Göngum í skólann

Göngum í skólann 2019 hefst miðvikudaginn 4. september. Verður þinn skóli ekki örugglega með?

Opið er fyrir skráningu í Göngum í skólann 2019 og hefur skráning skóla farið vel af stað. 42 skólar hafa nú þegar skráð sig. Hægt verður að skrá sig til leiks meðan á verkefninu stendur eða fram að alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 2. október næstkomandi.

Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann þurfa að skrá sig til þátttöku hér. Ekkert kostar að skrá sig en tilgreina þarf nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á hvað viðkomandi skóli ætlar að gera í tilefni af Göngum í skólann mánuðinum.

Einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup og hjólabretti. Ávinningur er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

 

Ungmennasamband Skagafjarðar er Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.

Ungmannasamband Skagafjarðar er fyrirmyndarhérað ÍSÍ