Hjólað í vinnuna 2018

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2018 en keppnin hefst þann 2. maí nk. og stendur yfir til 22. maí. Liðsmenn og liðsstjórar geta því hafið skráningar á sér og sínum liðum núna á vefsíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is. Ýmislegt gagnlegt varðandi innskráningar og skráningarblöð má finna á vefsíðu Hjólað í vinnuna.