Íþrótta og Ólympíusamband Íslands

Í dag kemur út nýtt blað af ÍSÍ fréttum. Konur eru áberandi í blaðinu að þessu sinni, en í blaðinu má lesa viðtöl við íslenskar afreksíþróttakonur og Ólympíufara og afreksíþróttakonu sem gegna stjórnarstörfum í dag. Íslenskt afreksíþróttafólk sem stefnir á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 segir frá lífi sínu þessa dagana þegar að allt er lagt undir til þess að ná inn á leikana. Farið er yfir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ og stórafmæli hlaupsins í ár, ásamt þeim fræðsluverkefnum sem næst eru á dagskrá hjá ÍSÍ. Ýmislegt fleira er í blaðinu sem gaman er að skoða.

Rafrænu útgáfu blaðsins má sjá hér á Issuu-síðu ÍSÍ https://issuu.com/ithrotta-ogolympiusambandislands/docs/4