Skráning er hafin! á Unglingalandsmót 2026 sem verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Þátttakendur UMSS greiða eitt þátttökugjald, 5.000 kr. óháð því hvað þeir taka þátt í mörgum keppnisgreinum. Gjaldið þarf að greiða rafrænt við skráningu á mótið. Aðeins er greitt fyrir þátttakendur 11 – 18 ára. Frítt er fyrir systkini og foreldra.
Eftir að skráningarfresti lýkur verður ekki hægt að skrá sig rafrænt né tryggja þátttöku í öllum greinum. Hins vegar munum UMFÍ reyna að gera sitt besta til að allir geti tekið þátt. Ef þið lendið í vandræðum sendið póst á umfi@umfi.is.
Við hvetjum því þátttakendur til þess að skrá sig tímanlega.
Skráning í greinar
Þegar þú ert búin/n að skrá þátttakanda á mótið í Abler, þá ættirðu að fá tölvupóst með hlekk á. Hlekkurinn vísar á skráningu í greinar. Ef þú hefur ekki fengið hlekkinn eða vilt fara beint á skráningarsíðuna í gegnum appið þá þarftu að fara þessa leið:
- Opnaðu Abler–appið.
- Farðu inn á prófílinn þinn.
- Smelltu á hnappinn: „Verslanir og markaðstorg“.
- Veldu „Markaðstorg“.
- Veldu „Ungmennafélag Íslands“.
- Ýttu á upphafsstafi/prófílmynd þína (efst í hægra horninu).
- Farðu í „Skráningar“.
- Finndu Unglingalandsmótið og ýttu á „Sjá meira“.
Nú ættir þú að geta skráð þig og þína í greinar og/eða skoðað þær sem þú eða þátttakandinn er þegar skráð/ur í.
Ef þið hafið spurningar þá finnið þið líklega svör við þeim hér, annars hafið þið samband á netfangið umfi@umfi.is