Ársskýrsla 2011

 

 

Efnisyfirlit                                                                                                 . 5

Dagskrá 91. ársþings                                                                                . 6

Stjórn og ráð UMSS 25. mars 2010 - 17. mars 2011. 6

Stjórn og ráð UMSS 25. mars 2010 - 17. mars 2011. 7

Aðildarfélög UMSS árið 2010. 7

Aðildarfélög UMSS árið 2010. 4

Ávarp formanns UMSS                                                                            . 5

Skýrsla stjórnar UMSS. 6

Ársreikningur 2010. 6

Ársreikningur 2010. 7

Hestaíþróttaráð UMSS                                                                            . 16

Frjálsíþróttaráð UMSS                                                                            . 17

Fréttapunktar UMFÍ. 20

Bílaklúbbur Skagafjarðar 23

Golfklúbbur Sauðárkróks. 24

Hestamannafélagið Léttfeti 25

Hestamannafélagið Stígandi 25

Hestamannafélagið Stígandi 26

Hestamannfélagið Svaði 27

Íþróttafélagið Gróska. 28

Siglingaklúbburinn Drangey. 29

Ungmennafélagið Hjalti 31

31

Ungmennafélagið Neisti 32

Ungmennafélagið Neisti 32

Ungmennafélagið Tindastóll 34

Ungmenna- og íþróttafélagið Smári 42

Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar 43

Lög og reglur Ungmennasambands Skagafjarðar 43

Lög og reglur Ungmennasambands Skagafjarðar 44

 

1. Formaður setur þing og lætur kjósa þingforseta.

2. Kosinn þingforseti sem tekur við stjórn þingsins.

3. Kosinn varaþingforseti, þingritari og varaþingritari.

4. Kosin 3 manna kjörbréfanefnd og 5 manna kjörnefnd og taka nefndirnar þegar til starfa.

5. Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar.

6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.

7. Kjörbréfanefnd skilar áliti og fer yfir mætingu þingfulltrúa.

8. Atkvæðagreiðsla um skýrslu og reikninga.

9. Ávörp gesta.

10. Mál lögð fyrir þingið

11. Tillögur lagðar fram af þingfulltrúum.

12. Nefndarkosning (val).

a. Allsherjarnefnd

b. Fjárhagsnefnd

c. Íþróttanefnd

13. Nefndarstörf – kaffihlé.

14. Þingnefndir skila áliti og tillögur þeirra teknar til umræðu og afgreiðslu.

15. Fjárhagsáætlun borin upp og samþykkt.

16. Kosningar (kosningar skulu vera skriflegar, nema því aðeins að stungið sé upp á jafn mörgum og kjósa skal).

a. Kosinn formaður til eins árs

b. Kosnir tveir í stjórn til tveggja ára

c. Kosnir þrír í varastjórn til eins árs

d. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara til eins árs

e. Kosið í nefndir og ráð sambandsins eftir því sem þing ákveður hverju sinni

17. Önnur mál.

18. Þingslit.

 


Formaður: Hrefna Gerður Björnsdóttir

Varaformaður: Sigurjón Leifsson

Gjaldkeri: Hjalti Þórðarson

Ritari: Sigmundur Jóhannesson

Meðstjórnandi: Sigurgeir Þorsteinsson

Varastjórn: Guðmundur B Eyþórsson, Sigríður Magnúsdóttir og Valgerður Inga Kjartansdóttir

 

Afreksmannasjóður: Birgir Rafnsson, Haraldur Þór Jóhannsson og Hrefna Gerður Björnsdóttir

 

Skoðunarmenn reikninga: Frímann Guðbrandsson og Jóhann Sigmarsson

 

Frjálsíþróttaráð: Friðrik Steinsson, Guðríður Magnúsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Þórey Gunnarsdóttir

 

Hestaíþróttaráð: Bergur Gunnarsson, Bjarni Jónasson, Elisabeth Jansen, Friðgeir Jóhannsson,

Hinrik Már Jónsson og Magnús B Magnússon.

 

Sundráð: Hallfríður Guðleifsdóttir, Hrefna B. Guðmundsdóttir og Bryndís Aðalsteinsdóttir

 

 



 

 

 

 

Ungmennasamband Skagafjarðar

Stofndagur: 17. apríl 1910.

Fjöldi virkra aðildarfélaga árið 2010: 12

Starf UMSS felst m.a. í eftirtöldum atriðum:

Regnhlífarsamtök fyrir aðildarfélög sín og gætir hagsmuna þeirra.

Útdeiling á Lottótekjum sem koma inn í héraðið.

Ákveður skiptingu á fjármunum sem sveitarfélagið leggur til aðildarfélaga UMSS.

Stendur fyrir nokkrum mótum ár hvert á héraðsvísu og ætluð aðildarfélögunum.

Stendur fyrir mótum á landsvísu s.s. meistaramótum, landsmótum og bikarkeppnum.

Hefur umsjón með liðum sem send eru úr héraði og keppa undir merkjum UMSS.

Hefur umsjón með undirbúningi og utanumhald keppnisliðs UMSS fyrir Landsmót og Unglingalandsmót UMFÍ

Tengiliður við UMFÍ og ÍSÍ.

 

 

 

 

 

 



 

 

Bílaklúbbur Skagafjarðar. Stofndagur: 1989. Fjöldi félagsmanna: 53

Formaður: Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir Suðurgötu 22, 550 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Akstursíþróttir

 

Golfklúbbur Sauðárkróks. Stofndagur: 1970. Fjöldi félagsmanna: 138

Formaður: Pétur Friðjónsson, Eyrartúni 5, 550 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Golf

 

Hestamannafélagið Léttfeti. Stofndagur: 1933. Fjöldi félagsmanna: 273

Formaður: Guðmundur Sveinsson, Fellstúni 9, 550 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Hestaíþróttir

 

Hestamannafélagið Stígandi. Stofndagur: 20. apríl 1945. Fjöldi félagsmanna: 268

Formaður: Jónína Stefánsdóttir, Stórugröf ytri 1, 560 Varmahlíð

Aðalstarfsemi: Hestaíþróttir

 

Hestamannafélagið Svaði. Stofndagur: 31. október 1974. Fjöldi félagsmanna: 182

Formaður:  Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir, Austurgötu 7, 565 Hofsósi

Aðalstarfsemi: Hestaíþróttir.

 

Íþróttafélagið Gróska. Stofndagur: 22. mars 1992. Fjöldi félagsmanna:

Formaður: Salmína Sofia Tavsen, Mel, 551 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Íþróttir fatlaðra.

 

Siglingaklúbburinn Drangey. Stofndagur: 5. maí 2009. Fjöldi félagsmanna: 42.

            Formaður: Ingvar Páll Ingvarsson, Hólatúni 2, 550 Sauðárkróki.

            Aðalstarfsemi: Íþróttir tengdar siglingum.

 

Ungmennafélagið Hjalti. Stofndagur: febrúar 1927. Fjöldi félagsmanna: 177

Formaður: Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, Nátthaga 14, 551 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Knattspyrna og frjálsar íþróttir.

 

Ungmennafélagið Neisti. Stofndagur: 12. febrúar 1898. Fjöldi félagsmanna: 290

Formaður: Sigmundur Jóhannesson, Brekkukoti, 566 Hofsósi

Aðalstarfsemi: Knattspyrna og sund

 

Ungmennafélagið Tindastóll.  Stofndagur: 26. október 1907. Fjöldi félagsmanna: 1205

Formaður:  Gunnar Gestsson, Eyrartúni 4, 550 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Knattspyrna, frjálsar íþróttir, sund, körfuknattleikur, skíðaíþróttir.

 

Ungmenna- og íþróttafélagið Smári. Stofndagur: 1995. Fjöldi félagsmanna: 382

Formaður: Ragnhildur Lára Brynjólfsdóttir Birkihlíð, 551 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Knattspyrna, körfuknattleikur og frjálsar íþróttir

 

Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar. Stofndagur: 3. apríl 2005. Fjöldi félagsmanna 40

Formaður: Þröstur Ingi Ásgrímsson, Fagragerði, 551 Sauðárkróki

Aðalstarfsemi: Akstursíþróttir

 

 




Ávarp formanns UMSS                                                                            .

 

Ágætu félagar í íþróttahreyfingunni.  Ég vil fyrir hönd Ungmennasambands Skagafjarðar bjóða ykkur hjartanlega velkomin á 91. ársþing UMSS, sem haldið er að þessu sinni í Mælifelli á Sauðárkróki í boði Golfklúbbs Sauðárkróks. 

Gesti býð ég sérstaklega velkomna sem sumir hverjir eru komnir langt að.

Síðasta starfsár Ungmennasambandsins var nokkuð annasamt og vil ég nota tækifærið og þakka þeim góðu einstaklingum sem störfuðu með mér í stjórn Ungmennasambandsins, þeim Hjalta Þórðarsyni, Sigurjóni Leifssyni, Sigmundi Jóhannessyni og Sigurgeiri Þorsteinssyni fyrir einkar ánægjulegt samstarf og vel unnin störf.  Auk þess ber að þakka framkvæmdastjóra UMSS, honum Elmari Eysteinssyni fyrir vel unnin störf síðasta sumar.

Einnig vil ég þakka aðildarfélögunum fyrir gott samstarf á liðnu ári, en það er gaman að upplifa þann góða anda sem ríkir innan æskulýðs- og íþróttastarfinu þar sem allir eru boðnir og búnir til að leggja fram hjálparhönd.  Auk þess ber að þakka Sveitarstjórn Skagafjarðar, auk Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar, ÍSÍ og UMFÍ fyrir gott samstarf og ánægjuleg kynni.  Sérstakar þakkir fá síðan Kaupfélag Skagfirðinga og FISK Seafood fyrir myndarlegan styrk sem veittur var í tilefni 100 ára afmælis Ungmennasambands Skagafjarðar.

Reikningar UMSS sýna það að stjórn Ungmennasambandsins hefur reynt að vera eins aðhaldssöm og hægt var í rekstri félagsins á yfirstandandi afmælisári sambandsins.

Stjórn UMSS ákvað að koma úthlutun á styrk Sveitarfélagsins Skagafjörður í fastari skorður og sótti um aðgang að T.Í.M. kerfinu fyrir aðildarfélög sín.  Þar með verða upplýsingar um iðkendur, fjölda æfinga, þjálfara og fleiri upplýsingar sem úthlutun styrkja er byggð á, komnar á einn stað og er það von stjórnar UMSS að þetta muni heppnast vel til langs tíma litið.

Á skýrslum stjórnar og sérráða sést að árið 2010 var annasamt þar sem UMSS kom að mörgum skemmtilegum verkefnum. Þar má m.a. nefna fjölmenna ferð ungra íþróttamanna og fjölskyldna þeirra í Borganes á Unglingalandsmót yfir Verslunarmannahelgina, þar sem allir stóðu sig eins og hetjur og var mikil stemming á tjaldsvæði UMSS fram eftir kvöldi.  Allir þátttakendur fengu að gjöf rauðan bol merktan UMSS og var gaman að sjá hvað krakkarnir voru mikið í þeim, enda allir stoltir af sínu Ungmennafélagi.  Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var starfræktur á Sauðárkróki síðasta sumar og hefur hann aldrei verið jafn fjölmennur og búast má við að hann fari stækkandi með hverju árinu sem líður.  Felix námskeið var einnig haldið fyrir stjórnir aðildarfélaganna.  UMSS hélt síðan uppá 100 ára afmæli sitt við hátíðlega athöfn í Húsi Frítímans og Íþróttamaður Skagafjarðar var tilnefndur við hátíðlega athöfn milli jóla og nýjárs auk þess sem rúmlega 40 ungum og efnilegum íþróttamönnum voru veittar viðurkenningar.

Framtíðin er björt í íþrótta- og ungmennastarfinu sem er afar gefandi starf og skemmtilegt að fá að upplifa og taka þátt í.  Mörg skemmtileg verkefni eru í gangi hjá aðildarfélögum UMSS og einnig er UMFÍ afar duglegt að brydda uppá nýjum verkefnum á landsvísu og hvet ég alla til að taka virkan þátt í þeim.

Ágætu félagar, að svo mæltu segi ég þetta 91. ársþing UMSS sett.  Íslandi allt.



 

Nokkur starfsemi var á árinu 2010 en þó klárlega minni en árið á undan. Skráðir stjórnarfundir voru 14, auk funda vegna sérmála. Ársþingið var haldið í Árgarði 25. mars en þar gengu úr stjórn Sigurjón Þórðarson, Helga Eyjólfsdóttir og Jakob Frímann Þorsteinsson. Í þeirra stað komu Hrefna Gerður Björnsdóttir sem formaður og auk hennar Sigurjón Leifsson og Hjalti Þórðarson. Meðal viðburða í þinginu má telja að Snorra Styrkárssyni og Stefáni Öxndal Reynissyni voru veitt starfsmerki UMFÍ fyrir framúrskarandi störf innan hreyfingarinnar. Ekki voru öll fyrirliggjandi mál á þinginu kláruð og skipuð var milliþinganefnd til að fjalla um Lottóreglugerð og leggja fyrir næsta ársþing.

Ungmennasambandið er eins og áður með aðsetur að Víðigrund 5 á Sauðárkróki og deilir þar húsnæði með Tindastóli og UMFÍ. Það fyrirkomulag er mjög gott þó vissulega sé kostnaður við húsnæðið of mikill. Sveitarfélagið hefur hjálpað til með því að greiða húsaleigustyrk sem lækkar leigukostnað bæði hjá UMSS og Tindastóli. Á hverjum tíma þarf alltaf að vera á tánum hvað varðar tilkostnað og lækka hann eins og kostur er. Það verður væntanlega eitt af verkefnum stjórnar á árinu 2011. Elmar Eysteinsson var ráðinn snemma sumars sem starfsmaður UMSS og stóð hann sig vel og eflir það starfið að hafa mann sem getur tekið að sér verkefni fyrir sambandið yfir sumarmánuðina. Þar má nefna Frjálsíþróttaskólann og Unglingalandsmótsundirbúning.

Frjálsíþróttaskóli fyrir krakka og ungmenni á aldrinum 11-18 ára var starfræktur eina viku í júlímánuði á  Sauðárkróki. Þátttakendur komu víða að til að nýta góða frjásíþróttaaðstöðu og þjálfara.  Skólinn er að festa sig í sessi og þessi hugmynd frábær fyrir krakka sem vilja komast að hjá toppþjálfurum við toppaðstæður. Það á ekki síst við krakka á stöðum þar sem aðstaða er lítil sem engin. Það er svo sannarlega von stjórnarmanna að þetta verkefni verði áfram næsta sumar. Færa má UMFÍ sérstakar þakkir fyrir að koma þessu verkefni á koppinn en UMFÍ leggur fjárstyrk til skólans.

Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Borgarnesi sl sumar. Tókst það í alla staði gríðarlega vel og voru Skagfirðingar með þeim allra fjölmennustu á mótinu. Yfir 100 krakkar úr Skagafirði mættu á mótið og urðu sér og sínum til mikils sóma. Þetta eru mótin sem stjórn Ungmennasambandsins leggur gríðarlega miklu áherslu á með stuðningi við keppendur og greiddi m.a. helming þáttökugjaldsins. Vonandi getur sambandið haldið áfram þessum suðningi og létt þarmeð eitthvað undir með sínu fólki. 

Á árinu varð UMSS 100 ára, nánar tiltekið 17. apríl ef sagan er rétt. Ekki var gert margt til að minnast þeirra tímamóta en þó haldin afmælisveisla seinni partinn í nóvember í Húsi Frítímans. Tókst samkoman með miklum ágætum og mættu m.a. fulltrúar frá UMFÍ. Eins var farið í að safna myndum úr sögu íþróttahreyfingarinnar í Skagafirði og er búið að skanna inn og skrá þónokkurn fjölda mynda.

Í desember stóð Ugmennasambandið fyrir kjöri á íþróttamanni Skagafjarðar. Formenn aðildarfélaga auk stjórnar hafa atkvæðisrétt við kjörið. Útnefningin sjálf fór fram í Húsi Frítímans milli jóla og nýárs.

Allmikil umræða hefur farið í hvernig skipta eigi fjármunum sem sveitarfélagið leggur íþróttahreyfingunni til. Minnkandi fjármunir frá sveitarfélaginu gerir slaginn um hverja krónu harðari.  Í höndum stjórnar UMSS er sá beiski kaleikur að finna út hvernig þeim fjármunum er skipt. Vinnuregla sem farið er eftir er að uppistöðu frá árinu 2004 en þá voru fyrst lögð drög að skiptingunni frá hendi UMSS. Nú eru í vinnslu nýjar vinnureglur og verður að koma í ljós hvernig þær verða. Eitt er þó víst að mikilvægast er að sátt sé innan hreyfingarinnar.

Starfsemi sérráða UMSS er getið í samantektum aftar í skýrslunni.

 

 

 

Áritanir

 

Stjórn Ungmennasambands Skagafjarðar staðfestir hér með ársreikning sambandsins fyrir árið 2010 með undirritun sinni.

 

 

 Skagafirði 10. mars 2011

 

       
   
     
 

 

 

 

            ______________________________

                                                           Hrefna Gerður Björnsdóttir

 

 

 

_____________________________             _____________________________

                        Sigurjón Leifsson                                          Sigmundur Jóhannesson             

 

 

 

_____________________________             _____________________________

             Hjalti Þórðarson                                            Sigurgeir Þorsteinsson                                 

 

 

 

 

 

 

 

Við undirritaðir kjörnir skoðunarmenn reikninga Ungmennasambands Skagafjarðar höfum yfirfarið meðfylgjandi ársreikning fyrir árið 2010. Ársreikningurinn samanstendur af rekstrarreikningi ársins 2010 og efnahagsreikningi 31. desember 2010. Við teljum ársreikninginn vera í samræmi við lög og samþykktir sambandsins. Leggjum við því til að hann verði samþykktur.

 

 

Skagafirði 10. mars 2011

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

 

 

 

 

 









Íþróttamaður Skagafjarðar 2010                                                            .

Útnefning á íþróttamanni Skagafjarðar 2010 fór fram við hátíðlega athöfn í Húsi Frítímans þann             28. desember s.l. í samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð. Fjöldi manns voru viðstaddir athöfnina þar sem sú nýbreytni var höfð á að Ungmennafélagið Tindastóll heiðraði einnig sína íþróttamenn.  Alls voru 10 íþróttamenn tilnefndir til Íþróttamanns Skagafjarðar 2010.

 

Íþróttamaður Skagafjarðar árið 2010: Gauti Ásbjörnsson, Tindastóll

Gauti Ásbjörnsson fæddist á Sauðárkróki árið 1985.  Hann hefur frá barnæsku keppt fyrir UMF Tindastól í frjálsíþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, sundi og júdó.  Gauti hefur unnið 33 Íslandsmeistaratitla í frjálsíþróttum í öllum aldursflokkum, í stangarstökki, hástökki og þrístökki. Hann hefur á ferli sínum sett 18 Íslandsmet í stangarstökki í hinum ýmsu aldursflokkum frjálsíþrótta.

Frá árinu 2005 hefur hann búið og æft í Gautaborg, þar sem hann hefur nú nýlokið námi í vélaverkfræði. Hjá sínu sænska frjálsíþróttafélagi, Örgryte, hefur Gauti alla tíð notið leiðsagnar þjálfarans Juha Pekka Dalhöjd, en þeir hafa haldið sambandi síðan þeir kynntust heima á Sauðárkróki, þegar finnski þjálfarinn kom og hélt stangarstökksnámskeið á vegum Frjálsíþróttadeildar Tindastóls árið 1997.

Á keppnistímabilinu innanhúss í upphafi árs bætti Gauti árangur sinn í stangarstökki úr 4,42m (frá 2009) í 4,60m á 3 mótum (4,52m, 4,53m og 4,60m).  Með þessum árangri er Gauti í 1.-3. sæti á “Afrekaskrá FRÍ innanhúss 2009-2010”.

Í júníbyrjun stórbætti Gauti sinn fyrri árangur utanhúss, (4,50m frá 1997), þegar hann stökk 4,65m á móti í Gautaborg.

Gauti var valinn í landslið Íslands sem keppti í Evrópubikar-3.deild á Möltu.  Þar hafnaði Gauti í 4. sæti í 15 þjóða keppni, stökk 4,50m.  Íslenska landsliðið hafnaði einnig í 4. sæti.

Hann kom heim til Íslands til að keppa á meistaramótinu, náði sínum besta árangri og varð Íslandsmeistari í stangarstökki, stökk 4,72m, stökk 20cm hærra en næsti keppandi. Þá hafði Gauti bætt sinn fyrri árangur um 22cm í sumar. Árangurinn í sumar skipar Gauta í 1. sæti á “Afrekaskrá FRÍ utanhúss 2010”.

Þessi árangur er einnig besti árangur Íslendings í stangarstökki í 6 ár, eða síðan Jón Arnar Magnússon stökk 4,90m á Landsmóti UMFÍ 2004  á Sauðárkróki. Árangurinn skipar jafnframt Gauta í 5. sæti á skrá yfir bestu stangarstökkvara Íslendinga frá upphafi.

 

Aðrir sem tilnefndir voru til Íþróttamanns Skagafjarðar:

Baldur Haraldsson, Bílaklúbbur Skagafjarðar

Helgi Rafn Viggósson, Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Hjalti Arnarsson, Sunddeild Tindastóls

Mette Mannseth, Hestamannafélagið Léttfeti

Sólborg Björg Hermundsdóttir, Golfklúbbur Sauðárkróks

Sölvi Sigurðsson, Hestamannafélagið Svaði

UMF Tindastóll - Meistaraflokkur karla.  Knattspyrnudeild Tindastóls

Þórarinn Eymundsson, Hestamannafélagið Stígandi

Þröstur Ásgrímsson, Bílaklúbbur Skagafjarðar




 

Ungt og efnilegt íþróttafólk:

Ungir og efnilegir íþróttamenn voru heiðraðir og fengu allir viðurkenningarskjal því til staðfestingar:

 

Sigríður Eygló Unnarsdóttir, Golfklúbbur Sauðárkróks

Arnar Geir Hjartarsson, Golfklúbbur Sauðárkróks

Elín Magnea Björnsdóttir, Hestamannafélagið Léttfeti

Guðmar Freyr Magnússon, Hestamannafélagið Léttfeti

Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Hestamannafélagið Stígandi

Jón Helgi Sigurgeirsson, Hestamannafélagið Stígandi

Hólmar Björn Birgisson, Hestamannafélagið Svaði

Hafrún Ýr Halldórsdóttir, Hestamannafélagið Svaði

Margrét Helga Sigurbjargardóttir, Ungmennafélagið Hjalti

Nökkvi Már Víðisson, Ungmennafélagið Hjalti

Fanney Birta Þorgilsdóttir, Ungmennafélagið Neisti

Þórgnýr Jónsson, Ungmennafélagið Neisti

Þorgerður Bettína Friðriksdóttir, Ungmenna- og íþróttafélagið Smári

Brynjólfur Birkir Þrastarson, Ungmenna- og íþróttafélagið Smári

Ásgrímur Þór Kjartansson, Sunddeild Tindastóls

Elínborg Margrét Sigfúsdóttir, Sunddeild Tindastóls

Pétur Rúnar Birgisson, Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Pétur Rúnar Birgisson, Knattspyrnudeild Tindastóls

Helga Þórsdóttir, Knattspyrnudeild Tindastóls

Birna María Sigurðardóttir, Skíðadeild Tindastóls

Aron Jónsson, Skíðadeild Tindastóls

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Frjálsíþróttadeild Tindastóls

Jóhann Björn Sigurbjörnsson, Frjálsíþróttadeild Tindastóls

Óli Björn Pétursson, Siglingaklúbburinn Drangey

Tinna Björk Ingvarsdóttir, Siglingaklúbburinn Drangey

 

 



 

Hestaíþróttaráð er samstarf milli Stíganda, Svaða og Léttfeta fyrir hönd UMSS.  Ráðið sér svo um að það sé eitthvað í gangi sem tengist hestaíþróttum.

Við höfum aðallega verið með umsjá yfir tveimur atriðum yfir árið - ásamt að taka þátt í að aðstoða við hestaíþróttir þegar Unglingalandsmót hefur verið haldið í Skagafirði, en þar hefur Hestamannafélagið Léttfeti unnið langmest enda mótið haldið á þeirra félagssvæði.

Íþróttamótið hefur oft verið haldið á Hólum í samstarfi við Hólaskóla. Nemendur á þriðja ári hafa þurft að keppa á mótinu sem hluti af þeirra keppnisreynslu í skólanum. Mótið hefur verið mjög vinsælt og vel sótt. Við höfum einnig reynt að hafa mótið world ranking mót (þar sem keppnisárangur keppenda í öllum löndum sem eru með viðurkennt keppnisfyrirkomulag fyrir íslenska hesta eru skráð), en þar sem dómarakostnaður var allt of mikill hefur það ekki verið reynt aftur. Við höfum reynt að hafa fleiri keppnisgreinar til að prufa eitthvað nýtt, það hafa verið keppnisgreinar sem eru viðurkenndar greinar í FIPO (alþjóðleg reglugerð fyrir keppni tengd íslenskum hestum). Mótið hefur verið haldið oftast fyrstu eða aðra helgina í maí, föstudag til sunnudags.

Árið 2010 var hins vegar öðruvísi en önnur vegna þess að flest hross í landinu fengu kvefpest og var flestum mótum frestað eða aflýst. Héraðsmót UMSS var haldið 21. júlí sem einfalt kvöldmót án úrslíta. Það var mjög léleg skráning (um 30 á móti 60-90 hin árin) og gaf það í skráningatekjur um 45.000 kr. á móti um 324.000 kr. í 2009. Ákveðið var að nota gamla verðlaunapeninga eingöngu fyrir 1. sætið nema í barnaflokki þar sem 3 efstu fengu verðlaun. Þar af leiðandi var aðalkostnaður dómarakostnaður sem var 45.000 kr.

Hestaíþróttaráðið hefur einnig séð um að finna hestaíþróttamann ársins fyrir uppskeruhátíð hestamanna hér fyrir norðan sem hefur verið haldið í október. Þá eru veitt verðlaun fyrir barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk og fullorðinsflokk, sem sagt 4 verðlaun. Það eru knapar sem hafa verið stigahæstir yfir árið í sínum flokki. Árshátíðin 2010 var haldin í Melsgili og var það Ásdís Elvarsdóttir (barnaflokkur), Steindóra Haraldsdóttir (unglingaflokkur) Sigurður Pálsson (ungmennaflokkur) og Þórarinn Eymundsson (fullorðinsflokkur) sem urðu hestaíþróttamenn ársins.

 

Elisabeth Jansen

betajan@simnet.is

862 3788

 

 

 

 

 




Frjálsíþróttaráð UMSS                                                                            .

 

Enn eitt starfsárið er liðið og rétt að líta aðeins um öxl á árangur ársins.

Hiklaust má fullyrða að árið 2010 var gott frjálsíþróttaár hjá UMSS.  Ágætur uppgangur var í starfinu, bæði hvað varðar fjölda iðkenda og einnig árangur í keppnum ársins.  Undirritaður hafði umsjón með þjálfun Tindastóls og Smára og var starfið í Varmahlíð góð viðbót við ágætt starf Tindastóls á Sauðárkróki.  Sem fyrr keppti allt frjálsíþróttafólk héraðsins undir merkjum UMSS í öllum mótum, þó með þeirri undantekningu að keppt var undir merki Norðurlands í Bikarkeppnum fullorðinna bæði utan og innanhúss.  Um það samstarf má segja að þeim samtakamætti fylgir mikill styrkur á fleiri sviðum.   Mótahaldið á Norðurlandi hefur meira verið að færast til þess að við sækjum mótin í auknum mæli hver hjá öðrum.  Það gefur þessum mótum mun skemmtilegra yfirbragð og eykur bæði samkennd og samkeppni félaganna.  Þá er rétt að benda á ótvíræða fjárhagslega hagræðingu að þessu samstarfi sem birtist í ýmsum þáttum starfsins.

Verkefni ársins voru fjölmörg.  Sem fyrr héldum við nokkur Grunnskólamót, sem nær allir Grunnskólanemar í Skagafirði sóttu.  Í Varmahlíð var leikjamót fyrir yngri (1-6) bekki  21.jan, en 28.jan á Sauðárkróki fyrir eldri bekkina (7-10).  Bestum árangri pilta á eldra mótinu náði Jónas Rafn Sigurjónsson, 939 stig fyrir 1,80m í hástökki og jafnar með bestan árangur stúlkna,  Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir, 956 stig fyrir 1,46m í hástökki.  Á þessu móti er stigakeppni milli skóla, sem Varmahlíðarskóli sigraði við mikinn fögnuð með 4.392 stig, 5 stigum meira en Árskóli sem hafði unnið þessa keppni undanfarin ár.  Frábær þátttaka var í mótunum – tæplega 300 þátttakendur samtals.  Sem fyrr vil ég þakka skólunum samstarfið og ekki síst unglingunum sem aðstoðuðu við framkvæmdina, bæði úr FNV og Varmahlíðarskóla.    Grunnskólamót utanhúss var haldið 9 september.  Það mót er fyrir  5 og 8 bekk.  Allir Grunnskólarnir í Skagafirði sendu keppendur auk Grunnskóla Fjallabyggðar.  Bestum árangri pilta náði Sæþór Hinriksson 991 stig fyrir 4,28m í langstökki  og Ragna Vigdís Vésteinsdóttir náði bestum árangri stúlkna 956 stig fyrir 1,43m í hástökki.

Vetrarmótaserían var hefðbundin.   Hófst um miðjan janúar með Reykajvík international, síðan hver helgin eftir aðra með meistaramót í öllum aldursflokkum.  28 febrúar var Bikarkeppni FRí innanhúss þar sem lið Norðurlands varð í 5 sæti af sjö liðum.  Um árangur Meistaramótanna vísa ég til yfirlits um verðlaun – þó má segja að þátttaka okkar var meiri en áður.

Sú nýbreytni var tekin upp að bjóða uppá Góumót UMSS.  Tvö mót 11. og 18. mars.  Mótin voru sett upp á æfingatíma, hugsuð líkt og Fimmtudagsmótin til að gefa sérstaklega yngri þátttakendum færi á að reyna sig á heimavelli.  Þátttakan var með ágætum og áfram verður haldið á þessari braut.

Seinasta mót vetrartímabilsins var á Akureyri 20 mars.  Þangað stefndi góður hópur og gerði sér dagamun eftir keppni. Ég hef alla tíð lagt mikið uppúr sterkri félagsheild og stór partur þess að skapa hana eru keppnisferðirnar. Við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt saman utan keppni og styrkjum þannig tengslin innan hópsins.

Sumarkeppnistímabilið hófst í lok maí með Meistaramótinu á fjölþrautum.  Síðan strax í byrjun júní (12-13) var MÍ 11-14 ára í Kópavogi. Tímasetning mótsins var harðlega gagnrýnd, sérstaklega af landsbyggðafélögunum, en mótið verður haldið seinast í júní í ár.  Segja má að mótið hafi rignt niður fyrri daginn, en fresta varð hluta keppni þann daginn vegna veðurs.  Sem fyrr vísa ég til yfirlits um verðlaun varðandi árangur Meistaramótanna, en vildi þó segja að frábær árangur 12 ára stelpna UMSS vakti athygli, en þær sigruðu sinn flokk sem fyrr, þrátt fyrir að vera aðeins 4.  Bæta má við að þær unnu sigur í flokknum enn á ný á nýafstöðnu Meistaramóti 11-14 ára innanhúss, voru þó aðeins 3 þar af rúmlega 60 keppendum. 

 


 

Við sóttum venju fremur mörg mót utanhéraðs á árinu.

Sumarleikar HSÞ á Laugum 28.-29. júní ágætur hópur náði góðum árangri við frábærar aðstæður.  Meistaramót Íslands á laugardalsvelli 10-11 júlí og MÍ 15-22 ára  í Hafnarfirð 17-18 júlíi.  Á bæði mótin fór góður hópur frá UMSS, náði ágætum árangri í prýðilegu veðri, sem ekki er alvanalegt á þeim landshlutanum.  Sem fyrr vísa ég til yfirlits um árangurinn.

Stórmót UFA var á Akureyri 24.-25. júlí.  Gott mót og prýðilegur árangur.  Mótið var stigakeppni milli félaganna á Noðrurlandi.  Við urðum í 2 sæti, aðeins 10 stigum eftir UFA.

Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um Verslunarmannahelgina.  Enn á ný veðurblíða.  Okkar fólk gerði góða hluti í skemmtilegri keppni.  Fríða Ísabel Friðriksdóttir (12) sigraði 600m hlaup, Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir (12) sigraði hástökk og þær ásamt Hrafnhildi Gunnarsdóttur og Hafdís Lind Sigurjónsdóttir unnu 4x100m boðhlaupið (12). 

Þristurinn var haldinn á Blönduósi 11. ágúst.  UMSS vann nokkuð öruggan sigur í stigakeppninni.   Þetta mót finnst mér mjög mikilvægt, þar sem það styrkir tengslin í vestur (USAH og USVH).

Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri var á Laugum 22. ágúst.  Við lögðum upp í ferðalagið frá Krók á laugardagsmorgunn og notuðum þann dag til að leika okkur í Mývatnssveit (Jarðböð ofl).  Ekki blés byrlega á sunnudagsmorgun, 3°C og gekk á með norðanrigningarhriðjum.  Keppni hófst kl 13.00 og nokkuð hafði lægt þá og meðan mótið stóð rigndi lítið, en var kalt.  Þrátt fyrir vosbúð og kulda náist ágætur árangur í keppninni.  Við enduðum í 6 sæti af 10 liðum.

Mótahald okkar á heimavelli var hefðbundið.  Fyrst Fimmtarþrautarmót UMSS 18 júní.  Sigurvegarar þrautanna urðu:  Elvar Örn Sigurðsson, UFA sigraði karlaflokkinn með 2.842 stig, Þorsteinn Ægir Óttarsson, sveinaflokkinn með 2.343 stig.  Heiðrún Dís Stefánsdóttir, UFA kvennaflokkinn með 1.517 stig.  Arlinda Fejzulahi, UMSE sigraði meyjaflokkinn með 1.856.  Bestum árangri sveina/karla náði Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS, 1010 stig fyrir 24,64sek í 200m hlaupi.  Bestum árangri meyja/kvenna náði  Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir UMSS, 932 stig fyri 4,80m í langstökki.

Þá voru tvö Fimmtudagsmót haldin – hið fyrra 15. júlí og síðara 19. ágúst.  Sem fyrr var ágæt þátttaka og almenn ánægja með þessi mót.  Ma komu nokkrir

keppendur frá Glóa á Siglufirði á seinna mótið.  Eg


 

er algerlega sannfærður um ágæti þessara móta, sem gefa sérstaklega yngri krökkunum kærkomna tilbreytingu og tækifæri til keppni á heimavelli við þægilegar aðstæður.

Bikarkeppni FRÍ 1 deild var haldin á Sauðárkróki 13.-14. ágúst.  Sem fyrr tefldum við fram sameiginlegu liði Norðlendinga í keppninni og lentum við í 4 sæti sex liða. 

Á haustdögum tókum ið þátt í Silfurleikum ÍR 20. nóv og Haustmóti UFA 27. nóv.  Okkar keppendur stóðu sig með stakri prýði á mótunum báðum og bættu margir árangur sinn verulega.

Seinasta mót ársins var Jólamót UMSS, að þessu sinni haldi 18. desember.  Þátttaka var betri en oftast áður og prýðilegur árangur í sumum greinum.  Nokkrir keppendur komu frá UMSE og UFA.  Það setur alltaf skemmtilegan svip á mótin að fá keppendur frá öðrum félögum með. 

Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks var haldin á Hótel Varmahlíð 28. nóv.  Þar voru sæmd viðurkenningum þau sem þóttu skara framur á árinu.  Frjálsíþróttakarl ársins var valinn Gauti Ásbjörnsson.   Frjálsíþróttakona ársins Laufey Rún Harðardóttir.  Efnilegustu unglingarnir 16 ára og yngri  Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.  Viðurkenningar 11-14 ára:  Óvæntasta afrek, Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.  Mestu framfarir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Fríða Ísabel Friðriksdóttir. Besta ástundun, Rúnar Ingi Stefánsson og Sveinbjörn Óli Svavarsson.  Viðurkenningar 15 ára og eldri:  Óvæntasta afrek,  Gauti Ásbjörnsson.  Mestu framfarir, Árni Rúnar Hrólfsson og Guðrún Ósk Gestsdóttir.  Besta ástundun, Jóhann Björn Sigurbjörnson og Árni Rúnar Hrólfsson

Um seinustu áramót var aldursflokkaskipan og þyngdum kastáhalda breytt til samræmis við reglur á Norðurlöndum.  Þá var einnig ákveðið að hætta metaskráningum 14 ára og yngri, þó áfram verði haldið saman árlegum árangri aldursflokkanna.  Þessar breytingar hafa í för með sér nokkrar áherslubreytingar sem eiga eftir að koma betur í ljós. 

Framundan er viðburðaríkt ár og ma stefnir stór hópur skagfirskra ungmenna á Gautaborgaleika í byrjun júlí.  Það verður án efa hápunktur ársins hjá mörgum sem þangað fara.  Allt stefnir í enn eitt gott frjálsíþróttaár hjá UMSS.

Ég vil að lokum þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við starfið á árinu.  Eins vil ég þakka samstarfsfólki mínu í Frjálsíþróttaráði, Friðrik Steinssyni, formanni, Þórey Gunnarsdóttur og Guðríði Magnúsdóttur samstarfið nú sem fyrr. 

Höldum áfram merki UMSS með stolti hátt á lofti. 

Gunnar Sigurðsson

 

Frjálsíþróttaskóli 2009

Þriðja starfsár frjálsíþróttaskólans gekk vel sem fyrr. Undirritaður kemur inn í skólann síðastliðið sumar og aðstoðaði Gunnar Sigurðsson við starfsemi hans. Þátttakan þetta árið var mjög góð, tæplega 30 krakkar mættir til leiks. Skólinn var settur upp sem fyrr með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Gist var í Árskóla. Elmar Eysteinsson framkvæmdastjóri UMSS sá um ýmsan undirbúning, m.a. sá hann um morgunmatinn. Ég og Elmar skiptumst á að gista með þeim. Sóley Skarphéðinsdóttir eldaði handa okkur í hádeginu og á kvöldin, borðað var í Framsóknarhúsinu.

Dagskráin byrjaði um hádegi á mánudegi 19 júlí og fór skólinn vel af stað, mikið var af efnilegum krökkum í hópnum. Það voru tvær frjálsíþróttaæfingar á dag. Æfingarnar seinni partinn voru sameiginlegar með æfingum Frjálsíþróttadeildar Tindastóls.  Á milli æfinga var fjölbreytt dagskrá. Eins og síðasta ár bauð sveitarfélagið Skagafjörður öllum þátttakendum frítt í sund, alla vikuna. Farið var í hús björgunarsveitarinnar þar sem krakkarnir fengu að spreyta sig á klifurveggnum. Gaman var að fylgjast með þeim og þau stóðu sig vel. Einnig var farið í siglingu í höfninni sem vakti mikla lukku. Fimleikafélagið Gerpla var á Sauðárkróki þessa viku og krakkarnir í frjálsíþróttaskólanum fóru í fimleikakennslu hjá þeim. Það var gaman að fylgjast með krökkunum í fimleikum og gaman að sjá hvað þau voru fim. Á fimmtudeginum var haldið mót á frjálsíþróttavellinum. Mótið gekk vel krakkarnir stóðu sig með prýði. Á föstudeginum var farið í leiki og dagskránni lauk um hádegi.

Ég er ánægður með Frjálsíþróttaskólann og mér finnst aðstaðan á Króknum mjög góð og til fyrirmyndar.

Árni Geir Sigurbjörnsson



 

Þjónustumiðstöð UMFÍ

Ungmennafélag Íslands flutti í nýjar höfuðstöðvar hreyfingarinnar í Sigtún 42 í febrúar 2010. Í þjónustumiðstöðinni er haldið utan um starf UMFÍ og veitt ýmiss þjónustu við aðildarfélögin og félagsmenn. Þar er einnig aðstaða til fundahalda sem er nýtt af hinum ýmsu nefndum til nefndarstarfa, funda o.fl.

Ungmennafélag Íslands rekur þjónustumiðstöð að Víðigrund 5 á Sauðárkróki. Skrifstofa Evrópu unga fólksins er með aðsetur í þjónustumiðstöð UMFÍ.

Forvarnadagurinn

Forvarnadagurinn var haldinn í fjórða sinn 3. nóvember 2010 í grunnskólum um land allt. Eins og áður er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining í Háskólanum í Reykjavík, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og með stuðningi frá lyfjafyrirtækinu Actavis.

Þrastaskógur

Þrastaskógarnefnd hélt fund seinni partinn í apríl 2010 þar sem m.a. var rætt um hlutverk skógarins. Nefndin var sammála um að nýta ætti skóginn frekar sem útivistarsvæði en tjaldstæði.

Skinfaxi

Eins og undanfarin ár verða tölublöðin fjögur á þessu ári. Blaðið fór í góða dreifingu á síðasta ári en allir grunn- og framhaldsskólar landsins fengu blaðið. Stærsta blaðið 2010 var að mestu helgað 13. Unglingalandsmóti UMFÍ.

Ungt fólk og lýðræði

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var haldin í annað sinn á Laugum í Dalasýslu dagana 7.-9. apríl sl. Um 50 þátttakendur voru á ráðstefnunni.

37. sambandsráðsfundur UMFÍ á Egilsstöðum

37. sambandsráðsfundur Ungmennafélags Íslands var haldinn á Egilsstöðum 16. október 2010. Á fundinum var lögð fram vegleg ársskýrsla þar sem gat að líta yfirlit yfir hið fjölbreytta starf sem unnið er innan hreyfingarinnar. Þó nokkrar umræður urðu um reikninga UMFÍ. Um 40 fulltrúar héraðssambanda sóttu fundinn.

Hvatningarverðlaun UMFÍ

Hvatningarverðlaun UMFÍ 2010 voru afhent á 37. Sambandsráðsfundi UMFÍ á Egilsstöðum 16. október. Verðlaunin féllu í skaut Ungmennasambands Eyjarfjarðar, UMSE, fyrir öflugt og metnaðarfullt íþrótta- og ungmennafélagsstarf á breiðum grunni.

Samráðsfundur í Borgarnesi

Samráðsfundur Ungmennafélags Íslands var haldin í Borgarnesi 8. maí 2010. Fundurinn var vel sóttur en yfir 50 fulltrúar sambandsaðila sátu samráðsfundinn.


 

Meistaradeild UMFÍ

Ungmennafélag Íslands og Landssamband hestamanna stóðu saman að meistaradeild UMFÍ í hesta íþróttum annað árið í röð. Þrjú mót voru haldin og fóru þau öll fram í Rangárhöllinni við Hellu.

Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum

Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum eru fyrir nemendur  í 9. bekk grunnskóla. Búðirnar hafa verið starfræktar frá árinu 2005. Nemendum hefur fjölgað jafnt og þétt síðan en nokkur breyting varð á 2009 í kjölfar efnahagshrunsins. Nemendum fjölgaði umtalsvert 2010 og skráningar í vetur eru mjög góðar.

Lýðháskólar

UMFÍ er í samstarfi við sjö íþróttalýðháskóla í Danmörku og styrkir árlega íslenska nemendur til náms í skólunum. UMFÍ styrkti nemendur sem komu víðsvegar af landinu. 

ISCA

Stjórnarfundur ISCA fór fram í Reykjavík 21. Ágúst. ISCA eru samtök um almenningsíþróttir og menningu hinna ýmsu landa í heiminum. Þá var aðalfundur ISCA haldinn í Frankfurt 22. október.

NSU

UMFÍ er aðili að NSU sem stendur fyrir Nordisk samorganisasjon for Ungdomsarbeide. Á aðalfundi sem haldinn var í Kaupmannahöfn í maí 2010 var Anna Möller endurkjörin formaður samtakanna. Auk hennar eru í stjórn Björg Jakobsdóttir og Jörgen Nilsen fyrir hönd UMFÍ.

Ungmennavika NSU var haldin í Sydslesvig dagana 18.–25. júlí 2010 og þar átti UMFÍ sex fulltrúa ásamt fararstjóra Jörgen Nilsen. 

VNU

VNU stendur fyrir Vest Nordisk Ungdomsforum og er samstarfsvettvangur þriggja samtaka í þremur löndum, UMFÍ á Íslandi, Sorlak á Grænlandi og FUR í Færeyjum. 

13.Unglingalandsmót UMFÍ

13. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Borgarnesi 29.júlí–1.ágúst 2010. 

Um eitt þúsund og sjöhundruð keppendur mættu til leiks á þetta fjölmennasta mót frá upphafi. Keppt var í tíu íþróttagreinum og þurfti að hefja leik á fimmtudegi. Áætlaður fjöldi gesta var á bilinu tíu til tólf þúsund. Mótahaldið gekk afar vel fyrir sig og veðrið lék við mótsgesti.  HSÞ var útnefnt fyrirmyndarfélagið að þessu sinni.

Umhverfismál

Ómar Ragnarsson fékk umhverfisverðlaun UMFÍ og Pokasjóðs og voru þau afhent í júlí 2010 við Nauthól í Nauthólsvík.

Ganga.is

Stöðugt er verið að bæta inn gönguleiðum og fréttum inn á vefsíðuna ganga.is. Í vor var unnið að nýju skráningarkerfi fyrir verkefnið Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! Á vefsíðunni geta einstaklingar, fyrirtæki og hópar skráð inn þá hreyfingu sem þeir hafa stundað og þannig haldið utan um hreyfinguna sína í sérstöku hreyfingardagatali.

 

 


 

Göngubók

Í byrjun sumars kom út bókin Göngum um Ísland. Bókin er 128 blaðsíður með 278 stuttum gönguleiðum víðsvegar um landið og 24 fjöllum sem eru í boði í verkefninu Fjölskyldan á fjallið.

Fjölskyldan á fjallið

Fjölskyldan á fjallið er verkefni sem unnið er með sambandsaðilum UMFÍ. Sambandsaðilarnir tilnefna  eitt fjall eða fleiri á sínu svæði sem auðvelt er fyrir alla fjölskylduna að ganga á. Upp á öllum fjöllunum er að finna gestabók í merktum póstkassa.

Hættu að hanga! Komdu að, hjóla synda eða ganga!

Verkefnið Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! hófst með fjölskyldudegi UMFÍ þann 5. júní 2010 að Miðfelli í Hrunamannahreppi. Tilgangur verkefnisins er að hvetja almenning til að stund heilbrigða hreyfingu sem og að ýta undir auknar samverustundir fjölskyldunnar.

Helgi á göngu

Helgi á göngu er verkefni til minningar um gönguforkólfinn og ungmennafélagann Helga Magnús Arngrímsson. 

Grunnskólaganga UMFÍ

Grunnskólaganga UMFÍ var hluti af verkefni Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga. Markmið göngudagsins er að vekja grunnskólabörn til umhugsunar um mikilvægi hreyfingar og gera þau meðvitaðri um þær gönguleiðir sem eru í nágrenni skólans og í sveitarfélaginu.

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var haldinn í þriðja sinn í sumar og var fyrirkomulag skólans með sama sniði og verið hefur síðustu ár. Í sumar var skólinn haldinn á fimm stöðum á landinu í umsjá HSÞ á Laugum í Reykjadal, UMSB í Borgarnesi, UÍA Egilsstöðum, HSK á Laugarvatni og UMSS á Sauðárkróki.

FÁÍA

Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra hefur staðið fyrir fjölda námskeiða og móta fyrir eldri ungmennafélaga. Komið hefur verið upp góðri aðstöðu fyrir starfsemi þeirra í nýjum höfuðstöðvum UMFÍ og er hún til mikils sóma.

Ungmennaráð

Starfið hefur verið öflugt hjá ungmennaráði UMFÍ undanfarið. Haft var samband við forvarnarráð framhaldsskólanna og aðra tengiliði og héldum vímulausa helgi fyrir fólk á framhaldsskóla aldri þar sem að allir gátu komið og haft það gott saman. Einnig átti ungmennaráðið virkan þátt í skipulagningu ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Laugum á Sælingsdal.

Leiðtogaskólinn

Leiðtogaskólinn heldur utanum og skipuleggur námskeið hreyfingarinnar. Lögð er áhersla á að hafa í boði námskeið sem gagnast félagsmönnum. Megináhersla hefur verið lögð á námskeiðið Sýndu hvað í þér býr.

Á námskeiðinu er farið yfir ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundarsköpum. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Almenn ánægja er með námskeiðin og þykja þau bæði lærdómsrík og skemmtileg.

 



 

Þann 30. mars 2010 hélt Bílaklúbbur Skagafjarðar, hér eftir BS, aðalfund.  Á honum voru  hefðbundin aðalfundarstörf og ný stjórn tók við.  Félagsmenn eru 61 talsins.

Í stjórn BS sitja: Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir formaður, Guðný Guðmarsdóttir gjaldkeri, Stefanía Sif Traustadóttir ritari, Rúnar Gíslason og Sigurpáll Aðalsteinsson meðstjórnendur.

Í varastjórn eru Adam Smári Hermannsson og Baldur Haraldsson.Sumarið var notað í undirbúning fyrir Skagafjarðarrall 2010 sem er Íslandsmeistarakeppni  og var haldin 24. júli. Skráðar voru 16 áhafnir til leiks og náðu allar áhafnir nema ein að klára rallið, sem telst mjög gott. Um kvöldið var verðlaunaafhending, kvöldverður og rallý dansleikur. Rallið gekk vel og  var almenn ánægja  með skipulag rallsins og rallið sjálft .  Það óvenjulega gerðist að fella þurfti út eina leið vegna veðurblíðu en keppnisstjórn taldi ekki öruggt að keyra hana vegna þess hve mikill þurrkur hafði verið og vegurinn því of þurr.

Þann 28. ágúst hélt svo BS sandspyrnu í fyrsta skipti í mörg ár í samstarfi við BA (Bílaklúbb Akureyrar).  Gekk hún mjög vel.

Í desember voru tveir BS menn tilnefndir í hóp í val fyrir íþróttamann Skagafjarðar en þeir voru Baldur Haraldsson sem keppti í ralli og Þröstur Ásgrímsson sem keppti í sandspyrnu.

Á árinu eignaðist  BS sínar eigin klukkur og eigin starfsmannavesti. Einning ramp  sem er verðlaunapallur sem keppnisbílar keyra upp á í endamarki.

Samstarf á milli bílaklúbba hefur aukist og hafa formannafundir sem teknir voru upp aftur 2009 haldið áfram.  Einnig hefur samstarf á milli klúbba t.d. við keppnishald aukist og gengið vel.

Hluti af starfsemi Bílaklúbbsins felst í samstarfi á vettvangi akstursíþrótta.  Þannig tóku félagar BS áfram virkan þátt í vinnu við reglubreytingar en allar keppnisreglur í ralli eru nú til endurskoðunar, bæði hvað varðar keppnishald og útbúnað bifreiða í öllum flokkum.

Gert er ráð fyrir að árið 2011 verði hefðbundið í starfi BS. 

Skagafjarðarrall 2011 sem er hluti af Íslandsmeistarakeppni  í ralli verður haldin 25. júlí og áfram verður unnið með mál er varða innri uppbyggingu félagsins.  Nýtt verkefni er nú í skoðun hjá BS að taka þátt í að halda vetrarsprett og verður það auglýst ef það gengur eftir.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem lagt hafa starfi félagsins lið á undanförnu ári.

F.h BS Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir

 

 



 

Á aðalfundi sem haldinn var 9. desember 2010 voru eftirtaldir kosnir í stjórn. Pétur Friðjónsson formaður, Unnar Ingvarsson varaformaður, Ragnheiður Matthíasdóttir gjaldkeri, Dagbjört Hermundardóttir ritari, Bjarni Jónasson formaður mótanefndar, Hjörtur Geirmundsson formaður unglinganefndar, Björn Sigurðsson formaður vallarnefndar. Vallarstjóri er Guðmundur Þór Árnason.

Félagatal; 1. desember 2010 þá eru félagar í GSS samtals 133.

Fjármál; strangt aðhald hefur verið haft að leiðarljósi í rekstri félagsins og því ekki verið um neinar fjárfestingar á búnaði né byggingum þetta árið. Rekstrartekjur jukust um u.þ.b. 260þús. og rekstrargjöld drógust saman um u.þ.b. 270þús. Hagnaður ársins er um 1,5millj. miðað við tæplega 2,6millj.kr. tap árið áður.

Upplýsingagjöf; á árinu hafa félagar verið upplýstir um starf stjórnar með netfréttabréfum. Á 40ára afmælishófi 6.nóvember sl. var opnuð ný heimasíðu undir léninu www.gss.is . Unglinganefndin verður áfram með síðu undir http://gss.blog.is þar sem myndir og fréttir af unglingastarfinu er að finna.

Afmælisárið: Völlurinn var frábærlega hirtur af vallarstjóra og hans mönnum og ber að hrósa þeim fyrir vel unnin störf. í tilefni 40 ára afmælis GSS var ákveðið að halda afmælismót og einnig var ákveðið að halda upp á afmælisdaginn með veislu 6.nóvember. Að því tilefni heiðraði GSÍ nokkra félaga og Gullmerki GSÍ hlutu; Magnús Rögnvaldsson, fyrir frumkvöðlastarf við uppbyggingu klúbbsins. Sigurjón Gestsson, fyrir störf er lúta að umhverfismálum hjá klúbbnum og Hjörtur Geirmundsson fyrir ríflega 20 ára starf innan stjórnar klúbbsins. Silfurmerki GSÍ hlutu þau Árný Árnadóttir fyrir að vera leiðandi í kvennagolfi, kynningarstarf og kennslu og Ásgeir Einarsson fyrir störf varðandi framtíðaruppbyggingu golfsvæðisins. Steinar Skarphéðinsson gerður að heiðursfélaga GSS , en hann var fremstur í hópi þeirra, sem unnu gríðarlegt starf við uppbyggingu golfvallarins að Hlíðarenda. Þá má geta þess að Rafn Ingi Rafnsson hlaut sértök verðlaun og bikar, svokallaðan Háttvísibikar, sem veittur er þeim kylfingi sem talinn er hafa sýnt af sér sanna íþróttamennsku og háttvísi. Bikarinn er farandbikar og verður veittur árlega.

Mótahald; var með svipuðu sniði og undanfarin sumur. Ólafshús var aðalstyrktaraðili Miðvikudagsmótaraðarinnar. Stærsta mót ársins var unglingamótið Nýprent open. Þakka ber fyrirtækjum fyrir frábæran stuðning nú sem endranær við mótahald.

Mannaráðningar; Sami starfsmannafjöldi var þetta árið, auk vallarstjóra voru þrír vinnumenn ráðnir til starfa við fegrun, snyrtingu og viðhald á vellinum, ásamt því að uppfylla þjónustusamning við sveitarfélagið. Fimm starfsmenn unnu á vellinum síðastliðið sumar, auk fjölda unglinga, sem unnu þar í samvinnu við Vinnuskóla Skagafjarðar. Þjálfari unglinga var Örn Sölvi Halldórsson.

Fyrirhugað er að halda enn fleiri golfmót á Hlíðarendavelli á næsta sumri. Þar á meðal er Icelandair mót og nú liggur fyrir að keppt verður í annari deild kvenna á Sauðárkróki í ágústmánuði. Þá hafa verið gerðir samstarfssamningar við Icelandair og Skjá golf og eru líkur til að ferðamönnum muni fjölga að mun á Hlíðarendavelli næsta sumar.

Vatnsleysi hefur verið viðvarandi vandamál á Hlíðarenda. Það er alveg ljóst að ef við ætlum að halda vellinum í þeim gæðaflokki sem hann er, verðum við að fá vatn. Eru tvær leiðir sem koma til greina og er verið að tala um milljónaframkvæmdir hvor leiðin sem farin er. Einnig þarf að huga að húsnæðiskosti og tækjabúnaði. Huga þarf að umhverfismálum á og við völlinn og taka þannig þátt í sameiginlegu átaki allra golfklúbba á Íslandi.

Stjórn GSS þakkar öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg, styrkt klúbbinn með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir þeirra framlag.

Pétur Friðjónsson, formaður GSS



 

Árið 2010 var einkennilegt ár hjá hestamönnum.

Hestapestin svokallaða setti allt starf úr skorðum og olli alls kyns vandræðum og tjóni.

Mótahald og hefðbundin starfsemi hestamannafélaga fór úr skorðum.

Þar ber hæst að Landsmót hestamanna sem halda átti á Vindheimamelum var frestað. Undirbúningur fyrir mótið var á lokastigi og hafði allmiklu verið til kostað. Einnig hafði drjúgur tími farið í vinnu við skipulagnigu og þá þætti sem að svona stóru móti tilheyra.Voru það mikil vonbrigði að sjá þá vinnu alla nánast fara fyrir bí.

En margt var samt gert á árinu og sýndu hestamenn mikla þrautseigju þrátt fyrir erfiðleika. Áhugi þeirra sem þessa íþrótt stunda er gríðarlegur og var aðdáunarvert að sjá hvernig  menn elfdust og þjöppuðu sér saman við mótlætið.

Á vetrarmánuðum var reiðkennsla mjög öflug og fjöldi ungmenna nýttu sér hana.

Félagsmót og firmakeppni voru haldnar þótt á öðrum tíma væri en venjulega.

Fákaflug var haldið á Melunum um Verslunarmannahelgina.

Hestaferðir voru farnar á vegum félagsins sem tókust vel í alla staði.

En það er ljóst að árinu 2010 verður minnst meðal hestamanna sem ári vandræða, og alls kyns tjóns sem af pestinni hlutust.

En hestamenn horfa bjartsýnir fram á veginn og eru á fullu við að undirbúa Landsmót á Vindheimamelum sem haldið verður nú í sumar.

 

Guðmundur Sveinsson

 

 

Árið 2010 var nokkuð sérstakt hjá hestamönnum.

Yfir vetramánuðina var reiðkennsla í boði fyrir alla aldurshópa og sérstök áhersla lögð á börn og unglinga. Kennarar voru Heiðrún Eymundsdóttir og Pétur Sveinsson með helgarkennslu. Tvo daga í viku voru þeir Ingimar Ingimarsson og Elvar Einarsson.

Varmahlíðarskóli tók þátt í grunnskólakepninni og stóðu sig alveg frábærlega. Það var haldið‚ Ísmót 28 febrúar á Vatnshlíðarvatni og voru yfir 80 skráningar á öllum aldri. Verðlaunaafending var á hótelinu í Varmahlíð með heitu súkkulaði og meðlæti.

Allt var á fullu að undirbúa landsmót að Vindheimamelum þegar vágesturinn kom nánast í hvert hesthús. Það fyrsta sem var aflýst vegna hestaveiki var Æskan og hesturinn sem átti að vera í Svaðastaðahöll 1.maí, svo öll mót í júní og júlí og þar á meðal landsmóti. Það var blásið til lúðra aftur þegar kom að Fákaflugi, en það voru mikil afföll bæði af hrossum og knöpum.

Félagsferð Stíganda var farin um miðjan ágúst og tókst alveg með ágætum. Uppskeruhátíð hestamanna sem auglýst var féll niður, bæði vegna veðurs og kannski var hestaveikin komin í mannfólkið.Vonum við að það verði betra ár 2011.

Íþróttamaður ársins var kosinn Þórarinn Eymundsson. Efnilegustu unglingarnir Jón Helgi Sigurgeirsson og Ásdís Ósk Elvarsdóttir.

Fh.Stíganda: Jónína Stefánsdóttir



 

Árið 2010 var einstakt ár í sögu hestamennsku á Íslandi. Einstakt, já vonandi verður aldrei annað svona ár. Síðla vetrar varð vart við slæma pest í hrossum á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi.  Í lok apríl voru hross víða orðin veik hér fyrir norðan.  Ýmsar kenningar voru í gangi um hvernig pestin  smitast. Talið var æskilegt að draga úr samneyti hrossa á þessu stigi málsins.  Ákveðið var að aflýsa  skemmtuninni  Æskan og hesturinn sem er nokkurs konar uppskeruhátíð sameiginlega barnastarfsins. Þetta var fyrsta stóra hestamannahátíðin sem aflýst var. Fjölmargar aðrar fylgdu svo í kjölfarið

Barnastarfið var eins og áður í samvinnu við Stíganda og Léttfeta í Svaðastaðahöllinni.  Áhugi barna er  mikill og fer vaxandi . Einkum þegar gatan er greið.  Árið 2010 var boðið uppá að leigja hest með öllum búnaði.  Þetta fyrirkomulag gefur mörgum börnum kost á að stunda hestamennskuna án þess að leggja út í mikinn stofnkostnað. Börnin tóku líka þátt í grunnskólamótinu og höfðu gaman af.

Reiðnámskeiðum Svaða fyrir börn og unglinga var frestað í byrjun sumars.  Þeim var svo aflýst þegar ljóst var að hestakosturinn yrði í veikindafríi þetta sumar.

Félagsmóti Svaða sem ráðgert var í tengslum við Jónsmessuhátíðina var aflýst.  En Svaðafélagar tóku þátt í undirbúningi og störfuðu í þágu síns félags á hátíðinni. Gerður var góður rómur að þeirra störfum sem snéri að afþreyingu barna og unglinga. 

Landsmóti  2010 var frestað um eitt ár eins og kunnugt er.  Af þeim sökum var sameiginlegu úrtökumóti Svaða og Stíganda einnig frestað.  Ljóst er að margt þarf að endurvinna í undirbúningi L.M. til að koma öllu í gang aftur. Reiknað var með 12-14 þúsund manns.  Við skulum vona að það fari nærri lagi.

Fákaflug var haldið um verslunarmannahelgina.  Svaði lagði sitt af mörkum í samvinnu við Stíganda og Léttfeta.  Stóðu vonir til að hrista hestamenn upp úr ládeyðunni sem og tókst ágætlega.

Hestadagar voru haldnir þriðju helgi í ágúst á Hofsósi. Svaði var gestgjafi og tók á móti Glæsis- og Gnýfaramönnum eins og hefð gerið ráð fyrir.  Það var vel sótt, eitthvað um 80 manns. Þeir sem ekki áttu fríska hesta komu þá á fjórhjóladrifnu hestöflunum.

Í ár verður haldið í hefðbundna viðburði og námskeið.  Eins eru ýmsar hugmyndir í gangi, bæði til gagns og gamans. Það verður sagt frá því í næstu skýrslu.

Fyrir hönd stjórnar:

Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir formaður.

 

 



 

Æfingar byrja venjulega svona viku af janúar og hefjast með undirbúningi og æfingum fyrir Þorramótið sem við höfum haldið núna um árabil með þátttöku Kiwanismanna og sveitastjórn í íþróttahúsinu á Sauðárkrók í febrúar.

Í mars er yfirleitt Íslandsmót í Boccia og er það  sveitakeppni á vegum Íf og hefur það verið haldið í Reykjavík.  Við höfum farið með 3-4 sveitir og hefur gengið ágætlega á flestum mótum.  Í þessari ferð komum við heim með í farteskinu  gull fyrir 1. sæti í keppni hjá flokki   BC  1-4.

Um mánaðarmótin apríl-maí  er árlegt Hængsmót á Akureyri þar er keppt bæði í einstakling- og sveitakeppni og þaðan komu við með gull í BC 1-4 flokknum.

Þegar komið er fram í september þá hefjast æfingar að nýju og þá með undirbúningi að Íslandsmóti í Boccia einstaklingskeppni og var það haldið í Keflavík,  þar stóðu keppendur sig með ágætum og nældu  þeir sér í gull og brons í 2-deild og svo gull í BC 1-4.

Síðasta mótið er svo norðurlandsmót og var það haldið á Siglufirði í þetta sinn og ekki getum við kvartað undan keppendum okkar þar þar sem  tvær sveitir  komust í úrslit þó þau næðu ekki verðlaunum og svo fengu flokkur BC 1-4 gull og silfur.

Æfingar hjá okkur eru einu sinni í viku  á mánudögum kl 18.40—20.20 það er tveir samliggjandi tímar , þar sem það hentar okkur ágætlega á æfingum eru yfirleitt  svona 18-20 einstaklingar, það er 12 fatlaðir og  6-8 eldri borgarar.

Í lok hvers móts er yfirleitt  komið saman og borðað og dansað og enginn sér þar að hörkukeppni hafi verið í gangi hjá þessum hóp þar sem allir eru virkilega góðir vinir og hlakka venjulegast til næsta móts.  Hver ferð sem við förum í skilur alltaf eftir svo góðar minningar að öll þreyta sem leggst á mann hverfur,  því það getur enginn sagt að þessar ferðir séu áreynslulausar þar sem einstaklingar eru með misjafnar þarfir bæði líkamlegar  og andlegar. En þegar upp er staðið þá eru bara skemmtilegu minningarnar eftir.

Að endingu vil ég þakka þeim aðilum sem hafa verið okkur til aðstoðar í ferðum og á æfingum alla hjálpina. Eigið góðar stundir.

Salmína S. Tavsen. Formaður.

 



 

Stjórn:

Jakob Fríman Þorsteinsson     Formaður.

Hallbjörn Ægir Björnsson       Gjaldkeri.

Hjördís E Guðjónsdóttir          Ritari.

Steinunn Rósa Guðmundsdóttir          Meðstjórnandi.

Ingvar Páll Ingvarsson            Meðstjórnandi.

 

Þjálfarar og aðstoðarfólk.       Menntun:

Jakob Fríman Þorsteinsson.    Þjálfaranámskeið SÍL  Bs. í Útivistar og frístunda kennslu

Hallbjörn Ægir Björnsson.      Þjálfaranámskeið SÍL.

Timm.                                     Þjálfaranámskeið SÍL. ( Siglingasamband Íslands ).

Ísak Atli Finnbogason.                        Sjóbjörgun I og II og meðferð slöngubáta. Landsbjörg.

Steinunn Rósa Guðmundsdóttir.        

Ingvar Páll Ingvarsson.

Kári H Árnason.

Nokkrar tölulegar staðreyndir.

Fjöldi félagsmanna 47, fjöldi iðkenda yngri en 18 ára 55,  fjöldi iðkenda eldri en 18 ára 21.

Rekstur félagsins. Þegar þetta er ritað er hefur ekki verið haldinn aðalfundur ársins 2011 og liggja því ekki fyrir nákvæmar rekstrartölur, þær tölur sem hér koma fram að neðan eru grófar og ber því að taka með fyrirvara. Tekjur félagsins 2010 komu einungis af æfingagjöldum og styrkir frá ýmsum aðilum til einstakra afmarkaðra verkefna, þá nær eingöngu í formi gjafa eða vinnuframlaga.

Innristarfsemi og námskeiðahald. Fengin var þjálfari frá Siglingasambandi Íslands ( Timm ) til að halda tvö þriggja daga námskeið. Einnig voru haldin voru fimm lengri námskeið sem stóðu í fimm daga, auk þess sem stundaðar voru siglingar um það bil 2 sinnum í viku yfir um það bil fjögra mánaða skeið, stundum oftar, og stundum sjaldnar fór eftir sjólægi. Eftir það fór að draga úr tíðninni, heildar siglingatími var um það bil 5 mánuðir.

Verkefni ársins 2010

Bátakaup. Keyptir voru tveir nýir seglbátar sem henta aldrinum  frá 12-13 ára og upp úr, einnig þrír kajakar og eitt seglbretti. Kostnaður um það bil 1.320.000 kr.

Nýbygging flotbryggju. Smíðuð var úr timbri lenging, T, á enda á flotbryggju. Kostnaður ca 50.000 kr

Hafnaraðstaða og umhverfismál. Smíðaður var sjósetninga-rampur og honum komið fyrir, stórgrýti, steinsteyptum veggjum og öðru rusli var hreinsað upp úr sjó, neðan flæðarmáls með stórvirkum vinnuvélum, hluti athafnasvæðis var grjóthreinsaður og malborin. Kostnaður ca 90.000 kr.

Húsnæðismál. Tekið var inn rafmagn, lögð var fráveita utanhúss og tekið var inn kalt vatn, ýmist eru tengingar innanhúss bráðabyrgða eða ótengdar. Kostnaður ca 220.000 kr.

Öryggismál. Bætt var við fjölda öryggisvesta og keyptar voru tvær nýjar talstöðvar með neyðarrásum sjófarenda. Kostnaður ca 140.000 kr.

Áætluð verkefni ársins 2011.

Bátakaup.  Ljúka við að greiða fyrir bátakaup ársins 2010. Festa kaup á seglbát Wayfer, sem er kennslubátur sem hægt er að taka 4-5 nemendur á í einu og hentar vel fyrir siglingar fólks á öllum aldri, t.d. þar sem ungmenni kenna eldri. Kostnaður ca 300.000-500.000 kr.

Nýbygging flotbryggju. Halda áfram við að stækka bryggju aðstöðu og fara að huga að viðhaldi eldri hluta. Kostnaður ca 50.000 kr.

Hafnaraðstaða og umhverfi. Setja niður varanlegar festingar fyrir sjósetninga-ramp, grjóthreinsa og jafna umhverfi, malbera, griða af með lágreistri girðingu. Kostnaður ca 120.000 kr.

 


 

 

Húsnæðismál.  Setja hatt eða þakskyggni utan á húsið sem gefur því annað yfirbragð, tengja fráveitu og wc, tengja heitt vatn, ganga frá vatnslögnum öllum og raflögnum, lýsingu. Setja upp veggi og útbúa búnings og sturtuaðstöðu fyrir bæði kynin, lagfæra þarf öll gólfefni sökum vatnsálags. Vinna að innra skipulagi hússins. Kostnaður áætlaður 700.000 kr.

Öryggismál.  Festa kaup á fleiri björgunarvestum í öllum stærðum. Kostnaður ca 80.000 kr. Þá eru áform uppi um að smíða öryggisbát, núverandi öryggisbátur er gamall gúmmíbátur, Zodiak. Bátur þessi yrði viðbót við flotann, svipaðar stærðar, úr plaströrum, og hentar betur í erfiðu sjólagi og eins þar sem fjörur eru grýttar. Kostnaður ca 500.000 kr.

Innrastarf. Áframhaldandi námskeiðahald barna og unglinga, vinna að kynningarmálum, með sérstaka áherslu á siglingar á meðal kvenna, kvennastarf. Halda æfingabúðir á vegum SÍL Siglingasambands Íslands í ágúst – september, um það bil 40 til 50 báta námskeið. 80 til 100 manna hópur, keppendur, þjálfarar og foreldrar.  Taka þátt í siglingakeppnum utan héraðs. Kostnaður ófyrirséður.

Eins og fram kom hér að ofan þá eru kostnaðartölur  bráðabyrgðar, en verða tíundaðar frekar í árskýrslu ásamt tekjum af námskeiðum og styrkjum

Annað:

Siglingaklúbburinn hefur verið í samstarfi við Árskóla um útikennslu og er stefnt á að auka það samstarf í framtíðinni.

Siglingaklúbburinn leggur ekki einungis áherslu á siglingarnar einar og sér, heldur einnig hvernig eigi að umgangast umhverfi sjávar og vatna, með öryggið í fyrirrúmi. Helsta markmið sundkennslu fyrr á tímum var að kenna fólki að bjarga sér ef það lenti í sjó eða vatni. Mikilvægt er að halda ró sinni ef fólk fellur í vatn svo hægt sé að beita réttum viðbrögðum (panic), að hafa reynt það áður í öruggu umhverfi og yfir stigið  hræðslu, eykur stórlega lýkur á réttum viðbrögðum. Því má segja að vissu leiti sé um forvarnarstarf gagnvart slysavörnum að ræða.

 

Ingvar Páll Ingvarsson

 

 



Í stjórn félagsins sitja Jóhann Bjarnason, Eyrún Berta Guðmundsdóttir og Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir.

Á tímabilinu janúar til maí og október til desember sáu tveir þjálfarar um æfingar í frjálsum íþróttum einu sinni í viku. Æfingarnar voru fyrir börn á aldrinum 6 – 13 ára.

Frá janúar – maí voru fótboltaæfingar hjá sama aldurshópi og sundæfingar fyrir tvo aldurshópa, eldri 9-13 ára og yngri 6-8 ára. Allir þjálfarar sem komu að þjálfun þetta starfsár hafa aflað sér menntunar á sviði þjálfunar.

Að venju var haldið páskaeggjabingó til fjáröflunar fyrir félagið. Það var vel sótt og nýtur vaxandi vinsælda.

 

 

Ungmennafélagið Hjalti hélt utan um leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 5-12 ára í júnímánuði í samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð. Ungmennafélagið lagði til starfskraft sem skipulagði starfið og hafði umsjón með því. Sveitarfélagið lagði fram vinnuafl á vegum vinnuskólans.

Þann 14. ágúst var haldið Byrðuhlaup í annað sinn á Hólahátíð. Veðrið var hlýtt en blautt og þungbúið og gatan því nokkuð hál. Vaskir hlauparar spreyttu sig og luku allir hlaupinu með sóma. Metið frá árinu áður féll ekki en sigurvegari hlaupsins og sigurvegari í kvennaflokki var Fríða Ísabel Friðriksdóttir og sigurvegari í karlaflokki var Guðmundur Elí Jóhannsson.

Þann 28. apríl var sparkvöllurinn við Grunnskólann á Hólum vígður og afhentur sveitarfélaginu til rekstar að viðstöddu fjölmenni. Við það tilefni var Kári Ottósson í Viðvík heiðraður sérstaklega fyrir fórnfúst starf í þágu félagsins ekki sýst við gerð vallarins.

Einstaklingar úr röðum félagisns hafa verið iðnir við að taka þátt í frjálsíþróttamótum með UMSS og einnig í fótboltamótum með knattspyrnudeild Tindastóls.

                                                Guðrún Stefánsdóttir


                                                           

Ungmennafélagið Neisti

 

Starf ársins 2010 var með svipuðu sniði og árið þar á undan. Áherslan er fyrst og fremst á knattspyrnu yngri flokka en auk þess sinnir félagið fjölmörgum öðrum störfum.

Í stjórn á árinu 2010 sátu; Sigmundur Jóhannesson formaður, Guðrún Þorvaldsdóttir varaformaður, Jón Þorsteinn Reynisson ritari, Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir gjaldkeri og Sigurmon Þórðarson meðstjórnandi.

Í knattspyrnu yngri flokka var Bjarki Már Árnason áfram aðalþjálfari eins og undanfarin ár. Æfingar voru á fullum krafti allt árið og kepptu yngri flokkar á Íslandsmóti í knattspyrnu bæði innan- og utanhúss.

Í innanhúsmótið voru  þrír flokkar sendir til keppni, 2. og 4. flokkur stelpna og 4. flokkur stráka. Allir flokkarnir stóðu sig vel og einkum þó 4. flokkur kvenna sem vann riðilinn á Norðurlandi með yfirburðum og keppti í úrslitakeppninni í Reykjavík. Þar stóð liðið sig vel í keppni meðal besta liða landsins.

Um sumarið tóku 2., 3. og 4 flokkar stelpna þátt í Íslandsmótinu undir merkjum Neisti/Tindastóll. Allir flokkarnir með 7. manna lið og 4. flokkurinn í 11 manna bolta. Leikjafjöldinn var mikill og léku sumir leikmenn í mörgum flokkum. Margar stelpurnar þurfa að spila mörg ár upp fyrir sig en tekst það sannarlega vel. Almennt var árangurinn til mikillar fyrirmyndar en þó ber hæst að 4. flokkurinn lenti í 2. sæti í riðlakeppninni og komst þar með í úrslitakeppnina. Sameiginlega starfið með Tindastóli hefur gefist gríðarlega vel og heldur áfram. Nokkrir krakkar hafa mætt á knattspyrnuæfingar á Sauðárkróki í vetur.

Yngstu krakkarnir í 6. flokki tóku þátt í Íslandsmótinu og Króksmótinu og spiluðu þar marga eftirminnilega leiki í frábæru móti. Auk þess tóku fjölmargir krakkar á ýmsum aldri þátt í knattspyrnukeppni Unglingalandsmótsins í Borgarnesi.

Verkefnið Sumartím var starfrækt á Hofsósi sl sumar en það er samstarfsverkefni Neista og sveitarfélagsins um afþreyingu fyrir krakka 5-12 ára. Dagskráin var fjölbreytt í íþróttum og leikjum og mikið um að vera flesta daga þær vikur sem Sumartímið stóð yfir. Stjórnandi af hálfu Neista var Auður Birgisdóttir.

Sundlaug var vígð á Hofsósi á árinu og á haustmánuðum hófust skipulagðar æfingar undir stjórn Ingu Jónu Sveinsdóttur. Áhuginn  er gríðarlega mikill og má segja að næstum allir krakkar á grunnskólaaldri séu á æfingum. Með topp sundaðstöðu breikkar starfssvið félagsins og ný og áður óþekkt grein hefur skotið rótum í Hofsósi, vonandi til langrar framtíðar. Á árinu tóku margir fram sundföt sem legið höfðu ónotuð upp í skáp frá síðustu öld.

Oldboys lið Neista sprikklaði einstöku sinnum á árinu og tók þátt í Pollamóti Þórs og sendi þangað lið skipað leikmönnum 40 ára og eldri. Auk knattspyrnu í vetur hafa verið leikfimi- og sundæfingar fyrir fullorðna í félagsheimilinu og sundlauginni.

 


 

 

Sigurmon Þórðarson var áfram vallarstjóri og stóð hann sín vakt með miklum sóma og hélt utan um vallarsvæðið af mikilli röggsemi og dugnaði. Með góðri umhirðu á umliðnum árum hefur félaginu tekist að bæta svæðið ár frá ári. Vonandi hefur félagið efni á því að viðhalda svæðinu eftir bestu getu næstu árin. Verulega dökkar blikur eru þó á lofti í þeim efnum.

Önnur störf á vegum félagsins voru fjölmörg á árinu og tengjast þau fjáröflunum, skemmtunum og skylduverkum. Má þar nefna jólaspilavist á Hlíðarhúsi, uppskeruhátíð og Jónsmessuhátíð en félagið stýrði þar enn eitt árið skemmtilegu knattspyrnumóti. Knattspyrnukeppnin á Jónsmessunni tókst með miklum ágætum og mættu 18 lið til leiks og var spilað á fjórum völlum. Í tengslum við Jónsmessuna ( 17. júní) stóð félagið fyrir fjallgöngu á Ennishnjúk og mættu rúmlega 30 sprækir göngumenn til leiks.

Milli jóla og nýars tóku einhverjir efnilegustu íþróttamenn Neista, Þórgnýr Jónsson og Fanney Birta Þorgilsdóttir, við viðurkenningar-skjölum í hófi í Húsi frítímans. Þar hafði verið safnað saman efnilegum íþóttamönnum í Skagafirði auk þess sem Íþróttamaður Skagafjarðar var útnefndur.

Undir lok ársins voru svo Fanney Birta Þorgilsdóttir og Sigríður Vafa Björnsdóttir valdar til æfinga hjá landsliði kvenna yngri en 17 ára. Sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og virkileg hvatning fyrir þær sem og félagið til að halda áfram á sömu braut.

Fyrir hönd umf Neista

Hjalti Þórðarson                     



Aðalstjórn

Stjórn U.M.F. Tindastóls:

Gunnar Þór Gestsson formaður, Magnús Helgason varaformaður,

Elínborg Svavarsdóttir ritari, Bertína Guðrún Rodriguez gjaldkeri

Jón Daníel Jónsson, meðstjórnandi

Varamenn í stjórn: Kristjana Jónsdóttir,Guðjón Örn Jóhannsson og Marteinn Jónsson

Aðalfundurinn fyrir árið 2009 var haldinn á Kaffi Krók þann 11. mars 2010.  Fjárhagslegur rekstur aðalstjórnar hefur verið góður og að óbreyttu verður Aðalstjórn skuldlaus á árinu 2011 þegar síðasta afborgun verður greidd af láninu sem tekið var um aldamótin til að rétta við fjárhag félagsins.  Afborgun á árinu 2010 var kr. 3.767.332 en lokagreiðslan verður eitthvað lægri.  Að óbreyttu munu því styrkir sem Aðalstjórn getur skilað í rekstur deilda félagsins hækkað ríflega á næsta rekstrarári.

Ákveðið var að halda félagsgjöldum óbreyttum frá árinu á undan, eða kr. 2.500 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir unglinga fjórtán til átján ára.  Í lok ársins þegar innheimta félagsgjalda fyrir árið 2010 var framkvæmd ákvað Aðalstjórn að innheimta engin félagsgjöld af unglingum og merkja sérstaklega útsenda greiðsluseðla sem valkröfur.

Aðalstjórn hafði sett sér þau markmið að endurskoða lög félagsins.  Þetta hefur núna verið gert og verða breytingar lagðar fram á þessum aðalfundi.  Við þessa vinnu hefur verið leitast við að laga lögin að starfssemi félagsins með hliðsjón af lögum annarra sambærilegra félaga.

Helstu styrktaraðilar Aðalstjórnar eru Sveitarfélagið Skagafjörður, Kaupfélag Skagfirðinga, Sparisjóður Skagafjarðar, Arion Banki og Fjölnet.  Sparisjóður Skagafjarðar kom að myndugleika að styrktarmálum félagsins þegar dró úr styrkjum vegna efnahagsáfalla.  Starfsmenn og stjórnendur sparisjóðsins fá sérstakar þakkir frá Aðalstjórn fyrir þetta skref.  Kaupfélag Skagfirðinga ásamt dótturfélögum er ekki aðeins einn stærsti vinnuveitandinn í héraðinu, heldur einnig einn stærsti styrktaraðilinn, þar sem deildir félagsins keppa í búningum merktum KS og njóta ýmissa styrkja frá rekstrareiningum félagsins.

Rafrænt vinnuumhverfi Tindastóls sem hýst og rekið er af Fjölnetinu og Tengli er afskaplega mikilvægt félaginu.  Það ásamt vefsíðu félagsins og aðgengi að bókhaldskerfi í eigu Sveitarfélagsins mynda heilstætt upplýsingakerfi sem mikið verðmæti eru í.  Aðalstjórn vill nota tækifærði hér til að færa Tengli og Fjölnetinu sérstakar þakkir fyrir lipurð og ljúfmennsku þeirra við félagið.

Styrkur frá Sveitarfélaginu Skagafirði er miðaður við barna- og unglingastarf er greiddur til UMSS sem síðan skiptir honum niður á aðildarfélögin samkvæmt flóknum útreikningi sem er kominn nokkuð til ára sinna.  Núna fyrir síðustu áramót var það samþykkt af stjórn UMSS og Félags- og tómstundarnefnd sveitarfélagsins að í framtíðinni verða skráningar í TÍM kerfið notaðar til grundvallar þessari skiptingu.  Skráningar deilda í þetta kerfi verða því félaginu mjög mikilvæg bæði fyrir gæði starfsins við skiptingu styrksins.

Ofangreindum styrkjum hefur verið skipt niður á deildir samkvæmt hlutfallsskiptingu sem einnig er kominn til ára sinna.  Ljóst er að þessi mál verður að leggjast yfir og endurskoða þegar tölur úr skráningarkerfinu liggja fyrir eftir einhver misseri.

Á aðalfundum UMF Tindastóls eru styrkir úr minningarsjóði um Rúnar Inga Björnsson afhentir.  Hefð hefur verið að styrkir úr þessum sjóði miðist við keppnisferðir og afreksfólk félagsins.  Sem tilraun til að bæta faglegt starf félagsins ákvað Aðalstjórn að setja af stað styrktarsjóð fyrir þjálfara og starfsfólk félagsins.  Við viljum með þessum sjóði greiða niður ferða- og námskeiðakostnað þeirra sem starfa fyrir félagið og skila þekkingunni heim í hérað.  Nú þegar hafa borist nokkrar umsóknir en aðeins ein úthlutun hefur átt sér stað.  Aðalstjórn hvetur hér með deildir til að styðja við menntun og þekkingu í sínu starfi og mun leggja sitt að mörkum til að styðja við bakið á þessu verkefni.  Innheimt félagsgjöld eru núna eingöngu notuð í að fjármagna þennan sjóð.  Þetta er reikningur 16366 í Arion Banka.

Helgi Rafn Viggósson körfuknattleiksmaður og fyrirliði úrvalsdeildarliðs Tindastóls, var útnefndur Íþróttamaður Tindastóls fyrir árið 2010. Helgi Rafn er fyrirliði úrvalsdeildarliðs Tindastóls í körfuknattleik og lék sitt besta keppnistímabil hingað til 2009-2010. Var hann valinn besti leikmaður liðsins af félögum sínum á lokahófi körfuknattleiksdeildar sl. vor. Helgi átti stóran þátt í því að liðið komst í úrslitakeppnina í fyrsta skiptið í mörg ár. Hann er þekktur fyrir að leggja sig fram bæði innan vallar og utan. Hann tekur virkan þátt í þeim fjáröflunum sem körfuknattleiksdeildin stendur fyrir og inni á vellinum er hann sannur leiðtogi og drífur samherja sína áfram með baráttuanda og fórnfýsi fyrir félag sitt. Þrátt fyrir erfiða byrjun Tindastóls í úrvalsdeildinni í haust, hefur Helgi hvergi slegið af og átt stóran þátt í þeim jákvæðu breytingum sem orðið hafa á leik liðsins undanfarið.

Þá fengu þau Pétur Rúnar Birgisson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sérstakar viðurkenningar sem ungt og efnilegt körfuknattleiksfólk, en þau voru bæði valin í æfingahópa U-15 ára landsliða Íslands auk þess sem Þóranna var einnig valin til æfinga hjá U-16 ára liðinu. Bæði eru lykilmenn með sínum liðum í Íslandsmótinu og hafa leikið vel í vetur og eru í mikilli framför.  Knattspyrnumennirnir Björn Anton Guðmundsson og Atli Arnarson hafa einnig verið valdir í landsliðsæfingahóp U-19.  Þessir einstaklingar hafa staðið uppúr í annars stórum hópi frábærra íþróttamanna.  Ljóst er að við Skagfirðingar eigum stóran hóp íþróttamanna og verkefnið okkar er að bjóða þessu fólki upp á sem bestu aðstöðu til að stunda sína íþrótt.

Gauti Ásbjörnsson stangarstökkvari úr Tindastól var útnefndur Íþróttamaður Skagafjarðar 2010 í hófi sem UMSS hélt í Húsi frítímans.  Gauti býr í Svíþjóð en keppir fyrir hönd Skagafjarðar undir merkjum UMSS. Gauti bætti sinn fyrri árangur í stangarstökki innanhúss strax í upphafi árs, úr 4,42m (frá 2009) í 4,60m á 3 mótum (4,52m, 4,53m og 4,60m).  Með þessum árangri er Gauti í 1.-3. sæti á “Afrekaskrá FRÍ innanhúss 2009-2010”. Í júníbyrjun stórbætti Gauti sinn fyrri árangur utanhúss, (4,50m frá 2007), þegar hann stökk 4,65m á móti í Gautaborg.

Gauti var valinn í landslið Íslands sem keppti í Evrópubikar-3.deild á Möltu.  Þar hafnaði Gauti í 4. sæti í 15 þjóða keppni, stökk 4,50m.  Íslenska landsliðið hafnaði einnig í 4. sæti.  Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fór fram á Laugardalsvelli í júlí.  Þar náði Gauti sínum besta árangri og varð Íslandsmeistari í stangarstökki, stökk 4,72m. Þá hafði hann bætt sinn fyrri árangur um 22cm í sumar. Árangurinn í sumar skipar Gauta í 1. sæti á „Afrekaskrá FRÍ utanhúss 2010”.  Þessi árangur er einnig besti árangur Íslendings í stangarstökki í 6 ár, eða síðan Jón Arnar Magnússon UMSS stökk 4,90m á Landsmóti UMFÍ 2004 á Sauðárkróki.

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu urðu íslandsmeistarar í þriðju deild og fjórði flokkur karla í knattspyrnu urðu íslandsmeistarar í sjö-manna bolta.

Jóhann Helgi Sigmarsson var afhentur starfsbikarinn sem Ómar Bragi Stefánsson gaf félaginu á 100 ára afmæli félagsins þann. Jóhann Helgi Sigmarsson hefur í mörg ár unnið fyrir félagið ómælt starf, er gjaldkeri körfuknattleiksdeildar og vinnur einnig mikið sjálfboðaliðsstarf fyrir aðrar deildir. 

Formaður Aðalstjórnar og formaður Knattspyrnudeildar ásamt þremur öðrum aðilum hafa hafið forvinnu vegna uppbyggingar á knattspyrnugrasvelli í löglegri keppnisstærð.  Við látum okkur dreyma um að framkvæmdir við þennan völl geti hafist á árinu 2011. 

Einnig er komin af stað forvinna vegna gólfsins í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.  Þar er núna dúkur en vonir félagsins eru að á gólfið verði komið parket fyrir næsta keppnistímabil í haust.

Ef af þessum framkvæmdum verður er ljóst að félagið mun þurfa á aðstoð einstaklinga og fyrirtækja á svæðinu.  Við erum bjartsýn á að þar munum við mæta velvilja hjá fyrirtækjum og dugmiklum einstaklingum svo að þessi verkefni verði unnin fljótt og vel fyrir hóflegan kostnað.

Það eru því ærin verkefni framundan og Aðalstjórn vill hvetja allt íþróttafólk, aðstandendur, sjálfboðaliða félagins og íbúa héraðsins til dáða.

Með ungmennafélagkveðju

Gunnar Þór Gestsson


 

Frjálsíþróttadeild

Starf frjálsíþróttadeildarinnar er svipað og áður  höfum við kappkostað að byggja upp áhuga á frjálsíþróttum hér í Skagafirði. Við höfum á okkar höndum reynda þjálfara og nú um áramót bættist við þann hóp Sigurður Arnar Björnsson og bjóðum við hann velkominn til starfa. Frjálsíþróttadeildin hefur keppt undir merkjum UMSS og hefur það samstarf verið farsælt því innan okkar vébanda eru keppendur úr öllum Skagafirði. Vill stjórnin þakka samstarfið við frjálsíþróttaráð UMSS.

Fjármál hafa verið erfið þetta árið og er það miklu leiti þann aukinn kostnaður sem kemur af því að sækja keppnir um allt land. Og er þetta orðinn stór þáttur í öllu starfi sem deildin heldur út . Óhjákvæmilega verður að skera niður og er það erfitt að við getum ekki boðið uppá þá þjónustu sem við vildum veita hér í héraði. Er því mikið mál að við fáum inn alla þá styrki sem eru í boði. Og er það slæmt að peningar til íþróttastarfs séu núna skornir niður hjá sveitarfélaginu. Því forvarnagildi íþrótta er mikið.

Skipti verða í stjórn frjálsíþróttadeildarinnar. Mun þau Kolbrún Sæmundsdóttir og Þorsteinn Broddason láta af störfum og í þeirra stað koma þær Hafdís Ólafsdóttir og  Þórunn Ingvadóttir taka við af þeim. Er þá stjórnin skipuð þannig.  Sigurjón Leifsson  Guðrún Ottósdóttir  Eiður Baldursson  Hafdís Ólafsdóttir  Þórunn Ingvadóttir.

Að lokum vill stjórnin þakka öllum þeim sem komu að starfi deildarinnar.  Þjálfurum, foreldrum, styrktaraðilum okkar og öllu því fólki sem styður starf okkar í frjálsíþróttadeildinni.

f.h Stjórnar Frjálsíþróttadeildarinnar

Sigurjón Viðar Leifsson

 

Knattspyrnudeild

Stjórn knattspyrnudeildar:

Formaður        Ómar Bragi Stefánsson

Gjaldkeri         Björn Ingi Óskarsson

Ritari               Erna Baldursdóttir

V.formaður     Skúli V. Jónsson

Meðstjórnandi Pétur Björnsson

M.fl.ráð karla:

Ómar Bragi Stefánsson

Skúli V. Jónsson

Örn Ragnarsson

Óli B. Jónsson

Snorri Geir Snorrason

Dagur Baldvinsson

M.fl.ráð kvenna:

Erna Baldursdóttir

Elínborg Svavarsdóttir

Páll Friðriksson

Hrefna B. Guðmundsdóttir

Erla Björt Björnsdóttir

Barna- og unglingaráð:

Pétur Björnsson

Aníta Jónasdóttir

Ólafur Þorbergsson

Skúli Hermann Bragason

Framkvæmdastjóri: Skúli V. Jónsson gegndi stöðu framkvæmdastjóra á starfsárinu.

Fundir: Á starfsárinu voru haldnir 7 bókaðir stjórnarfundir.  Hinsvegar voru fjölmargir smærri fundir haldnir með leikmönnum, þjálfurum, foreldrum, samstarfsaðilum og stjórnarmönnum þar sem rædd voru hin ýmsu málefni knattspyrnudeildarinnar.


 

Frá formanni. Nú er að ljúka viðburðarríku ári hjá knattspyrnudeild Tindastóls.  Það fer ekki fram hjá neinum að starfsemi deildarinnar er bæði öflug og metnaðarfull í alla staði.   Knattspyrnudeildin hélt úti 13 flokkum sem tóku þátt í mótum KSÍ en auk þess tók félagið þátt í ýmsum mótum víðsvegar um landið.  Knattspyrnudeildin stóð fyrir tveimur stórum knattspyrnumótum, Landsbankamótinu og Króksmótinu sem eru studd sérstaklega af Landsbankanum og FISK Seafood.  Þessi mót eru knattspyrnudeildinni afar mikilvæg en án gríðarlega mikillar sjálfboðavinnu foreldra og leikmanna okkar væri framkvæmd þeirra varla möguleg.  Það er ástæða til að þakka öllum sem að undirbúningi og skipulagningu þessara móta komu sérstaklega fyrir þeirra aðstoð.

Tvö lið Tindastóls státa sig af Íslandsmeistaratitli í sumar.  4.flokkur karla hampaði bikarnum en liðið sigraði í keppni 7 manna liða.  M.fl. karla sem féll í 3.deild á síðasta ári sannaði að þar á liðið ekki heima.  Liðið sigraði deildina glæsilega og varð Íslandsmeistari 3.deildar.  Þetta er frábær árangur hjá báðum þessum liðum og  ástæða til að óska þeim til hamingju með glæsilegan árangur.

Aðstaða knattspyrnumanna yfir sumartímann er ágæt og ekki ástæða til að kvarta yfir henni.  Við höfum aðgang að glæsilegu svæði í hjarta bæjarins, svæði sem er umtalað af gestum enda eftirsóknarvert til mótahalds af ýmsu tagi.  Hinsvegar verður það að viðurkennast að veturnir eru okkur afar erfiðir.  Mjög fáir tímar eru í boði í íþróttahúsinu og reiðhöllin er langt frá því að vera viðunandi.  Sparkvöllurinn við Árskóla er sá minnsti í Skagafirði en er þó mikið notaður.  Það er alveg ljóst í mínum huga að gervigrasvöllur í fullri stærð þarf að koma fyrr en seinna.  Skagafjörður er stærsta sveitarfélagið á landinu sem ekki hefur slíka aðstöðu og minni sveitarfélög en okkar hafa þesskonar aðstöðu.  Knattspyrnudeildin er fjölmennasta deildin innan Tindastóls með um 200 iðkendum og slíkur völlur myndi gjörbreyta allri aðstöðu til hins betra jafnt vetur sem sumar.

Samstarfsaðilar okkar eru deildinni afar mikilvægir og þakka ég þeim fyrir farsælt samstarf.

Ómar Bragi Stefánsson

 

Körfuknattleiksdeild

Ágætu félagar!

Eins og venja er förum við í fáum orðum yfir árið og keppnistímabilið sem nú er liðið.

Starf deildarinnar hefur verið í föstum skorðum í allnokkur ár og lítið um breytingar þannig að í raun er litlu við síðustu skýrslu að bæta og mætti nánast endurtaka hana hér. Á síðasta aðalfundi voru kjörin í stjórn Halldór Halldórsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Jóhann Ingólfsson, Jóhann Sigmarsson og Viggó Jónsson. 

Ekki varð nokkur breyting á helsta starfi stjórnarinnar sem líkt og endranær fólst aðallega í að sinna fjárhagnum og reyna að láta enda ná saman. Þessi vinna stendur því síðan í vegi að hugað sé að innri málefnum deildarinnar sem ætti að vera aðalstarf stjórnar hverju sinni.

Eins og lesa má í ársreikningi tókst ágætlega til við rekstur deildarinnar á síðasta tímabili þannig að nokkur afgangur varð af rekstrinum og er það vel. Deildin er í raun skuldlaus ef frá er talin skuld við Merkisbræður sf. sem litlar eða engar líkur á að verði innheimtar og þá ekki nema deildinni áskotnist verulegt fé. Stuðningur Merkisbræðra sf. við deildina, með því að leggja til húsnæði fyrir leikmenn, hefur verið ómetanlegur á undanförnum árum og auðvelda okkur starfið mikið. Við höfum undanfarin ár getað gengið að því sem vísu að fá húsnæði fyrir útlendingana okkar í húsi


 

Merkisbræðra að Ránarstíg 6 hér í bæ og komist upp með að greiða þeim afar lága leigu. Sem endranær ber að þakka þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur á síðasta tímabili. Þá hefur sveitarfélagið stutt við bakið á okkur af myndarbrag.

Rekstur rútu deildarinnar gekk vel og höfum við verið heppin með hve lítið hún hefur bilað. Það er forsenda fyrir rekstrinum að okkur hefur tekist að fá fyrirtæki til að styrkja okkur við reksturinn með vinnu og gjöf á varahlutum og þess háttar. Þá liggur fyrir að skuldir vegna rútunnar munu lækka verulega og að öllum líkindum hverfa vegna endurútreiknings á láninu sem var að hluta í erlendri mynt. Raunar er líklegt að deildin eigi inni vegna þess að hún hafi greitt of mikið. Líkt og endranær var unnið allnokkuð við fjáraflanir og þær fjölbreyttar að vanda.

Nokkur orð um árangur félagsins á vellinum.

Af meistaraflokki karla er það að segja, að Kristinn Friðriksson var líkt og undanfarin ár þjálfari liðsins. Árangur liðsins var ásættanlegur og náði það inn í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í nokkur ár

Um starf og árangur yngri flokka má vísa til nefndrar skýrslu unglingaráðs.

Í skýrslu stjórnar fyrir síðustu starfsár var vikið að því að deildin hefur árum saman fengið of fáa tíma til ráðstöfunar í íþróttahúsinu hér í bæ. Ég get ekki annað en endurtekið þá umfjöllun hér enda er ástandið óásættanlegt.  Íþróttahúsið er notað meira og meira undir samkomur sem ekki tengjast íþróttum og þá eru tímar felldir niður jafnvel heilu helgarnar. Ef til þess er ætlast að lið héðan nái árangri í körfubolta þá verðum við að fá fleiri tíma í íþróttahúsinu en okkar lið æfa mun minna en önnur lið sem vilja ná árangri. Þá er full ástæða til að æfa meira utan keppnistímabils en gert hefur verið. Vonandi verður af byggingu körfuboltavallar við Árskóla eins og stefnt hefur verið að en slíkur völlur, gerður í samræmi við kröfur nútímans, myndi auka mikið við aðstöðuna og iðkun körfubolta hér í bæ.

Þá ber að þakka öllum þeim sem komu að starfi deildarinnar á einhvern hátt hvort sem það var gert með fjárframlögum, vinnuframlagi eða bara hvatningu á kappleikjum. en þrátt fyrir að mér þyki sem of fáir leggi hönd á plóg þá er það svo að við eigum víða

Að endingu vil ég fyrir mína hönd svo og þeirra sem með mér hafa verið í stjórn deildarinnar á liðnum árum þakka öllum þeim sem unnið hafa með okkur að málefnum körfuboltans hér í bæ en fyrir liggur að ný stjórn verður kjörin á næsta aðalfundi og þeir sem nú eru í stjórn munu ekki gefa kost á sér til endurkjörs.

Með íþróttakveðju,

F. h. körfuknattleiksdeildar, Halldór Halldórsson.

 

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar

Unglingaráð skipuðu eftirfarandi fulltrúar; Eiríkur Loftsson formaður, Helga Dóra Lúðvíksdóttir gjaldkeri, María Sævarsdóttir, Guðný Jóhannesdóttir og Aðalheiður Stefánsdóttir.

Starfsemin var með hefðbundnu sniði. Boðið var upp á æfingar fyrir 6. – 18 ára iðkendur og stunduðu samtals um 150 krakkar körfuboltaæfingar á tímabilinu. Flokkarnir sem voru í starfi voru þessir;

Míkróbolti stúlkna og drengja (1. – 2. bekkur)

Minnibolti yngri stúlkna (3. – 4. bekkur)

Minnibolti  drengja (3. – 5. bekkur)

Minnibolti eldri stúlkna (6. bekkur)

7. flokkur drengja (6. – 7. bekkur)

8. flokkur stúlkna (7. – 8. bekkur)

8. flokkur drengja (8. bekkur)

9. flokkur drengja (9. bekkur)

10. flokkur stúlkna (9. – 10. bekkur)

Unglingaflokkur karla (10. bekkur +)

 


 

Unglingaflokkur karla tók þátt í Íslandsmótinu og komst í undanúrslit mótsins, þar sem þeir töpuðu fyrir Njarðvíkingum. 9. flokkur drengja lauk keppni í B-riðli, 8. flokkur í A-riðli og 7. flokkur í C-riðli. Hjá stúlkunum lauk 10. flokkur keppni með sigri í C-riðli, 8. flokkur vann B-riðil í sínu síðasta móti og stúlkurnar í minniboltanum gerðu sér lítið fyrir og unnu til silfurverðlauna í Íslandsmótinu.

Aðrir flokkar kepptu ekki í Íslandsmóti en yngri iðkendur tóku þátt í Nettó-mótinu í Reykjanesbæ.

Alls störfuðu 9 þjálfarar við þjálfun hjá unglingaráði:

Axel Kárason

Kári Marísson

Halldór Halldórsson

Sveinbjörn Skúlason / Hákon Bjarnason

Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir

Alfreð Guðmundsson

Ásta Margrét Benediktsdóttir

Michael Giovacchini / Vanda Sigurgeirsdóttir

Auk hefðbundinna æfinga var Körfuboltaskóli Tindastóls starfræktur og var hann undir stjórn Kára Maríssonar. Var skólinn með starfsemi einu sinni í viku, þar sem iðkendum gafst kostur á að mæta og njóta leiðsagnar í undirstöðuatriðunum.

Unglingaráð vill þakka öllum þeim fjölmörgu foreldrum sem stutt hafa dyggilega við starfið á ýmsan hátt. Þá þakkar ráðið einnig iðkendum og þjálfurum fyrir ánægjulegt samstarf.

Eiríkur Loftsson formaður

 

 

Skíðadeild

Það má segja að starfið hjá stjórninni hafi byrjað strax eftir aðalfund, byrjað var að skipta með sér störfum og vetrastarfið skipulagt blásið var í herlúðra og skildi skíðaiðkendum fjölgað sem aldrei fyrr staðið skildi fyrir ýmiskonar uppákomum.

Ráðnir voru þjálfarar til starfa og allt leit ljómandi vel út fyrir veturinn. En allt kom fyrir ekki, vegna snjóleysis og óhagstæðra veðurskilyrða var ekki hægt að opna fyrr en 2. jan sem er langt frá því sem við vonumst til að geta gert. Hvað um það við höfðum opið til 17.jan en urðum þá að loka vegna snjóleysis en opnuðum aftur 17.feb. Sökum þessa þá var orðin mikil röskun á fyrirhugðu starfi en við héldum vetrarleika annað árið í röð og er það mín von að þeir sé komnir til að vera. Við vorum með 38 krakka sem æfðu skíði hjá okkur í vetur frá Sauðarkróki, Varmahlíð og Skagaströnd voru æfingar 4 sinnum í viku. Börnin sóttu fjölmörg mót svo sem afmælismót á Siglufirði, Jónsmót á Dalvík, Sauðárkróksbakarísmótið, Reykjavíkurmót, innanfélagsmót og Andrésar Andarleikana svo að sjálfsögðu Íslandsmótið. Allt gekk þetta mjög vel og endaði skíðavertíðin með feiknargleði á Skagaströnd.

Þá er komið að nokkrum tölulegum staðreyndum við fengum 4738 gesti í vetur það var opið í 78 daga þetta er náttúrulega langt frá því sem við ætlum okkur, svo að í sumar var unnið í að  bæta aðstöðu til skíðamennsku.

Brekkur voru sléttaðar, grjóthreinsað og í sáð grasfræjum. Eflaust má gera betur í þessu næsta sumar. Snjógirðingar voru lengdar og lagfærðar en það vantar reyndar örlítið af neti til að fullklára þær. Unnið var í lýsingu á svæðinu og vantar rétt herslumuninn að það sé komin lýsing á alla staura. Nú síðan en ekki síst þá var unnið í að þétta lónið og nú þegar þetta er ritað lítur það þannig út að þessi aðgerð hafi heppnast vel.

 


 

Fjöldi aðila hefur styrkt svæðið á síðasta starfsári má þar nefna skagfirska bændur sem létu af hendi áburð, fræ og girðingastaura vil ég nota tækifærið og þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg til að aðstoða okkur við starfsemina hjá skíðadeild Tindastóls þetta er algjörlega ómetanleg hjálp. Ég vil sérstaklega þakka Einar Stefánssyni fyrir alla þá aðstoð sem hann er búin að veita á svæðinu. Skíðadeildin stendur nú á tímamótum þar sem samningur á milli sveitarfélagsins og skíðadeildarinnar er runnin út eftir tíu ára samstarf.

Óhætt er að segja að þessi tíu ár hafi gengið mjög vel og þakkar skíðadeildin sveitarfélaginu fyrir samstarfið og vonast eftir góðu samstarfi áfram. Þó er vert að hugleiða hvort skíðadeildin eigi að standa í að reka svæðið sem er íþróttamannvirki og ferðamannafyrirtæki heldur en að einbeita sér að æfingum og uppbyggingu í barna og unglingastarfi. Það hefur allavega vakið furðu mína hversu mikill seinagangur virðist vera að fá nýja samning við sveitarfélagið. Skíðamennskan er vaxandi fjölskyldusport og er þar af leiðandi vaxandi atvinnugrein, með tilkomu snjóvéla er hægt að hafa svæðið opið í allt að sex mánuði á ári og verður það að teljast nokkuð gott fyrir ferðamannaiðnað. En til að gott skíðasvæði verði betra þá verður að halda áfram uppbyggingu svo sem að byggja skála, setja topplyftu og fleira í þessum dúr. Nú það er til vinnuplan til næstu 15 ára ef þeim plönum verður framfylgt getur skíðasvæðið ekki annað en átt bjarta framtíð, er það mín von að menn hafi kjark og þor til að halda áfram uppbyggingu á svæðinu.

Þá er ekki annað en að byrja næsta starfsár með trompi og opna sem fyrst það er komin nægur snjór bara að bíða eftir veðrinu takk fyrir.

Sigurður Bjarni Rafnsson

 

Spaðadeild

Árið 2010 var fyrsta ár Spaðadeildar Tindastóls og var almenn sátt með gang mála á árinu þrátt fyrir að áhugi væri til þess að gera betur.  Áherslan þetta ár var að reyna að koma á einhverjum námskeiðum fyrir börn og unglinga og var farin sú leið að halda sumarnámskeið í samvinnu við Sumar-TÍM.  Þar voru haldin 3 námskeið, annars vegar í Badminton og hins vegar í Tennis.  Voru milli 15-20 börn sem sóttu þessi námskeið og lukkaðist það vel.  Greinilegt er að það er þörf fyrir svona námskeið þar sem er boðið upp á eitthvað mótvægi á móti hinum hefðbundnu íþróttagreinum sem eru almennt stundaðar hér á Sauðárkróki.  Vonandi gefst okkur tækifæri til þess að halda einhver vetrarnámskeið líka á árinu 2011 en við verðum að sjá hvernig gengur með að fá þjálfara til kennslu á þeim.

Við vorum ótrúlega heppin að geta nýtt okkur fjórtánfaldan íslandsmeistara og Tennismann ársins (síðustu 13 ár) Arnar Sigurðsson til þess að kenna á námskeiðum hjá okkur. Námskeiðin hjá Arnari vöktu mikla lukku og vonandi verður áframhald á því samstarfi næsta sumar.

Í lok árs kom upp sú hugmynd hvort Spaðadeildin mundi sameinast undir  merkjum almenningsdeildar Tindastóls og teljum við það sniðugan leik og leggjum það til að sú deild verði stofnuð og við tilheyrum henni í framtíðinni.  Þarna væri komin deild þar sem félagsmenn Tindastóls gætu keppt í sínum íþróttagreinum sem eru ekki með sér deildir innan Tindastóls og verið félgagsmenn Tindastóls áfram.

Fyrir hönd Spaðadeildar Tindastóls

Bergmann Guðmundsson 

 

Sunddeild

Aðalfundur Sunddeildar Tindastóls var haldinn 24. febrúar 2010.  Hrönn Guðjónsdóttir fór úr stjórn eftir 7 ára setu í stjórn, og er henni þökkuð fyrir vel unnin störf á undanförnum árum.  Ný inn í stjórn var kosinn Þorgerður Þórhallsdóttir, aðrir sem fyrir voru í stjórn voru endurkjörnir.  Stjórnin fyrir árið skipa því;  Jón Ingi Sigurðsson formaður, Snorri Styrkársson gjaldkeri, Jóna Hjaltadóttir  ritari og þau Jón Þór Jósepsson og Þorgerður Þórhallsdóttir meðstjórnendur  auk þess var Þorgerður kosin til  að vera tengiliður við foreldra.  Fundir voru haldnir reglulega fyrsta þriðjudag í mánuði.

 

 


 

Starfsemi deildarinnar: Þjálfari deildarinnar fram á sumar var Linda Björk Ólafsdóttir.  Fannar Arnarsson leysti Lindu af þegar á þurfti að halda.  Fríða Rún Jónsdóttir og Fannar Arnarsson tóku við þjálfun eftir sumarleyfi.  Fannar Arnarsson hætti að þjálfa og  Kristín Kristjánsdóttir var ráðin ásamt Fríðu Rún, en Kristínu var sagt upp í desember.  Þorgerður Þórhallsdóttir tók nokkrar æfingar ásamt Sigurjóni Þórðarsyni þegar Kristín komst ekki.  Og á nýbyrjuðu ári hefur Fríða Rún tekið að sér alla þjálfun.

Sæhestar, eða iðkendur sem fæddir eru 2000 og yngri æfðu tvisvar í viku. Höfrungar, eða iðkendur fæddir 1998 og 1999 þrisvar sinnum í viku og Hákarlar eða iðkendur fæddir 1997 og fyrr fimm sinnum í viku.  

Alls voru 10 mót sótt á vegum deildarinnar árið 2010, þar af 7  utan Sauðárkróks.

Farið var á Gullmót KR, í Reykjavík 12-14. febrúar.

Yngri iðkendur fóru á sundmót á Dalvík 10. apríl

Bikarmót Kiwanisklúbbsins Drangeyjar var haldið hér á Sauðárkróki 28.  apríl. 

Sundleikar ÍBR voru haldnir 14.-16. maí í Reykjanesbæ

Farið var á Akranesleikana á Akranesi 4.- 6. júní

Á Actavis International sundmótinu sem fór fram Ásvallalaug í Hafnarfirði 12. - 13. júní keppti Sunneva Jónsdóttir sundkona Tindastóls.

Við áttum fulltrúa á unglingalandsmóti UMFÍ  Borgarnesi í júlí.

Farið var á sundmót í Borganesi 6. nóvember . 

Unglingamót UMSS var haldið hér á Sauðárkróki 2. okt.

Héraðsmót UMSS var haldið hér á Sauðárkróki 30.okt.

Æfinga og skemmtiferð Sæhesta og Höfrunga var farin 7. – 8. maí í Kjarnaskóg.  Ferðinni sem átti að fara í haust var frestað til vors 2011.  En fleira skemmtilegt var gert s.s. sokkasund og diskó þema, pizzakvöld og video, litlu jólin og pakkaskipti þar sem foreldrar komu með smákökur.  Á  nýju ári eða 4. janúar var stjörnuljósasund og diskó. Að vanda stóðu krakkarnir sig vel, bættu árangur sinn og voru félaginu  til sóma.

Þjálfarinn Dýrleif  Ingimarsdóttir heimsótti sunddeildina  11. september 2010 og gaf iðkendum og þjálfara þeirra góð og dýrmæt ráð sem og  foreldrum.

Farið var í nokkrar fjáraflanir á árinu 2010.  Sunddeildin sá um slátt og hirðingu á lóð Heilbrigðisstofnunarinnar, gluggaþvott á Arion banka og Skýrr.  Gulrætur voru seldar 26-30 október. og í nóvember syntu krakkarnir krónu áheitasund.

Á uppskeruhátíð deildarinnar fyrir árið 2010, sem haldin var á Mælifelli 9. febrúar 2011 voru viðurkenningar veittar,  Hjalti Arnarsson fékk  viðurkenningu sem sundmaður deildarinnar, Viktoría Lazar Sorinsdóttir fékk viðurkenningu fyrir tæknilegar framfarir, Thelma Björk Sverrisdóttir fékk viðurkenningu fyrir ástundun og Þorgrímur Svavar Runólfsson fékk viðurkenningu fyrir prúðmennsku.  Auk þess var öllum sundiðkendunum færðar áletrað handklæði að gjöf frá deildinni.  Deildin tilnefndi Ásgrím Þór Kjartansson  og Elínborgu M. Sigfúsdóttir sem unga og efnilega sundmenn til UMSS, auk Hjalta Arnarssonar til íþróttamanns ársins.

Að lokum viljum við stjórnarmenn þakka öllum sem komið hafa að rekstri og starfsemi deildarinnar og einnig þeim fjölmörgu sem styrkt hafa sunddeildina á ýmsan hátt á árinu 2010.

Sauðárkróki, febrúar 2011

Stjórn sunddeildar Tindastóls.

Jón Ingi Sigurðsson, Snorri Styrkársson, Jóna Hjaltadóttir, Jón Þór Jósepsson og Þorgerður Þórhallsdóttir

 



 

 

Aðalfundur félagsins var haldinn 22. mars 2010. Úr stjórn gekk Guðrún Kristín Eiríksdóttir og eru henni þökkuð mjög góð störf í þágu félagsins. Stjórn UÍS skipa nú:

Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir formaður                                                                                                Þórunn Eyjólfsdóttir varaformaður                                                                                                       Valgerður Inga Kjartansdóttir gjaldkeri                                                                                                      Steinunn Arnljótsdóttir ritari                                                                                                                            Einar Karl Guðmundsson meðstjórnandi                                                                                                                     Guðmundur Þór Elíasson meðstjórnandi                                                                                                Sigurlína Hrönn Einarsdóttir meðstjórnandi                  

Að venju var mikið um að vera hjá félaginu á árinu. Tvennt stóð þó upp úr, félagið varð 15 ára og loks vígðum við sparkvöllinn okkar þann 28. apríl sl. Af þessum tilefnum slógum við á létta strengi áður en að vígslu kom, buðum öllum nemendum Varmahlíðarskóla uppá smá íþróttahátíð í íþróttahúsinu og afhentum öllum þeim sem æft höfðu hjá íþróttafélaginu um veturinn smá verðlaunapening. Gaman er að geta þess að alls æfðu 115 börn hjá félaginu en í Varmahlíðarskóla stunduðu 133 börn nám sl. vetur. Þennan góða árangur þökkum við einkum því að á milli íþróttafélagsins og skólans hefur verið mjög gott samstarf sem lýsir sér þannig að útivistartímar yngri barnanna eru notaðir til íþróttaæfinga. Þakkar félagið Páli Dagbjartssyni skólastjóra kærlega fyrir einstaka hjálpsemi og samstarfsvilja í garð félagsins. Að vígslu lokinni bauð félagið upp á kaffi og fótboltatertur sem gestir kunnu vel að meta.

Leikjanámskeið og fótboltaæfingar voru síðastliðið sumar og að venju fóru fótboltabörnin okkar á Smábæjarleikana og Króksmótið. Gekk þeim vel og á Króksmóti gerði 6. flokkur sér lítið fyrir og sigraði sinn riðil og 5. flokkur lenti í 3. sæti. Frjálsíþróttabörnin fóru á hvert mótið á fætur öðru og stóðu sig öll með mikilli prýði. Gunnar Sigurðsson þjálfari er mjög duglegur að hvetja börnin áfram og drífa þau á mót og á hann mikinn heiður skilið fyrir dugnað sinn og elju. Alltaf eru að bætast fleiri börn í þennan skemmtilega hóp og fóru margir frá félaginu á Unglingalandsmótið sem haldið var í Borgarnesi um verslunarmannahelgina og er óhætt er að segja að Unglingalandsmótið sem hér var haldið árið 2009 hafi kveikt neista margra á því að fara að æfa frjálsar. Fyrir utan fótbolta og frjálsar bauð félagið upp á fimleika, jazzballett og bandý fyrir yngri kynslóðina en fyrir þá eldri buðum við upp á  TRX, ketilbjöllur, kvenna- og karlaleikfimi, jazzballett og það nýjasta nýtt hjá okkur, sundleikfimi.  Það er okkar von að sem flestir stundi íþróttir af einhverju tagi hvort sem þeir eru ungir eða aldnir.  

Í lok ársins völdum við síðan unga og efnilega íþróttamenn sem voru heiðraðir þegar kjör um Íþróttamann Skagafjarðar fór fram. Voru þetta Brynjólfur Birkir Þrastarson sem stundar fótbolta og frjálsar íþróttir og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir sem stundar frjálsar íþróttir. Hafa þau bæði verið félaginu til mikils sóma bæði í leik og keppni.

Fyrir hönd Ungmenna- og íþróttafélagsins Smára

Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 



 

Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar tók að sér að vera með mót í motocross júní 2010, MSÍ óskaði svo eftir breytingu og Ólafsfirðingar fengu að halda keppnina.  Það voru því engin mót haldin á vegum VS þetta árið. 

Almenn gleði ríkti hjá íslensku endurofólki þegar ákveðið var að halda Klausturskeppni á ný, eftir nokkurra ára hlé.  Á Klaustur fóru 12 félagar innan VS til að keppa og gekk á ýmsu.

Eins og undanfarin ár hjálpuðu félagar Bílaklúbbi Skagafjarðar við gæslu í Skagafjarðarrallinu. 

Vélhjólaklúbburinn fjárfesti í íbúðagámi sem staðsettur var við Miklavatn í vetur.  Ómar Jensson og Vilborg Elísdóttir buðu klúbbnum að hafa aðstöðu í landi Gils til að stunda ísakstur.  Var þetta höfðinglega boð þegið með þökkum og hafa félagsmenn verið duglegir að nota sér aðstöðuna og hægt var að byrja að hjóla um jólin.  Klúbbnum var gefinn Ford-trukkur sem gekk í gegnum nokkrar lýtaaðgerðir og ,,tannviðgerðir“ til þess að hægt væri að skafa ísinn með honum.  Það er mikil lyftistöng fyrir félagið að geta stundað íþróttina bæði sumar og vetur og vonast er til að framhald verði á því.

Nýafstaðið er innanhúsmót í endurocross sem haldið var í Reiðhöllinni Svaðastöðum og er liður í íslandsmótaröð. Þetta var fyrsta íslandsmótið í endurocross og þótti vel til takast.

Framundan eru tvö íslandsmót, motocross í byrjun júní og enduro í byrjun september.

Ásta Jónsdóttir

 

Lög Ungmennasamabands Skagafjarðar

 

1. grein

Sambandið heitir Ungmennasamband Skagafjarðar, skammstafað UMSS. Félagssvæði sambandsins er Skagafjarðarhérað.

2. grein

Lögheimili og varnarþing UMSS er hið sama og lögheimili formanns hverju sinni.

3. grein

Markmið sambandsins er:

-          að stuðla að auknu samstarfi sambandsfélaganna um íþróttamál í samræmi við gildandi íþróttalög og leikreglur ÍSÍ.

-          að vinna að öðrum sameiginlegum hagsmuna- og áhugamálum félaganna og vera málsvari þeirra út á við.

-          Að vinna að hverskonar menningar og framfaramálum og starfa í samræmi við stefnuskrá og lög Ungmennafélags Íslands.

4. grein

Rétt til þátttöku í UMSS eiga þau ungmenna- og íþróttafélög sem starfa eða munu starfa á sambandssvæði UMSS, enda séu lög þeirra í samræmi við lög UMFÍ og ÍSÍ.

5. grein

Ársþing UMSS skal haldið þar á sambandssvæðinu sem síðasta ársþing eða sambandsstjórn ákveður. Ársþing skal halda eigi seinna en í marsmánuði ár hvert, til þess skal boðað skriflega með mánaðar fyrirvara. Ársþing er löglegt sé löglega til þess boðað.

Stjórn sambandsins boðar til aukaþings ef þörf krefur eða um það koma áskoranir frá 1/3 aðildarfélaga. Enn fremur ef um það koma tilmæli frá stjórnum landsambandanna, UMFÍ eða ÍSÍ.

Ákvæði um bókun aukaþings og framkvæmd eru hin sömu og reglulegs ársþings.

6. grein

Ársþing er æðsta stofnun UMSS. Þar skal sambandsstjórn leggja fram skriflega skýrslu um liðið starfsár svo og endurskoðaðan ársreikning fyrir sama ár. Þingið kýs stjórn, skoðunarmenn reikninga samkvæmt 7. og 8. grein þessara laga svo og kjörnefnd og aðrar starfsnefndir sem við á hverju sinni.

Sambandsstjórn er heimilt að stöðva allar lottógreiðslur til þeirra aðildarfélaga sem ekki uppfylla ákvæði 13. greinar, þar til skil hafa verið gerð.

7. grein

Dagskrá ársþings skal vera þessi:

1.       Formaður setur þing og lætur kjósa þingforseta.

2.       Kosinn þingforseti sem tekur við stjórn þingsins.

3.       Kosinn varaþingforseti, þingritari og varaþingritari.

4.       a) kosin skal 3 manna kjörbréfanefnd sem tekur þegar til starfa.

b) kosin skal 5 manna kjörnefnd sem tekur þegar til starfa.

5.       Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar.

6.       Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.

7.       Kjörbréfanefnd skilar áliti

8.       Atkvæðagreiðsla um skýrslu og reikninga

9.       Ávörp gesta

10.   Mál lögð fyrir þingið sem kynnt hafa verið í fundarboði.

11.   Tillögur lagðar fram af þingfulltrúum

12.   Nefndarkosning (val)

a)       Allsherjarnefnd      b) Fjárhagsnefnd     c) Íþróttanefnd              d) Aðrar nefndir

13.   Nefndarstörf

14.   Þingnefndir skili áliti og tillögur þeirra, sem ekki falla undir síðari liði, teknar til umræðu og afgreiðslu.

15.   Fjárhagsáætlun samþykkt.

16.   Kosningar (kosningar skulu vera skriflegar, nema því aðeins að stungið sé upp á jafn mörgum og kjósa skal)

a)       kosin stjórn og varastjórn

b)      kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara

c)       kosið í nefndir og ráð sambandsins eftir því sem þing ákveður hverju sinni

17.   Önnur mál.

18.   Þingslit.


 

8. grein

Sambandsstjórn skipa fimm menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.

Formaður skal kosinn til eins árs. Stjórnarmenn aðrir en formaður skulu kosnir til tveggja ára og skipta með sér verkum í stjórn

Þá skulu kosnir þrír menn í varastjórn til eins árs í senn.

Gefi stjórnarmaður sem sitja skal áfram kost á sér til formannskjörs er heimilt að kjósa hann og þá annan í hans embætti það sem eftir er kjörtímabilsins.

9. grein

Ársþing skal ákveða árgjöld aðildarfélaganna til UMSS fyrir næsta starfsár. Gjalddagi þess skal vera 1. maí. Reikningsár UMSS er almanaksárið.

10. grein

Einfaldur meirihluti ræður úrslitum á þingum sambandsins. Til breytinga á lögum þarf þó 2/3 atkvæða.

Atkvæðagreiðsla fari fram skriflega sé þess óskað.

11. grein

Formenn aðildarfélaga eru sjálfkjörnir sem fulltrúar á ársþing og varamenn í forföllum þeirra.

Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags ákvarðast að öðru leiti af tölu skattskyldra félaga (16 ára og eldri) um næstliðin áramót þannig:

-          tveir fulltrúar fyrir 50 félagsmenn eða færri

-          3 fulltrúar fyrir 51 – 100 félagsmenn

-          4 fulltrúar fyrir 101 – 150 félagsmenn

-          5 fulltrúar fyrir 151 – 200 félagsmenn

Síðan bætist við einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn.

Atkvæðisrétt á þingum sambandsins hafa einungis kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna og stjórn UMSS.

Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á fundum ungmennafélaganna.

12. grein

Umsóknir um inngöngu í sambandið skulu berast stjórninni ásamt skýrslum um stofndag og ár, lögum félagsins, félagaskrá og upplýsingum um stjórn þess. Stjórn UMSS sannreynir að starfsemi og lög viðkomandi félags samræmist lögum og stefnum UMFÍ og ÍSÍ. Ársþing hið næsta eftir að umsókn berst staðfestir inngöngu nýrra aðildarfélaga.

Úrsögn aðildarfélaga getur aðeins farið fram á ársþingi. Þeim félögum sem eigi hafa í tvö ár samfellt gert skil á árgjöldum eða ársskýrslum má víkja úr sambandinu, enn fremur þeim sem að öðru leiti gerast brotleg gagnvart lögum þess.

13. grein

Við hver áramót skal hvert félag senda skýrslu um hag sinn og starfsemi samkvæmt fyrirmælum UMFÍ og ÍSÍ.

Skýrslu þessari skal skila til sambandsstjórnar fyrir 15. mars ár hvert.

14. grein

Stjórn UMSS fer með málefni sambandsins milli þinga, eftir þeim reglum og innan þeirra takmarka sem lög og samþykktir setja. Hún veitir móttöku öllu því fé sem sambandinu áskotnast, ávaxtar sjóði þess og fer með þá samkvæmt fjárhagsáætlun samþykktri á ársþingi.

15. grein

Sambandsstjórn skal halda fundi svo oft sem þurfa þykir. Þannig skal boða alla stjórn og varastjórn. Varastjórn hefur aðeins málfrelsi og tillögurétt á þessum fundum nema um forföll sé að ræða í aðalstjórn.

16. grein

Komi fram tillaga á löglega boðuðu ársþingi UMSS um sambandsslit skal hún þegar tekin til umræðu og atkvæði um hana greidd. Því aðeins 4/5 atkvæðisbærra fulltrúa á þingi samþykki tillöguna skoðast hún samþykkt, þá skal þinginu slitið tafarlaust.

Fráfarandi stjórn situr áfram í fullu umboði og skal hún boða til aukaþings innan tveggja mánaða.

Þá skal tillagan borin upp að nýju. Sé hún samþykkt með 4/5 greiddra atkvæða fulltrúa á þinginu, skulu það heita lögleg sambandsslit.

Verði tillagan aftur á móti felld skulu þingstörf halda áfram þar sem frá var horfið í fyrri fundi.

17. grein

Komi til sambandsslita samkvæmt 16. grein eða ef starfsemi UMSS fellur niður skulu sjóðir þess og aðrar eignir vera í vörslu UMFÍ þar til stofnað hefur verið annað samband aðildarfélaga UMFÍ í Skagafjarðarhéraði.

18. grein

Lög þessi öðlast þegar gildi og með þeim úr gildi fallin öll eldri lög Ungmennasambands Skagafjarðar.

Lög þessi voru samþykkt á ársþingi 1989. Breytt á ársþingum 1990, 1991, 1994, 1995, 1999, 2000 og 2002


 

 

Lottóreglugerð - úthlutun

5%    Afreksmannasjóður UMSS

5%    Landsmóssjóður UMSS

25%  Til reksturs UMSS

20%  Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda félagsmanna samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ

45%  Skipt á starfandi félög innan UMSS í hlutfalli við fjölda iðkenda samkvæmt upplýsingum í innsendum ársskýrslum til ÍSÍ

 

 

Reglugerð um vinnulag við val á Íþróttamanni Skagafjarðar

1. Val á íþróttamanni Skagafjarðar skal kynnt á hátíðarsamkomu UMSS um hver áramót.

2. Aðildarfélög UMSS skal gefinn kostur á að tilnefna einn fulltrúa fyrir hverja íþróttagrein sem stunduð er hjá viðkomandi félagi fyrir 10.  desember til þess að verða útnefndur íþróttamaður ársins.  Einnig er stjórn UMSS heimilt að tilnefna fulltrúa til viðbótar til að vera í kjöri.  Með tilnefningu skal fylgja greinargerð, þar sem íþróttaafrek viðkomandi íþróttamanns eru tíunduð. Byggist á árangri í keppni fullorðinna.

3. Valnefnd Íþróttamanns Skagafjarðar skal skipuð eftirfarandi fulltrúum; stjórn UMSS, formanni í Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar, fulltrúa fréttablaðsins Feykis, Íþróttafulltrúa, formönnum aðildarfélaga og deildum innan Tindastóls

4. Valnefnd skal greiða 5 íþróttamönnum atkvæði sitt og raða þeim upp í sæti 1 til 5 og skal íþróttamaður í; fyrsta sæti hljóta 10 stig, öðru sæti hljóta 8 stig, þriðja sæti hljóta 6 stig, fjórða sæti 4 stig og í fimmta sæti 2 stig.  Sá íþróttamaður sem hlýtur flest stig skal verða útnefndur íþróttamaður Skagafjarðar.

 

 

Reglugerð um Afreksmannasjóð

  1. grein. Sjóðurinn heitir Afreksmannasjóður UMSS.

  2. grein. Tilgangur sjóðsins er sá að styrkja Skagfirska afreksmenn til æfinga og keppni.

  3. grein. Stjórn sjóðsins skal skipuð 3 mönnum og 1 til vara. Ársþing UMSS kýs 2 menn í stjórnina og 1 til vara, sem ekki eru í aðalstjórn UMSS. Stjórn UMSS tilnefnir síðan 1 úr aðalstjórn, sem formann sjóðsstjórnar. Stjórn sjóðsins skal skipuð til eins árs í senn.

  4. grein. Tekjur sjóðsins verði ákveðið hlutfall tekna UMSS af íslenskri Getspá, skv. reglugerð hverju sinni. Auk þess frjáls framlög einstaklinga, stofnana og fyrirtækja.

  5. grein. Heimilt er að veita úr sjóðnum, á hverjum tíma, öllu því fé sem í honum er. Sjóðsstjórn ákveður styrktarupphæð hverju sinni.

  6. grein. Rétt til styrkveitinga eiga þeir, sem skara fram úr í íþróttgrein sinni, t.d. eru í landsliði, sigra á Íslandsmeistaramóti, setja Íslandsmet, eða á annan hátt sína að þeir eru afreksmenn í íþróttum.

  7. grein. Til að hljóta styrk, þurfa viðkomandi íþróttamenn eða félög þeirra, að sækja skriflega um til sjóðsstjórnar og jafnframt að gera grein fyrir ástæðum umsóknarinnar.

  8. grein. Sjóðstjórn skal á hverju ársþingi UMSS gera grein fyrir styrkveitingum úr sjóðnum.

  9. grein. Endurskoðendur UMSS eru jafnframt endurskoðendur reikninga sjóðsins.

10. grein. Fundir skulu haldnir a.m.k. ársfjórðungslega. Formaður boði til þeirra.

11. grein. Breytinga á reglugerð þessari er hægt að gera á ársþingi UMSS að fengnu samþykki meirihluta atkvæða.