ALLIR MEÐ

Á morgun fer fram í Reykjavík málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum í dag.

Yfirskrift málþingsins er ALLIR MEÐ – Ferðin hingað og ferðalagið framundan.

Á málþinginu verður fjallað um stöðu fatlaðra barna í íþróttum í dag, rannsókn um þátttöku, reynslu barna, foreldra og íþróttafélaga sem og þau verkefni og samstarf sem þegar eru í gangi. Við munum ræða hvernig ná megi betur til forledra, styrkja íþróttafélög og þjálfara ásamt því að. Skoða úrræði og lausnir sem eru til staðar.

Öllum er velkomið að mæta, taka þátt í deginum og leggja sitt af mörkum til að allir fái að vera með.

Fullt er á málþingið en því verður streymt hér

Dagsetning: 30. janúar 2026
Tímasetning: 09:00-13:00
Staðsetning: Minigarðurinn, Skútuvogur 2, 104 Reykjavík

Nánari upplýsingar á viðburðarsíðu málþingsins sem má finna hér

Að verkefninu ALLIR MEÐ koma Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, ÍSÍ, UMFÍ, Íþróttasamband fatlaðra, Special Olympics Iceland, ÖBÍ og Þroskahjálp.