Hvatapeningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Félags- og tómstundanefnd Sveitarfélags Skagafjarðar hittust þann 26. nóvember, en fyrir nefndinni lágu tvær tillögur að hækkun hvatapeninga.

Fyrri tillagan var frá fulltrúa VG í nefndinni sem lagði til að:

  • Hvatapeningar hækki í 30.000 krónur.

Seinni tillagan var lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og var svohljóðandi:

  • Lagt er til að hvatapeningar til eflingar tómstunda- og íþróttastarfs barna og ungmenna í Sveitarfélaginu Skagafirði hækki úr 8.000 krónum í 25.000 krónur þann 1. janúar 2019.
  • Jafnframt mun Sveitarfélagið Skagafjörður hækka styrk sinn til aðildarfélaga UMSS um 1,2 milljónir króna á árinu 2019 gegn því að félögin hækki ekki æfingagjöld sín á árinu 2019.
  • Einnig er lagt til að hafnar verði viðræður við forsvarsmenn UMSS og félaga innan vébanda þess um breytt fyrirkomulag æfingagjalda og samspil hvatapeninga og styrkja.
  • Breytingarnar miði að því að samræma gjöld íþróttafélaganna sem og jafna möguleika og aðstæður barna til íþróttaiðkunar, ásamt því að efla faglegt starf íþróttafélaganna.

Seinni tillagan var samþykkt af félags- og tómstundanefnd.

Í kjölfar samþykktarinnar komu Klara Helgadóttir formaður UMSS og Thelma Knútsdóttir framkvæmdastjóri UMSS, til viðræðna við nefndina um útfærslu tillögunnar. Aðilar voru sammála um að vinna að framgangi hennar.

Þann 5. des. samþykkti síðan Byggðarráð Sveitarfélags Skagafjarðar tillögu félags- og tómstundanefndar um hækkun hvatapeninga á árinu 2019.