COVID -19 hertar reglur taka gildi 25. mars 2021.

Gripið verður til hertra aðgerða í sóttvörnum vegna fjölgunar á smitum í samfélaginu á morgun 25. mars.

Hópsýkingarnar að undanförnu eru allar af völdum breska afbrigðis kórónaveirunnar sem er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og veldur frekar alvarlegum veikindum. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að hertar aðgerðir taka nú til barna allt frá grunnskólaaldri þar sem sýnt þykir að breska afbrigðið veldur meiri einkennum hjá eldri börnum en önnur afbrigði veirunnar. 

Nýjar reglur taka gildi á miðnætti og munu gilda í þrjár vikur. Heilbrigðisráðuneytið á eftir að birta reglugerð um takmarkanirnar en samkvæmt heimasíðu ráðuneytisins verða helstu þættir sem varða íþróttastarfið eftirfarandi:

Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir. Börn í leikskólum eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum.

  • Almennar fjöldatakmarkanir 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.
  • Sund- og baðstaðir lokaðir.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
  • Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.   Athugið að ósamræmi er á milli minnisblaðs sóttvarnalæknis og upplýsinga á heimasíðu heilbrigðisráðuneytis hvað þennan lið varðar en reglugerðin mun væntanlega skera úr um það sem í gildi verður.

Sjá nánar minnisblað sóttvarnalæknis og upplýsingar á heimasíðu heilbrigðisráðuneytis: