Íþróttamaður ársins

Þann 27. desember nk. mun Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og sveitarfélagið Skagafjörður halda okkar árlegu hátíðarsamkomu þar sem tilkynnt verður hver hlýtur kosningu íþróttamanns ársins, lið ársins og þjálfara ársins. Á þessari hátíðarsamkomu er öllum þeim sem eru tilnefnir af sínum íþróttafélögum boðaðir og þeim veitt viðurkenningar en einnig fá krakkarnir okkar sem hafa verið tilnefnd til Hvatningarverðlauna UMSS sínar viðurkenningar.

Í ár eru fimm íþróttamenn tilnefndir til Íþróttamanns ársins 2023. Það eru þau; Anna Karen Hjartardóttir kylfingur í Golfklúbbi Skagafjarðar, Daníel Gunnarsson hestamaður í Hestamannafélaginu Skagfirðing, Ísak Óli Traustason, frjálsíþróttamaður í UMF Tindastól, Murielle Tieran knattspyrnumaður í UMF Tindastól og Sigtryggur Arnar Björnsson körfuknattleiksmaður í UMF Tindastól.

Kosningu lýkur þann 21.des, en þeir sem kjósa íþróttamenn, lið og þjálfara eru fimm aðilar í stjórn UMSS, þrír fulltrúar frá félags- og tómstundarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar, ritstjóri fréttablaðsins Feykis og forstöðumaður frístunda og íþróttamála í Skagafirði.

Kosið er um þrjú efstu sætin, fyrsta (1.) sæti gefur 10 stig, annað sæti (2.) gefur 7 stig og þriðja (3.) sæti gefur 5 stig.

Til lið ársins eru tilnefnd þrjú lið, kvennasveit Golfklúbbs Skagafjarðar, meistaraflokkur kk. í körfuknattleik UMF Tindastóll og meistaraflokkur kvk. í knattspyrnu UMF Tindastól.

Til þjálfara ársins er val um 6 tilnefningar; Annika Líf Maríudóttir Noack UMF Tindastóll júdódeild, Atli Freyr Rafnsson Golfklúbbi Skagafjarðar,  Halldór Jón Sigurðsson UMF Tindastóll knattspyrnudeild, Pavel Ermolinski UMF Tindastóll körfuknattleiksdeild og Sigurður Arnar Björnsson UMF Tindastóll frjálsíþróttadeild.

Öllum aðildarfélögum og deildum innan UMSS er einnig heimilt að tilnefna einn pilt og eina stúlku sem hlýtur Hvatningarverðlaun UMSS. Tilnefningin skal veitt þeim íþróttamanni sem er áhugasamur, með góða ástundun, sýnir góða hegðun innan vallar sem utan, er góður félagi og telst vera góð fyrirmynd annarra unglinga.

Til Hvatningarverðlauna UMSS árið 2023 eru eftirtaldir aðilar tilnefndir frá:

Alexander Leó Sigurjónsson             Hestamannafélagið Skagfirðingur

Axel Arnarsson                                  Ungmennafélagið Tindastóll Körfuknattleiksdeild     

Álfrún Anja Jónsdóttir                      Ungmennafélagið Tindastóll Frjálsíþróttadeild

Dagbjört Sísí Einarsdóttir                 Golfklúbbur Skagafjarðar                             

Dagmar Helga Helgadóttir                Ungmennafélagið Neisti                               

Emma Katrín Helgadóttir                 Ungmennafélagið Tindastóll Badmintondeild         

Freyr Hugi Herbergsson                    Ungmennafélagið Tindastóll Júdódeild                    

Gígja Rós Bjarnadóttir                      Golfklúbbur Skagafjarðar                               

Halldór Stefánsson                            Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári og Ungmennafélagið Tindastóll Frjálsíþróttadeild       

Hjördís Halla Þórarinsdóttir             Hestamannafélagið Skagfirðingur                

Ivan Tsvetomirov Tsonev                 Ungmennafélagið Tindastóll Knattspyrnudeild

Ísak Hrafn Jóhannsson                      Ungmennafélagið Tindastóll Skíðadeild

Jóhanna María Grétarsd. Noack      Ungmennafélagið Tindastóll Júdódeild

Klara Sólveig Björgvinsdóttir            Ungmennafélagið Tindastóll Körfuknattleiksdeild

Rakel Sonja Ámundadóttir               Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári             

Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir   Ungmennafélagið Tindastóll Knattspyrnudeild

Tómas Bjarki Guðmundsson             Golfklúbbur Skagafjarðar                                        

Una Karen Guðmundsdóttir             Golfklúbbur Skagafjarðar  

Hátíðarsamkoman Íþróttamaður ársins 2023 mun fara fram þann 27.desember nk. í Ljósheimum kl. 20:00. 

Á hátíðarsamkomunni verður einnig veittir styrkir úr Afrekssjóði UMSS og í ár eru það átta aðilar sem hljóta styrk úr sjóðnum;

Andrea Maya Chirikadzi (frjálsar), Emma Katrín Helgadóttir (badminton), Eva Rún Dagsdóttir (körfubolti), Jóahnna María Grétarsdóttir Noack (júdó), Júlía Marín Helgadóttir (badminton), Ísak Óli Traustason (frjálsar), Pétur Rúnar Birgisson (körfubolti) og Sveinbjörn Óli Svavarsson (frjálsar).

Thelma Knútsdóttir
framkvæmdastjóri UMSS