Golfklúbbur Sauðárkróks

Mynd: GSS.is
Mynd: GSS.is

Golfklúbbur Sauðárkróks sendi tvær sveitir í Íslandsmót golfklúbba, 15 ára og yngri, dagana 12-14 ágúst. Í tilkynningu frá Golfklúbbi Sauðárkróks kemur fram að stúlknasveit frá klúbbnum keppti á Þorláksvelli í Þorlákshöfn og drengjasveit á Selsvelli á Flúðum. 

Eftir spennandi viðureignir á föstudag og laugardag lék stúlknasveitin um bronsið á sunnudeginum, á móti b sveit Golfklúbbs Reykjavíkur. Anna Karen Hjartardóttir og Rebekka Barðdal Róbertsdóttir spiluðu fjórmenning og úr varð hörkuviðureign þar sem þær töpuðu að lokum á 16. holu 3/2. 

„Sama átti við um báða tvímenningsleikina sem Hildur Heba Einarsdóttir og Maríanna Ulriksen léku að þeir voru báðir mjög spennandi. Maríanna vann sinn leik á 17. holu 2/1 en Hildur tapaði sínum leik á 18. holu 2/0.Niðurstaðan var því 4. sætið sem er mjög góður árangur í ljósi þess að þessar stúlkur voru allar að spila í sínu fyrsta Íslandsmóti golfklúbba, meirihluti þeirra mjög ungar og yfirleitt mun yngri en þær stúlkur sem þær voru að spila við,“ segir á heimasíðu GSS.  

Eftir helgina höfnuðu drengirnir í GSS í 18. sæti eftir spennandi keppni. Á vef GSS segir að allir strákarnir, utan Hákons Inga, voru að fara í fyrsta skipti í Íslandsmót golfklúbba, þeir lögðu sig mikið fram og voru klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan, niðurstaðan 18. sæti.

„Þessir dagar voru mjög skemmtilegir og lærdómsríkir. Það var þéttur hópur fjölmargra foreldra sem fylgdi hópunum og gisti allur hópurinn saman á einum stað sem gerði bara þessa daga eftirminnilegri og skemmtilegri fyrir vikið,“ segir loks á síðunni. 

Stúlknasveitina skipuðu: Anna Karen Hjartardóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Maríanna Ulriksen, María Rut Gunnlaugsdóttir, Rebekka Barðdal Róbertsdóttir og Una Karen Guðmundsdóttir. Liðstjóri var Hjörtur Geirmundsson og Jón Þorsteinn þjálfari var á svæðinu og veitti góð ráð þegar á þurfti. Til leiks voru skráðar 8 sveitir frá 6 golfklúbbum. 

Drengjasveitina skipuðu: Arnar Freyr Guðmundsson, Bogi Sigurbjörnsson, Brynjar Már Guðmundsson, Hákon Ingi Rafnsson, Reynir Bjarkan Róbertsson og Tómas Bjarki Guðmundsson. Liðstjóri var Árný Lilja Árnadóttir. Til leiks voru skráðar 20 sveitir frá 14 golfklúbbum.

Nánari lýsingu á gengi sveitanna á Íslandsmótinu má lesa á heimasíðu GSS.