Fréttir frá aðildarfélögum og deildum

Frá Æfingabúðum IK Södra Judo í Stokkhólmi, Svíþjóð.
Mynd: Ragnheiður Blöndal Benediktsdóttir
Frá Æfingabúðum IK Södra Judo í Stokkhólmi, Svíþjóð.
Mynd: Ragnheiður Blöndal Benediktsdóttir

Iðkendur Júdódeildar Tindastóls lögðu land undir fót ásamt iðkendum frá Pardusi á Blönduósi og Ármanni í Reykjavík og tóku þátt í æfingabúðum í Júdó í Stokkhólmi í Svíþjóð síðastliðna helgi.

Það voru alls 34 júdóiðkendur, þjálfarar og foreldrar sem skelltu sér í langa helgarferð frá Íslandi til Svíþjóðar á æfingabúðir sem stóðu yfir frá 9. til 12. ágúst. Æfingabúðirnar voru haldnar í sumarbúðum júdófélagsins IK Södra Judo í suðurhluta Stokkhólms í kyrrlátu skógi vöxnu umhverfi. Auk Íslendinganna og gestgjafanna komu einnig iðkendur frá júdófélaginu Linköping Judo en kjarni þessa hóps hefur tvívegis áður hist á æfingabúðum, síðast í Varmahlíð fyrir ári síðan.

Móttökur gestgjafanna voru höfðinglegar. Þeir sáu um að enginn gengi svangur um svæðið með kjarngóðum málsverðum fyrir og eftir gæða júdóæfingar, skipulögðu afþreyingu og tókst að gera þess júdóhelgi alveg hreint frábæra í alla staði.

Meðal afþreyinga sem fólk nýtti sér inn á milli júdóæfinga má nefna Gröna Lund Tívolí, Skansen safn og dýragarð, götu- og búðaráp og sund í stöðuvatni í nágrenni sumarbúðanna.

Einn af hápunktum helgarinnar var laugardagskvöldið sem byrjaði með humarveislu og endaði svo á popp- og ísveislu eftir létta júdóæfingu, sem var óvænt skotið inn á milli rétta.

Þó að hópurinn hafi verið kvaddur með úrhellisrigningu á sunnudagsmorguninn stendur upp úr eftirminnileg og veðursæl júdóhelgi þar sem allir fóru nokkru ríkari en þeir komu.

Kvennalandsliðið í Júdó mun æfa í íþróttahúsinu á Sauðárkróki síðustu helgina í ágúst.

Sterkustu júdókonur landsins munu koma saman á Sauðárkróki helgina 24. til 26. ágúst næstkomandi og æfa undir stjórn landsliðsþjálfara kvenna í Júdó, Önnu Soffíu Víkingsdóttur.

Þó að um landsliðið sé að ræða eru þessar æfingabúðir líka hugsaðar fyrir allar stelpur, 15 ára og eldri, sem hafa áhuga á því að æfa Júdó. Það eru ekki sett nein beltaskilyrði fyrir þátttöku og geta yngri iðkendur með nægilega reynslu fengið undanþágu frá aldurstakmarki.

Þetta er fyrsta skrefið í að gera kvennajúdó sýnilegra á Íslandi og verður öllum boðið að fylgjast með opinni æfingu sem fer fram frá klukkan 15 til 17 laugardaginn 25. ágúst.

Það er heiður fyrir Júdódeild Tindastóls að Sauðárkrókur hafi orðið fyrir valinu sem æfingastaður og eru allir hvattir til að leggja leið sína í íþróttahúsið á laugardagseftirmiðdaginn og fylgjast með landsliðinu æfa.

Fréttir fengnar af www.tindastoll.is/judo