Astmi og íþróttir

Vakin er athygli á rafrænni útgáfu á fræðslubæklingi Astma- og ofnæmisfélags Íslands og ÍSÍ um astma og íþróttir.

Bæklingurinn er aðgengilegur á heimasíðu ÍSÍ, https://www.isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Astmi%20og%20íþróttir?= 

Astmi getur versnað í kulda og því er vert að minna á þetta fræðsluefni nú yfir vetrarmánuðina og hvetja íþrótta- og ungmennafélög til þess að koma því á framfæri við sína þjálfara.

Mikilvægt er að þjálfarar kunni skil á helstu einkennum og því helsta sem að gagni getur komið fyrir þá iðkendur sem þjást af sjúkdómnum.

Ef nánari upplýsinga er þörf, þá er hægt að hafa samband við Astma- og ofnæmisfélag Íslands, netfang ao@ao.is.