Hafrún Kristjánsdóttir prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og starfsfólk deildarinnar hefur svipt hulunni af fræðslusíðu á netinu fyrir allt efni sem starfsfólkið hefur framleitt sjálft eða gert í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd, ÍBR og fleiri.
Á vefnum eru upptökur af kennslu, þáttaraðir og hlaðvörp en deildin heldur úti tveimur hlaðvörpum, Íþróttarabbi HR og RU Sport Psych Podcast.
Safnið er opið öllum og hugsað fyrir íþróttahreyfinguna í heild. Það má nýta í fræðslu innan félaga, sem ítarefni á þjálfaranámskeiðum eða sem hluti af námi þjálfara. Síðan er verk í vinnslu, lifandi vefur
Öll eru hvött til að skoða safnið, nýta efnið og deila því áfram.
https://fraedsla.ithrottafraedi.is