svo gaman af þessu“.
Ómar Bragi Stefánsson tók næstur til máls. Byrjað mál sitt á að óska Steinunni til hamingju með starfsmerkið. Sagði hann frá skipun Unglingalandsmótsnefndar en formaður hennar verður Halldór Halldórsson, en auk hans eru í nefndinni, fjórir fulltrúar UMSS, einn fulltrúi Sveitarfélagsins og þrír fulltrúar UMFÍ. Búið er að halda tvo fundi. Kynnti hann veggspjald og einkennis lit mótsins, sem verður „orange“, styrktaraðila og þá vinnu sem komin er í gang. Undangengin mót hefur þátttökufjöldinn verið um níu þúsund en vegna breyttra aðstæðna í landinu má búast við enn fleiri gestum. Reikna má með að um 300 sjálfboðaliðar vinni við mótið. Hvatti hann íbúa til að rifja upp vinnuþekkinguna frá síðustu Landsmótum og standa jafn vel að þessu móti eins og okkur er einum lagið. KSÍ og KKÍ hafa lýst áhuga á að koma að mótahaldinu, en vaxandi áhugi er á að efla grasrótarstarfið í þessum hreyfingum. Ómar hlakkaði til að takast á við verkefnið næstu mánuði.
Viðar Sigurjónsson tók næstur til máls. Flutti kveðjur frá form. og framkv.stjóra ÍSÍ. Óskaði hann Steinunni til hamingju með viðurkenninguna og sagði að hún væri vel að henni komin. Sagði frá nýju fyrirkomulagi á þjálfarnámskeiðum. Hádegisfundir eru haldnir í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ýmis erindi eru flutt þar. Vonandi verður ekki langt að bíða þess að hægt verði að senda út fundi í gegnum netið. Fundina og útbýti er hægt að nálgast heimasíðu ÍSÍ. Óskaði UMSS til hamingju með að halda Unglingalandsmót nk. sumar.
Gunnar Gestsson tók til mál og flutti tillögu:
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir
að beina því til aðildarfélagana að þau kalli opinberlega eftir ungu fólki til æfinga og keppni og leita í sjóði UMSS ef innheimta æfingargjalda er ekki möguleg vegna efnahagserfiðleika. Tillagan var send í allsherjanefnd til umfjöllunnar.
Þessi tillaga var felld í allsherjarnefnd.
10. Mál lögð fyrir þingið sem kynnt hafa verið í fundarboði. Engin mál voru kynnt í fundarboði.
11. Formaður kynnti tillögur sem lagðar voru fyrir þingið og í hvaða nefndir þær færu. Þingforseti kynnti formenn nefnda.
Allsherjanefnd: Gunnar Gestsson
Fjárhagsnefnd: Sigurgeir Þorsteinsson
Íþróttanefnd: Friðrik Steinsson
Nú var boðið til kaffihlés og á meðan störfuðu nefndir.
13. Nefndastörf
14. Þingnefndir skili áliti og tillögur þeirra, sem falla undir síðari teknar til umræðu og afgreiðslu.
Íþróttanefnd: Friðrik Steinsson kynnti tillögur nefndarinnar:
Þjálfarar með réttindi
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir, að beina
því til aðildafélag að þau leytist við að ráða aðeins til starfa þjálfara sem sótt hafa námskeið á vegum íþróttahreyfingarinnar eða hafi sambærilega menntun. Samþykkt samhljóða.
Ráð á vegum UMSS
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir
að eftirfarandi ráð verði starfandi á vegum UMSS næsta starfsár:
a. Frjálsíþróttaráð
b. Hestaíþróttaráð
c. Sundráð
d. Boltaráð
Þingið samþykkir einnig að ráðunum verði úthlutað fjármagni til þess að geta staðið að mótum á vegum UMSS eins og gert hefur verið undanfarin ár. Stjórn UMSS verði falið að setja upp sérstaka reikninga fyrir hvert ár og ákveða upphæð sem þeim er ætlað að vinna með. Ráðinu skulu skila starfsskýrslu fyrir ársþing. Samþykkt.
Ráð UMSS
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir
Að beina því til stjórnar að útbúa starfsreglur fyrir ráðin og kynna þær á næsta fundi ráðanna. Samþykkt.
Reglur um íþróttamann Skagafjarðar
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir,
Að beina því til stjórnar UMSS að hún skipi vinnuhóp þar sem fulltrúar allra sérráða innan UMSS eigi fulltrúa auk eins stjórnarmanns frá UMSS. Hlutverk þessa hóps er að móta reglur um kjör íþróttamanns Skagafjarðar.
Til máls tóku Sigurjón Þórðarson, Sævar Pétursson, Guðmundur Sveinsson, Friðrik Þór Jónsson. Gunnar Gestsson sem lagði fram eftirfarandi tillögu:
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir,
Að beina til formannafundar UMSS að móta reglur um val á Íþróttamanni Skagafjarðar.
Til máls tók Gunnar Sigurðsson, Sigurjón Þórðarson
Tillaga Gunnars Gestssonar borin upp og samþykkt samhjóða.
Mótaskrá
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir,
eftirfarandi mótaskrá:
22. janúar Grunskólamót UMSS, yngri Varmahlíð
29. janúar Grunnskólamót UMSS, eldri Varmahlíð
30. apríl Grunnskólamót UMSS (frestað frá hausti)
(Puttamót) Sauðárkrókur
16.maí Héraðsmót í hestaíþróttum Sauðárkrókur
17. júní Héraðsmótí sundi Sauðárkrókur
19. júlí Fimmtarþrautamót UMSS Sauðárkrókur
31. júl. – 3. ágúst Unglingalandsmót UMFÍ Sauðárkrókur
11. ágúst Þristurinn Sauðárkrókur
10. september Grunnskólamót UMSS, úti Sauðárkrókur
Sept / okt. Sundmót UMSS Sauðárkrókur
22. desember Jólamót UMSS Sauðarkrókur
Fimmtudagsmót verða þegar í ljós kemur hvaða fimmtudagar verða lausir á vellinum. Samþykkt.
Allsherjarnefnd: Gunnar Gestsson kynnti tillögur nefndarinnar.
Unglingalandsmót 2009
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi hvetur aðildarfélög til að vinna að því að þátttaka í Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina verði sem mest. Samþykkt.
Unglingalandsmót 2008
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir þakkir til HSK og Sveitarstjórnar Ölfus fyrir góðar móttökur og vel heppnað Unglingalandsmót UMFÍ 2008. Samþykkt.
Þakkir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi þakkar Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir góðan stuðning við íþróttahreyfinguna. Þingið þakkar einnig þann stuðninginn sem UMSS fékk vegna umsóknar sinnar um að halda Unglingalandsmót 2009.
Samþykkt.
Þakkir til grunnskóla Sveitarfélagsins
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi þakkar starfsfólki grunnskólanna í Skagafirði fyrir mikið og gott samstarf undanfarin ár. Gott samstarf íþróttahreyfingarinnar og skólanna er lykilatriði í uppbyggingu hraustrar og heilbrigðrar æsku sem skilar sér til baka sem góðir og gegnir einstaklingar.
Samþykkt.
90. ársþing UMSS
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir, að 90. ársþing UMSS verði í umsjón Ungmenna- og íþróttafélagsins Smára í Varmahlíð. Samþykkt.
Saga UMSS
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir að gefa út myndskreyttan bækling með ágripi af sögu UMSS og íþróttahreyfingarinnar í Skagafirði. Samþykkt.
100 ára afmæli UMSS 2010
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi, samþykkir að beina því til stjórnar UMSS að mynda afmælisnefnd sem vinnur að undirbúningi og framkvæmd afmælisárs UMSS.
Samþykkt.
Fjárhagsnefnd: Sigurgeir Þorsteinsson kynnti tillögur nefndarinnar.
Lottóreglugerð
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir að eftirfarandi lottóreglugerð:
5 % Afreksmannasjóður UMSS
5 % Landsmótssjóður UMSS
25 % Til reksturs UMSS
20 % Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda félagsmanna samkvæmt félagatali í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ.
45 % Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda iðkenda samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ.
Samþykkt.
Skráningargjöld
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir, að þau ráð sem starfa á vegum UMSS, ákveði sjálf þau skráningargjöld sem greidd verða í þeirra mótum sem haldin eru á vegum UMSS og samþykkt er fyrir í stjórn Sambandsins.
Samþykkt.
Árgjöld félaga
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi leggur til að árgjöld félaga verði 350 krónur á hvern félagsmann 16 ára og eldri.
Samþykkt.
Þátttökugjöld á UML
89. ársþing UMSS haldið 6. mars 2009 í Höfðaborg á Hofsósi samþykkir tillögu um að UMSS niðurgreiði þátttökugjald á Unglingalandsmót UMFÍ og hvetji aðildafélög til hins sama.
Gunnar Gestsson tók til máls og ræddi um upphæð. Sigurjón tók til máls og taldi að reikna mætti með ca 3000 pr. mann frá UMSS. Steinunn tók til máls og spurði Halla hversu mikið hefði verið greitt og hann svaraði að venjulega hefði verið greiddur u.þ.b. helmingu en landsmótssjóður greiddi þátttökugjöld á Landsmótið. Kristín Jóhannesdóttir til máls og sagði að félögunum væri í sjálfsvald sett hversu mikið þau greiddu með sínum keppendum.
Tillagan var samþykkt óbreytt.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2009
89. ársþing UMSS haldið 6. Mars 2009 í Höfðaborg á Hofósi samþykkir eftirfarandi fjárhagsáætlun:
Rekstrartekjur
Árgjöld aðildarfélaga 700.000
Lottó, útbreiðslustyrkur 900.000
Styrkir 2.000.000
Tekjur af íþróttastarfsemi 1.000.000
Aðrar tekjur 100.000
Afreksmannasjóður 180.000
Landsmótssjóður 180.000
5.060.000
Rekstrargjöld
Yfirstjórn 1.500.000
Kostnaður vegna íþróttastarfs 2.000.000
Íþróttastyrkir 500.000
Annar kostnaður 500.000
Afreksmannasjóður 300.000
4.800.000
Niðurstaða ársins 260.000
15. Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða
16. Kosningar:
Formaður kjörnefndar Snorri Styrkársson kynni tilnefningar.
Formaður: Sigurjón Þórðarson Samþykkt.
Úr stjórn gekk Páll Friðriksson og í stað hans var tilnefndur Sigurgeir Þorsteinsson Samþykkt
Aðrir sem ganga áttu úr stjórn gáfu kost á sér áfram.
b) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og tveir til vara:
Aðalmenn: Frímann Guðbrandsson og Jóhann Sigmarsson. Samþykkt.
Varamenn: Snorri Styrkársson og Hjörtur Geirmundsson. Samþykkt.
c) Kosið í nefndir og ráð
Boltaráð:
Ómar Bragi Stefánsson, Bjarki Árnason, Hjalti Þórðarson. Samþykkt.
Frjálsíþróttaráð:
Friðrik Steinsson, Gunnar Sigurðsson, Þórey Gunnarsdóttir, Guðríður Magnúsdóttir. Samþykkt.
Hestaíþróttaráð:
Aðalmenn: Elisabeth Jansen, Bergur Gunnarsson og Magnús Bragi Magnússon. Samþykkt.
Varamenn: Sigurbjörn Þorleifsson, Ingimar Jónsson og Bjarni Jónasson. Samþykkt.
Sundráð:
Hallfríður Guðleifsdóttir, Hrefna B.Guðmundsdóttir og Bryndís Aðalsteinsdóttir. Samþykkt.
Afreksmannasjóður: Haraldur Þór Jóhannsson, Birgir Rafnsson og Sigurjón Þórðarson.
Samþykkt.
17. Önnur mál.
Gunnar Sigurðsson tók til máls. Óskaði nýrri stjórn UMSS til hamingju. Hvatti stjórn til að skipa sem fyrst landsmótsnefndir. Hann benti á að „logo“ Sveitafélagsins væri varla nógu áberandi á veggspjaldi UML. Líklega verður auðveldara að fá sjálfboðaliða í ár vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Hann samsinni því sem áður hafði komið fram að heppilegra væri að hafa fundi fyrr að deginum.
Viðar Sigurjónsson tók til máls. Hann flutti að hvatningar orð til nýrrar stjórnar.
Að vanda fylgdu okkrar vísur í lokin.
Reglugerðin reyndist ná
réttum kili að endingu,
og þingtillagan þótti fá
þægilega lendingu.
Skýrslan hún var skorinort
en skóp þó ýmsar ýringar,
því eitthvað hafði á það skort
að eftir fylgdu skýringar!
Sæmundur Runólfson tók til máls. Hann sagði ma. að þrátt fyrir allt þá hefði verið vel haldið um peningamálin hjá sambandinu. Hann minntist á kjör íþróttamanns ársins. Hvatti hann til að vandaðra vinnubragða og standa glæsilega að valinu.
Sigurjón Þórðarson nýkjörin formaður UMSS tók til máls. Þakkaði traustið sem honum væri sýnt. Hann sagði að tvö mál biðu umfjöllunnar. Reglur um kjör á íþróttamanni ársins og æfingagjöld.
Sigurjón Þórðarson afhenti Magnúsarbikarinn. Bikarinn hlýtur í ár Steinunn Snorradóttir stigahæsti sundmaðurinn árið 2008. Faðir Steinunnar tók við bikarnum fyrir hennar hönd.
Sigurjón þakkaði góða fundarsetu og bauð fólkinu góðrar heimferðar.
18. Þingslit
Margrét Stefánsdóttir ritari
G. Kristín Jóhannesdóttir vararitari
Mætt Sigurjón, Helga, Páll, Sigmundur, Jakob og Elmar
Verið að ganga frá prentun ársskýrslu. Eining að semja tillögu stjórnar til þingsins, pöntuð Pizza og unnið fram á kvöld
Svo fóru allir að sofa
Páll Friðriksson, Sigmundur Jóhannesson, Elmar Eysteinsson, Sigurjón Þórðarson, Helga Eyjólfsdóttir.
Mætt: Helga, Sigurjón, Páll, Sigmundur, Jakob og Elmar
Sigurjón las upp fyrir okkur skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár.
Alda Haraldsdóttir sendi póst og sóttist eftir að fá að vera framkvæmdarstjóri í sumar, ekki talið tímabært að afgreiða það mál strax, þar sem þegar er starfandi maður á skrifstofu.
Friðrik Steinsson leit inn með reikninga frjálsíþróttaráðs og Páll reiknaði með að reikningarnir yrðu klárir eftir 2 daga, þar með rauk Jakob af fundi vegna anna.
Reynt að finna þingformann. Viggó Jónsson var upptekinn, eins og Ómar Bragi og Haraldur í Enni. Steinunn Hjartardóttir að skoða málið.
Næsti fundur fimmtudaginn kl 17:00
Fundi slitið: Páll Friðriksson, Sigmundur Jóhannesson, Elmar Eysteinsson, Sigurjón Þórðarson, Helga Eyjólfsdóttir.
Error! No index entries found.
09.
Mætt: Sigurjón, Sigmundur, Páll og Helga.
Farið yfir þá þætti sem varða ársskýrsluna vegna aðalfundar. Skipt með sér verkum og ákveðið að hittast mánudaginn 2/3 2009
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson, Helga Eyjólfsdóttir, Elmar Eysteinsson, Sigurjón Þórðarson, Páll Friðriksson.
Mætt: Sigurjón, Helga, Sigmundur og Páll. Gestur: Ómar Bragi Stefánsson.
Unglingalandsmót UMFÍ 2009 verður haldið á Sauðárkróki 31 júlí – 2 ágúst. Ómar Bragi kynnti okkur umfang landsmótsins. Stjórn þarf að skipa fimm manns í landsmótsnefnd, sveitafélag einn og höfum við þegar sent þeim bréf um það auk þess verða 3 fulltrúar frá UMFÍ í nefndinni .
Bréf frá Sundsambandi Íslands. Tilkynning um sundþing Íslands 27 og 28 janúar. Sent sunddeild Tindastóls.
Bréf frá UMFÍ um samráðsfund 9-10 maí á Akureyri.
Svar frá Vinnumálastofnun Norðurlands vestra, Samþykkt var eitt starf í 4 mánuði. Formanni falið að ráða í starfið tímabundið.
Ákveðið að styrkja Bjarka Má Árnason um 50.000. vegna þjálfaranámskeiðs.
Ákveðið að nýta nýjan starfsmann strax í að senda út kjörbréf vegna ársþings.
Fundi slitið
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Páll Friðriksson
Sigmundur Jóhannesson
Halldór Þorvaldsson
Mættir: Páll, Sigurjón og Sigmundur.
Umsókn um unglingalandsmót á Sauðárkróki 2009 óskað var efir stuðningi sveitafélagsins við umsóknina og bárust mjög jákvæð svör frá sveitastjóra og tómstundanefnd. Í framhaldi var send formleg umsókn til UMFÍ. Ákvörðun verður tekinn 16 febrúar.
Sigurjón búinn að senda sveitafélaginu erindi um reglugerð að vinnulagi á vali Íþróttamanns Skagafjarðar.
Ársþing UMSS. Ákveðin fundur miðvikudaginn 18/2 kl. 17:00 þá verður gengið frá kjörbréfum og þau send út.
KSÍ sendir dagskrá og kjörbréf vegna 63 ársþings KSÍ. Skúli tók kjörbréfið.
Bréf frá ÍSÍ um fulltrúarfjölda á íþróttaþing, 2 fulltrúar 17 – 18 apríl.
Bréf frá UMFÍ. Fyrirhuguð er ungmennaráðstefna 4-5 man á Akureyri. Ákveðið að senda afrit af bréfinu í hús Frítímanns.
Bréf frá skíðadeild Tindastólls. Umsókn um styrk vegna vetrarleika 27 feb. – 1 mars. Ákveðið að styrkja um 50.000 kr. fyrst um sinn.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson
Páll Friðriksson
Sigurjón Þórðarson
Mættir Páll, Sigurjón, Sigmundur, Helga og Jakob.
Ákveðið að halda ársþing UMSS 6 mars 2009. Neisti verður gestgjafi. Sigurjón og Helga sjá um boðsbréf.
Námskeið í Felix og fleira í sambandi við félagsstörf áætlað í lok mars.
Lesið yfir bréf frá Þórarni Eymundssyni, þar sem hann gagnrýnir starfsreglur við val á íþróttamanni ársins. Sigurjón hafði þegar svarað honum og þakkað þessar ábendingar. Gerðar hafa verið tillögur að verklagsreglum um þessar kosningar og var ákveðið að kynna þær fyrir fulltrúa sveitafélagsins. Sigurjón sér um það.
Jakob kynnir fyrir okkur drög að smábæjar-skíðamóti. Haldið þann 27 feb.– 1 mars . dagskrá var lög fram. Óskað eftir aðkomu UMSS að því að fjármagna verðlaunagripi sem veita á þátttakendum. Stjórn tók vel í að styrkja þetta verkefni og bíður samt eftir formlegri umsókn.
Bréf frá KS. Menningarsjóður KS styrkir UMSS til kaupa á samkomutjaldi, um 250.000. kr. Ákveðið að hugsa þetta tjaldamál betur, en Páll þarf að sækja þennan pening og leggja inn á bók.
UMFÍ minnir á lottó úthlutun 2009. Fundarboð frá ÍSÍ á Íþróttaþing 17 – 18 apríl.
Umsókn frá Tindastóli vegna þjálfaranámskeiða. Samþykkt að styrkja um 42.000 kr.
Umsókn frá Tindastóli og Neista vegna þjálfaranámskeiðs Bjarka Árnasonar. Tekið vel í að styrkja hann en upphæð ekki ákveðin fyrr en reikningar liggja fyrir .
Fundi slitið
Sigurjón ÞórðarsonHelga Eyjólfsdóttir, Páll Friðriksson, Sigmundur Jóhannesson og Jakob Fr.
Mættir: Sigmundur, Sigurjón, Páll og Jakob.
Gestur frá Skíðadeild Tindastóls, Sigurður Bjarni Rafnsson. Hugmynd um að halda stórt skíðamót t.d. einhverskonar smábæjarleikar og þá fyrir yngri krakka. Óskað eftir samstarfi við UMSS um að halda slíkt mót. Ákveðið að ræða þetta mál við framkvæmdarstjóra UMFÍ.
Val Íþróttamanns Skagafjarðar 2008. Óli Arnar Brynjarsson ætlar ekki að starfa. Varamaður Sigurjón Þórðarson tekur hans sæti.
a. Bréf og Póstur : Dagsetningar á vegum almenningíþróttasviðs íþrótta og Ólympíudeild. Lífshlaupið 2-24 febrúar. Hjólað í vinnuna 6 – 26 maí. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 20 júní
b. Handbók ÍSÍ barst.
c. Þá er beint til sambandsaðila að skipa landsmótsnefndir fyrir næsta landsmót.
d. Fundargerð 36. Sambandsráðfundur UMFÍ.
e. Keypt afmæliskveðja í 100 ára afmælis Laugdælings.
f. Vinnureglur vegna ráðningar erlendra leikmanna.
g. Bréf frá UMFÍ. Beiðni um lög sambandsins og virka félaga inn sambandsins. Formanni falið að safna þessum lögum saman. Lög UMSS hafa nýlega verið send til UMFÍ í ársskýrslu.
h. Faglýst félagsnámskeið á vegum UMFÍ, Bændasamtök og Kvenfélagsamtök.
i. 64 ársþing KSÍ. Fulltrúar á þing. Tindastóli falið að tilnefna fulltrúa.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson, Sigurjón Þórðarson, Páll Friðriksson
Mættir: Sigmundur, Sigurjón, Páll, Helga og Jakob.
Bréf frá ÍSÍ, formannafundur verður haldinn 28. nóv. Ákveðið að senda fulltrúa. Ræðst í næstu viku hvort Sigurjón kemst.
Íþrótta og Ólympíusamband Íslands kynna umsókn í ferðasjóð íþróttafélaga. Ákveðið að áframsenda bréfið til formanna aðildarfélaga.
Val Íþróttamanns Skagafjarðar 2008. Hafa sama fyrikomulag og verið hefur. Ákveðið að stefna að 29/12, kl. 17:00 í Frímúrarasal. Tilnefndir í nefnd : Helga Eyjólfsdóttir frá UMSS, María Björk Ingvarsdóttir, Páll Friðriksson frá UMSS, Guðný Jóhannesdóttir, Óli Arnar Brynjólfsson
Dreifibréf verður sent út til félaga sem fyrst
Styrkumsókn frá sunddeild Tindastólls vegna þátttöku Lindu B. Ólafsdóttur í sundnámskeiði. Ákveðið að samþykkja um 35.000. kr.
Styrkumsókn Léttfeta tekinn fyrir aftur frá síðasta fundi. Hljóðaði upp á 200.000. kr. vegna framkvæmda við skeiðbraut. Samþykkt eftir miklar umræður að styrkja um 50.000 kr. Páll Friðriksson sat hjá við afgreiðsluna.
100 ára afmæli UMSS 2010. Ákveðið að boða Björn Björnsson á næsta fund. Næsti fundur ákveðinn fimmtudaginn 4/12.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson
Páll Friðriksson
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir.
Mættr Páll, Helga, Sigurjón, Sigmundur var í síma.
1. Kynnt umsókn um styrk frá Léttfeta – Ákveðið að fara betur yfir málið, því frestað.
2. Páll fór yfir stöðu húsnæðismála UMSS.
3. Samþykkt að Sigurjón fái greiddan kostnað vegna ferðar á sambandssvæðisfund UMFÍ í Stykkishólmi.
4. Stefnt að því að hafa næsta fund 30 október 2008.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið.
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Páll Friðriksson
Mættir Páll, Helga, Sigurjón og Jakob.
1. Farið yfir fjármál UMSS og rætt um starfið vítt og breytt.
2. Formanni falið að ræða við forráðamenn félagasamtaka vegna kaupa eða leigu á samkomutjaldi.
3. Stefnt að því að halda næsta fund 9 október.
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Páll Friðriksson
Jakob Frímann Þorsteinsson
Mættir Páll, Sigurjón, Helga og Alda framkvæmdarstjóri.
1. Farið yfir verkefnin framundan.
a. Þristurinn 12 ágúst.
b. Norðurlandsmót 16 – 17 ágúst.
c. Meistaramót Íslands 15 til 23 ára. 23 til 24 ágúst.
Öldu falið að halda undirbúningi fyrir framangreind mót áfram, í samráði við frjálsíþróttafólk hjá UMSS.
2. Formanni falið að kanna með styrki til kaupa á tjaldi fyrir UMSS.
Fundi slitið
Sigurjón Þórðarson.
Helga Eyjólfsdóttir
Páll Friðriksson
Alda L Haraldsdóttir.
Jakob Frímann Þorsteinsson
Mættir Sigurjón Þórðarson, Helga Eyjólfsdóttir, Alda Haraldsdóttir, Páll Friðriksson.
1. Prókúra á nýjum reikningi UMSS. sem stofnaður var fyrir Frjálsíþróttaskóla UMSS. Prókúruhafi Páll Friðriksson – Samþykkt.
2. Farið yfir hvernig til tókst í frjálsíþróttaskóla UMSS. Yfir heildina tókst allt mjög vel en ýmislegt sem hægt er að pússa til fyrir næsta sumar. Fleiri starfsmenn hefði þurft.
3. Rætt um unglingalandsmót. Framkvæmdarstjóra falið að tala við forsvarsmenn íþróttaiðkenda.
4. Næsti fundur fimmtudaginn 24 Júlí
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Alda Laufey Haraldssóttir
Páll Friðriksson.
1. Samþykkt að ganga til viðræðna við Öldu Haraldsdóttur um að hún taki að sér verktöku fyrir UMSS.
2. Næsti fundur fimmtudaginn 3 júlí.
Sigurjón Þórðarson, Helga Eyjólfsdóttir og Páll Friðriksson.
1. Starfsmannamál, Nauðsynlegt að finna starfsmann fyrir næstu 2 mánuði. Nokkur nöfn og Sigurjóni falið að ræða við ákveðna aðila.
2. Heimasíða, Formaður vill nýtt forrit fyrir heimasíðu. Ákveðið að tala við Jón Sveinsson og þá aðra ef ekki gengur. Reynt að ljúka því sem fyrst.
3. Landsmót 2009, Í ljósi þess að uppi eru efasemdir um að ekki sé hægt að halda Landsmót UMFÍ á Akureyri á næsta ári, telur stjórn UMSS rétt að bjóða UMFÍ að halda mótið á Sauðárkróki.
4. Búningamál, Friðrik Steinsson kominn með málið á sínar hendur. Anna Sigga í Tískuhúsinu er til í samstarf.
Gunnar Sigurðsson fræddi okkur síðan um frjálsíþróttaskóla sem á að starfrækja í júlí. Einnig fór hann yfir þau frjálsíþróttamót sem verða haldin hér í sumar. Gunnar hafði samband við Harald í Enni og tókst að fá hann til að taka að sér starf framkvæmdastjóra.
5. Næsti fundur ákveðinn mánudaginn 23. júní nk. kl 20:30.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson, Páll Friðriksson, Helga Eyjólfsdóttir og Sigurjón Þórðarson.
Fundur 22. apríl 2008, Víðigrund 5, Sauðárkróki, mættir Sigurjón Þórðarson, Sigmundur Jóhannesson, Páll Friðriksson og Helga Eyjólfsdóttir.
Umsókn um styrk vegna þjálfaranámskeiðs frá tveimur ungum konum, Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir og Anita Björk Sigurðardóttir vegna unglingadeildar körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Ákveðið að veita styrk að upphæð 24.000-
Undirbúin tillaga um skiptingu íþróttastyrkja frá Sveitarfélaginu Skagafirði. Sigurjón og Páll taka að sér að vinna endanlega tillögu um skiptinguna út frá gögnum sem hafa loksins borist.
Ákveðið að halda fund að kvöldi 29 apríl og afgreiða tillöguna.
Fundi slitið
Sigmundur Jóhannesson Páll Friðriksson
Sigurjón Þórðarson Helga Eyjólfsdóttir
Fundur 29. apríl 2008, Víðigrund 5, Sauðárkróki, mættir Sigurjón Þórðarson, Páll Friðriksson og Helga Eyjólfsdóttir.
1. Kynnt bréf frá Guðrúnu Eiríksdóttur dags. 10. apríl sl. vegna Olympíuleikanna í Kína.
2. Samþykkt að mæla með því við Sveitarfélagið Skagafjörð að það skipti styrkjum til félaga samkvæmt útreikningum sem merktir eru sem fylgiskjal 2.
3. kynning frá hestaíþróttaráði UMSS, Magnús Bragi formaður.
Ákveðið að halda hestaíþróttamót UMSS þann 9. og 10. maí n.k.
4. Næsti fundur ákveðinn þriðjudaginn 20. maí nk.
Sigurjón Þórðarson
Helga Eyjólfsdóttir
Páll Friðriksson.