Sigurbjörn íslandsmeistari í 10000 m hlaupi - 11/9/2003

Sigurbjörn Árni Arngrímssson sigraði í 10000 m hlaupi á Meistaramóti Íslands sem haldið var 2. september síðastliðinn á Kaplakrikavelli. Hann hafði mikla yfirburði í hlaupinu (tíminn 33:28,08 mín) og var næsti maður um 2 mínutum á eftir.

 

Góður árangur á MÍ 12-14 ára í frjálsum - 1/9/2003

Helgina 16-17 ágúst síðastliðinn var Meistaramót Íslands í flokkum 12-14 ára haldið á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum. UMSS sendi þangað flokk efnilegra krakka sem stóðu sig mjög vel. Hæst ber árangur Elvu Friðjónsdóttur sem hreinlega fór á kostum og vann 4 greinar. Eins sigraði boðhlaupsveit stelpna í flokki 13 ára af nokkru öryggi.

UMSS sigraði þristinn - 28/8/2003

Þriðjudaginn 19. ágúst síðastliðinn var hin árlega keppni í flokkum 14 ára og yngri milli UMSS, USVH og USAH haldin í Varmahlíð. Keppnin var í alla staði hin skemmtilegasta og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu grein. Þegar upp var staðið munaði aðeins tveimur stigum á UMSS sem sigraði og liði USVH sem lenti í öðru sæti.

Þristurinn 19. ágúst - 13/8/2003

Hin árlega keppni, 14 ára og yngri, milli UMSS, USAH og USVH verður haldin í Varmahlíð þriðjudaginn 19. ágúst næstkomandi kl 18:30.
Keppnisgreinar verða eftirfarandi (2 frá hverju sambandi í hverja grein):
12 ára og yngri: 60 m hlaup, 800 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, 4x100 m boðhlaup.
13-14 ára: 100 m hlaup, 800 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast, 4x100 m boðhlaup.

UMSS endaði í þriðja sæti í Bikarkeppninni - 9/8/2003

Þrátt fyrir hetjulega baráttu náði lið UMSS ekki að vinna sig ofar en í þriðja sætið á eftir liði FH sem sigraði enn eitt árið og liði Breiðabliks sem lenti í öðru sæti. Þess ber að geta að öflugasta fólkið í Breiðablik eru fyrrum UMSS ingar þau Björn Margeirsson, Jón Arnar Magnússon og Þórunn Erlingsdóttir.

Syndicate content