Afreksbúðir ÍSÍ fyrir ungt íþróttafólk 14. nóvember

Afreksbúðirnar eru ætlaðar íþróttafólki á aldrinum 15 til 20 ára, árgöngum 2006 til 2011, sem er meðal annars í hæfileikamótun, afrekshópum og unglingalandsliðum sérsambanda. Hafa skal í huga að búðirnar eru ætlaðar ungu íþróttafólki á afreksstigi í sinni íþróttagrein.

Sérsambönd bera ábyrgð á skráningu þátttakenda og hafa fengið sendar upplýsingar um hana. Skráningarfrestur er til og með 6. nóvember. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við sitt sérsamband.

Fyrirlesarar 14. nóvember

  • Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, fjallar um afreksmanneskjuna og hvernig við byggjum upp sterkan einstakling.
  • Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður, fjallar um hvernig best er að koma fram í fjölmiðlum og veitir þátttakendum dýrmæta innsýn og hagnýt ráð.