Fréttir frá Íþrótta- og Olýmpíusambandi Íslands

Í samskiptum UMFÍ og ÍSÍ við landlækni, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur komið fram að vegna mikill anna við að koma af stað starfi í leik- og grunnskólum landsins, í samræmi við þær reglur um nú gilda, hefur ekki náðst að ljúka undirbúningi fyrir þátttöku leik- og grunnskólabarna í íþróttastarfi. Því má gera ráð fyrir því að röskun verði á íþróttastarfi næstu daga þangað til íþróttafélög, skólasamfélagið og sveitarfélög hafa komið sér niður á lausnir til að halda úti starfi með þeim takmörkunum sem munu gilda næstu fjórar vikurnar. Í samskiptum við ofangreinda aðila hefur komið fram að til að unnt sé að undirbúa þetta verkefni og útfæra þær takmarkanir sem nú eru í gildi með fullnægjandi hætti væri heppilegt að gera ekki ráð fyrir því að íþróttastarf fyrir þennan aldurshóp fari af stað fyrr en mánudaginn 23. mars nk. ÍSÍ mælist til að farið verði eftir þessum tilmælum.

Varðandi íþróttaiðkun fullorðinna, þá er litið svo á að hún sé heimil að uppfylltum skilyrðum sem koma fram í auglýsingu heilbrigðisráðherra um samkomubann, þ.e. að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar inn í sama rými, hvort sem um er að ræða innan- eða utandyra. Þá skal sjá til þess, eftir því sem unnt er, að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga, gera ráðstafanir til að þrífa eða sótthreinsa búnað eða æfingasvæði daglega og tryggja aðgengi að hreinlætisaðstöðu til handþvotta og sótthreinsunar. Ljóst er að þessi skilyrði munu útiloka æfingar fjölmargra íþróttagreina. Íþróttafélögin, hvert fyrir sig, þurfa að koma því á framfæri við sína iðkendur og félagsmenn hvað af íþróttastarfsemi þeirra þau telja að geti farið fram að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram hafa komið. Rétt er að ítreka að það á ekki að gefa neinn afslátt af þeim kröfum sem yfirvöld hafa sett fram til að sporna við útbreiðslu þessarar veiru.

Landlæknir, sóttvarnarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra telur ekki ráðlagt að gera ráð fyrir því að íþróttastarf fyrir leik- og grunnskólabörn íþrótta- og ungmennafélaga fari af stað fyrr en mánudaginn 23. mars næstkomandi. Yfirvöld telja íþróttaiðkun fullorðinna heimila að uppfylltum skilyrðum samkvæmt því sem fram kemur í auglýsingu um samkomubann og birt var fyrir helgi þess efnis að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar inn í sama rými, hvort sem um er að ræða innan- eða utandyra. Þá skuli sjá til þess, eftir því sem unnt er, að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga, gera ráðstafanir til að þrífa eða sótthreinsa búnað eða æfingasvæði daglega og tryggja aðgengi að hreinlætisaðstöðu til handþvotta og sótthreinsunar.

Yfirvöld segja ljóst að að þessi skilyrði munu því miður útiloka æfingar fjölmargra íþróttagreina.

UMFÍ mælist til þess að sambandsaðilar UMFÍ og aðildarfélög fari að öllum tilmælum yfirvalda og leggi iðkendur ekki í hættu á að smitast af COVID-19 veirunni. Iðkendur eigi fremur að njóta vafans og því er mikilvægt að félög fylgi þeim fyrirmælum sem berast frá yfirvöldum.

Íþrótta- og ungmennafélög eru hvött til að koma því á framfæri við iðkendur og félagsmenn hvað af íþróttastarfsemi þeirra þau telja að geti farið fram að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram hafa komið. Rétt er að ítreka að það á ekki að gefa neinn afslátt af þeim kröfum sem yfirvöld hafa sett fram til að sporna við útbreiðslu þessarar veiru.

UMFÍ og ÍSÍ eru í stöðugu sambandi við yfirvöld og munu áfram deila út til íþróttahreyfingarinnar upplýsingum um leið og þær berast.