Körfuboltakrakkar UMSS gerðu góða hluti á Unglingalandsmótinu á Egilsstöðum um helgina. Lið undir merkjum UMSS unnu eit
t gull og eitt silfur og Hvolparnir, sem eru strákar úr Tindastóli, unnu til bronsverðlauna. Þá voru einstaklingar frá okkur í bræðingsliðum og stóðu sig vel.
Stelpurnar í 13-14 ára flokknum kepptu til úrslita við lið Keflavíkur í sínum flokki en biðu lægri hlut eftir að hafa sigrað sama lið deginum áður í riðlakeppninni. Í liði UMSS voru þær Árdís Eva Skaftadóttir, Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir, Sigríður Lára og Margrét Lilja Stefánsdætur, Linda Þórdís Róbertsdóttir, Bríet Lilja Sigurðardóttir, Jóna María Eiríksdóttir og Anna Valgerður Svavarsdóttir.
Strákarnir í flokki 15-16 ára lentu í 5. sæti í sínum aldursflokki, eftir að hafa sigrað í úrslitaleik um það sæti. Í liðinu voru þeir Árni Freyr Sigurðsson, Agnar Ingi Ingimundarson, Haukur Hlíðar Ásbjarnarson, Bjarni Þórir Tómasson og Sigurður Páll Stefánsson.
Hvolparnir hét lið með strákum úr Tindastóli, en þeir lentu í 3. sæti í 15-16 ára strákaflokknum. Leikmenn þar voru þeir Friðrik Rondo Jóhannsson, Viðar Ágústsson, Pétur Rúnar Birgisson, Kristinn Gísli Jónsson og Ólafur Starri Pálsson.
Þá keppti Ásthildur Ómarsdóttir með stúlkum úr USVH í flokki 11-12 ára en þær stöllur urðu í 2. sæti. Hún gerði ekki aðeins það, heldur spilaði upp fyrir sig líka og meira að segja langt upp fyrir sig í aldursflokki með USVH/HSS og sýndi frábæran dugnað.
Þá kepptu þeir Pálmi Þórsson og Elvar Ingi Hjartarson í samsuðuliði sem hét Miami í flokki 13-14 ára stráka og lentu þeir í öðru sæti eftir harða keppni við lið Fjölnis.
Krakkarnir okkar stóðu sig afar vel og voru félagi sínu og sambandi til sóma.
Tekið af tindastóll.is