102. Ársþing UMSS 2022

102. ársþing UMSS verður haldið laugardaginn 12. mars í Húsi frítímans kl. 13:00

Formenn aðildarfélaga eru sjálfkjörnir sem fulltrúar á ársþing og varamenn í forföllum þeirra.

Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags ákvarðast að öðru leiti af fjölda félagsmanna aðildarfélaganna.  Tala félagsmanna skal miðuð við tölu gjaldskyldra félaga (18 ára og eldri) við síðustu áramót.

-          2 fulltrúar auk formanns fyrir 0-100 félagsmenn.

-          3 fulltrúar auk formanns fyrir 101-150 félagsmenn.

-          4 fulltrúar auk formanns fyrir 151-200 félagsmenn.

Síðan bætist við einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 100 félagsmenn að 1000 félögum, en einn fulltrúa á hverja byrjaða 200 félaga þar fyrir ofan.

Atkvæðisrétt á þingum sambandsins hafa einungis kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna og stjórn UMSS.  Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á fundum ungmennafélaganna. Auk þess eiga seturétt á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, fulltrúar í sérráðum UMSS, aðrir sem kjörnir eru í trúnaðarstöður hjá sambandinu og þeir aðrir sem stjórn UMSS býður til þings.

Dagskrá þings

Þingtillögur (uppfærð fjárhagsáætlun f. 2022)

Þingskjal 7 - 8 - 9

Árskýrsla 2021

Ársreikningur 2021

 Í lok þings mun UMSS tilkynna val og afhenda viðurkenningar til Íþróttamanns, Liðs og Þjálfara ársins 2021.