Landsmót UMFÍ 50+ 28.-30. júní í Neskaupstað

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í eitthvert íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Þátttökugjald er 4.900kr.

Í sumar fer mótið fram í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní.  Neskaupstaður er í sveitarfélaginu Fjarðabyggð og þar býr öflugt fólk á fallegum stað.  Samfélagið er ríkt af góðum íþróttamannvirkjum sem mótsgestir fá að njóta.