Keppnin er hafin.
Golfið startaði helginni og hófust leikar þar kl. 13:20 þar verður sveiflað kylfum til kl. 21:00 í kvöld.
Krakkahreysti fer á stað kl. 17:00 nánari upplýsingar um það er hægt að finna hér.
Júdó keppni hefst kl. 18 í íþróttahúsið Sauðárkróks
Þátttakendur eru beðnir um að hefja heimsókn sína á því að sækja þátttökuarmband í þjónustumiðstöð mótsins í Árskóla.
Í dagskrá mótsins er hægt að smella á hverja keppnisgrein og fara beint inn á síðu með nánari upplýsingum um greinina, svo sem ráslista, reglur og fyrirkomulag.
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad-kerfi, sem byggir á sjálfvirkri styrkleikaröðun. Í fyrstu umferð er liðum parað saman af handahófi en eftir það mætast lið með sambærilegan árangur. Hvert lið spilar fyrirfram ákveðinn fjölda leikja á mótinu.
Hér er að finna hlekk þar sem hægt er að sjá nöfn í liðum, leikjaplan í flestum greinum og hvenær og hvar leikir fara fram (Monrad-app).
Í Abler-appinu getur hver þátttakandi einnig séð sína eigin dagskrá með öllum þeim greinum og viðburðum sem hann eða hún tekur þátt í.
Allt mótssvæðið er á sama stað og á meðfylgjandi korti má sjá staðsetningu keppnissvæða, þjónustu og helstu mannvirkja.
Tjaldsvæði mótsins er skipt niður eftir landshlutum til að auðvelda þátttakendum og fjölskyldum að finna sitt svæði. Á meðfylgjandi mynd má sjá skipulag tjaldsvæðisins og hvernig því hefur verið skipt upp. Sjá mynd af tjaldsvæðinu (PDF).
Sjáumst hress um helgina!