Ferðasjóður Íþróttafélaga

Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2021.

Umsóknarferlið í ár er með sama hætti og áður en þar sem mótahald á árinu 2020 var afar óhefðbundið vegna afleiðinga Covid-19 þá gæti komið til breytinga á úthlutunum þannig að heildarframlag sjóðsins verði ekki allt til úthlutunar.

Allar breytingar skulu unnar í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og staðfestar af því.

Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020.

Áætlað er að greiða út styrki úr sjóðnum í febrúar/mars 2021.
Við stofnun umsóknar fær umsækjandi senda vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.

Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.