Unglingalandsmót 2013 á Hornafirði og 2014 á Sauðárkróki

Á mótssetningu Unglingalandsmótsins í gærkvöldi tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdótir, formaður Ungmennafélags Íslands, hvar Unglingalandsmótin 2013 og 2014 yrðu haldin. Stjórn UMFÍ komast að þeirri ákvörðun að mótið 2013 færi fram á Hornafirði og 2014 yrði mótið á Sauðárkróki.

 

Eins og áður hefur komið fram verður Unglingalandsmótið 2012 haldið á Selfossi.