Annað Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri hefst í Mosfellsbæ á föstudag og stendur fram á sunnudag. Það stefnir í góða þátttöku en alls hafa um 800 skráningar borist. Í tengslum við mótið verður efnt til málþings Heilsuvinjar sem ber yfirskriftina Bætt heilsa, betra líf - hvað þarf til? Málþingið fer fram í hátíðarsal Varmárskóla föstudaginn 8. júní og hefst kl. 13. Keppni hefst strax á föstudag í nokkrum greinum en mótssetning verður klukkan 19 um kvöldið.
Fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga í fyrra og tókst einstaklega vel. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Kjalarnesþings, í samstarfi við Mosfellsbæ og Heilsuvin.
Mótið er íþrótta- og heilsuhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Greinarnar eru: badminton, blak, boccia, bridds, frjálsar íþróttir, golf, Álafosshlaup, hestaíþróttir, hringdansar, knattspyrna, kraftlyftingar, línudans, pútt, ringó, skák, sund, starfsíþróttir, strandblak, sýningar og þríþraut.
Fjölbreytt afþreying verður í boði alla mótsdagana. Auk þess verða haldnir áhugaverðir fyrirlestrar um heilsu og hreyfingu. Athygli skal vakin á því að aðgangur að tjaldsvæðum er ókeypis. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag mótsins og dagskrána í heild má sjá á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi 50.is.
Landsmót UMFÍ 50+ er tilvalinn vettvangur til að hittast, etja kappi og eiga góða stund saman. Að sögn Sigurðar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Landsmóts UMFÍ 50+, er undirbúningur nú á lokastigi og hefur hann gengið að óskum fram að þessu. Sigurður sagði að hægt verði að skrá sig til þátttöku í mótinu fram til fimmtudagskvölds.
Heimild:umfi.is