Allir með - Vinnustofa um íþróttir fatlaðra í Skagafirði

Allir með!

UMSS, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) boða til vinnustofu fyrir forsjáraðila, íþróttaþjálfara, starfsfólk skóla og áhugafólk um íþróttir 2 júní kl. 17:00 í Hús frítímans.  
Á vinnustofunni ætlum við að ræða hvernig við getum komið af stað skipulögðum æfingum eða komið fötluðum og þeim sem finna sig ekki í almennum íþróttum betur inn í það íþróttastarf sem er nú þegar í boði í Skagafirði. Hér í Skagafirði hefur verið takmarkað framboð í boði af íþróttum fyrir fatlaða en íþróttastarf í Skagafirði er mjög fjölbreytt og því mikil sóknarfæri í að efla íþróttir fyrir fatlaða. 
Það er ósk okkar að þið sjáið ykkur fært um að mæta í Hús frítímans 2. júní kl. 17:00 þar sem við getum átt góða stund, deilt sjónarmiðum okkar og tekið þátt í að efla íþróttastarf fyrir fatlaða í Skagafirði. 
 
Vinnustofa um íþróttir fatlaðra í Skagafirði 
Staðsetning vinnustofu: Hús frítímans, Sæmundargötu 7 
Dagsetning: 2. júní 2025 
Kl. 17:00 – 19:00 
Fyrir hverja: Alla þá sem hafa áhuga á því að efla íþróttastarf fyrir fatlaða og þá sem finna sig ekki í almennu íþróttastarfi.  
Dagskrá:  
Kl. 17:00 – Setning vinnustofu 
Kl. 17:05 – Valdimar,  Allir með 
Kl. 17:20 – Annika, Júdódeild Tindastóls 
Kl. 17:35 -  Erindi frá foreldri 
Kl. 17:50 -  Anna Karolína, Íþróttasamband Fatlaðra 
Kl. 18:05 - Vinnuhópar og umræður 
Kl. 18:50 – Samantekt 
*Athugið dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.  
 

SKRÁNING - Vinsamlegast skráið ykkur hér

 
Allir með verkefnið 
Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi. Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. 
Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025. 
  
Markmið: 
Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna 
Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun. 
Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap 
Verkefnið fór af stað í byrjun árs 2023 og var Valdimar Gunnarsson ráðinn verkefnisstjóri og hefur hann aðsetur á Skrifstofu ÍF 
 
Hér er hægt að skoða heimasíðu Allir með 
Hér er hægt að skoða heimasíðu ÍF Íþróttasamband fatlaðra