Reitur 1055 Móttekin framlög vegna almannaheillastarfsemi frá einstaklingum
Heildarfjárhæð framlaga án gagngjalds sem mótteknar voru frá einstaklingum á rekstrarárinu 2025. Hafi lögaðili verið skráður í fyrsta sinn á almannaheillaskrá á rekstrarárinu 2025, þá ber hér aðeins að gera grein fyrir heildarfjárhæð framlaga og styrkja einstaklinga talið frá og með umsóknardegi til loka árs.
Reitur 1056 Móttekin framlög vegna almannaheillastarfsemi frá lögaðilum
Heildarfjárhæð framlaga án gagngjalds sem mótteknar voru frá öðrum lögaðilum á rekstrarárinu 2025. Hafi lögaðili verið skráður í fyrsta sinn á almannaheillaskrá rekstrarárið 2025, þá ber hér aðeins að gera grein fyrir heildarfjárhæð framlaga og styrkja frá öðrum lögaðilum talið frá og með umsóknardegi til loka árs.
Samtala fjárhæða í reitum 1055 og 1056 ætti almennt að vera jöfn heildarfjárhæð framlaga samkvæmt árlegum gagnaskilum félagsins á almannaheillamiðum (fyrir 20. janúar ár hvert), sem m.a. er grundvöllur áritaðs frádráttar á framtal gefenda.
Reitur 3750 Ráðstöfun styrkja/framlaga til almannaheilla
Hér skal gera grein fyrir ráðstöfun styrkja/framlaga beint til þeirra almannaheillamálefna sem starfsemi lögaðilans snýr að. Hér er um að ræða ráðstöfun framlaga til kaupa á vörum og tækjum og launakostnað vegna beinnar vinnu við almannaheillamál o.þ.h. Einnig beinir peningalegir styrkir, s.s. vegna náms, kaupa á búnaði vegna lækninga o.þ.h.
Reitur 3760 Önnur notkun styrkja/framlaga til almannaheilla (vörukaup, tækjakaup, rekstur á starfsemi).
Ráðstöfun styrkja/framlaga inn á við hjá lögaðilanum vegna almannaheillastarfseminnar. Hér er um að ræða kostnað vegna skrifstofuhalds, þ.m.t. launakostnað, kaupa á rekstrartækjum, reksturs húsnæðis og annars innri rekstrarkostnaðar.
Reitur 5210 Allir veltufjármunir í árslok (sjóður, bankainnstæður, verðbréf o.þ.h.)
Heildarfjárhæð veltufjármuna í árslok, s.s. sjóður, bankainnistæður, verðbréf, inneignir hjá greiðslukortafyrirtækjum o.þ.h.
Reitur 5220 Allar aðrar eignir í árslok
Heildarvirði annarra bókfærðra eigna í árslok, s.s. virði fasteigna, bifreiða, framleiðslutækja, innréttinga, tölvubúnaðar o.þ.h.