COVID -19 breyttar reglur taka gildi 24. febrúar 2021.

Heilbrigðisráðherra hefur kynnt umtalsverðar tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum sem taka gildi miðvikudaginn 24. febrúar.

Allt að 200 manns mega horfa á íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, skíðasvæði og sundstaðir mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda og allt að 150 nemendur verða heimilaðir í hverju rými á öllum skólastigum. Fjöldatakmarkanir fara úr 20 manns í 50, samkvæmt nýjum tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag.

Breytingarnar taka gildi á morgun, miðvikudaginn 24. febrúar.

Breytingar á samkomutakmörkunum í hnotskurn:

  • 200 áhorfendur mega vera á íþróttaviðburðum.
  • Einn metri verður að vera á milli fólks.
  • Gestir mega ekki sitja andspænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
  • Þátttaka allra gesta skal skráð þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer.
  • Allir skulu nota andlitsgrímu og tryggt að fjarlægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
  • Heimilt er að hafa hlé á sýningum en áfengisveitingar og áfengissala á viðburðum er óheimil.
  • Koma skal í veg fyrir hópamyndanir, jafnt fyrir og eftir viðburð og í hléi.
  • Ef ekki er hægt að uppfylla eitthvert framantalinna skilyrða gildir reglan um 50 manna hámarksfjölda á viðburðinum.
  • Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum.
  • Sund- og baðstaðir: Gestir mega vera 75% af leyfilegum hámarksfjölda.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Gestir mega vera 75% af leyfilegum hámarksfjölda. Í  hverju rými mega nú að hámarki vera 50 manns. 
  • Skíðasvæði: Heimilt er að taka á móti 75% af hámarksfjölda af móttökugetu hvers svæðis.

Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir sem taka gildi 24. febrúar.

Reglur um grímunotkun verða óbreyttar og áfram verður 2 metra nándarregla meginviðmið en þó með ákveðnum undantekningum eins og lesa má á vef Stjórnarráðsins.

Meira um tilslakanirnar

Frétt fengin frá UMFÍ