Íþróttamaður ársins 2022

Pétur Rúnar Birgisson Íþróttamaður Skagafjarðar 2022 ásamt formanni UMSS, Gunnar Þór Gestson. Mynd. …
Pétur Rúnar Birgisson Íþróttamaður Skagafjarðar 2022 ásamt formanni UMSS, Gunnar Þór Gestson. Mynd. PF

Íþróttamaður Skagafjarðar árið 2022 fór fram þann 28. desember í Ljósheimum.

Gestir gengu inn í salinn undir spil og söng Eysteins Guðbrandssonar. Gunnar Þór Gestsson formaður setti bauð gesti velkomna og fékk með sér Þorvald Gröndal ritara stjórnar Ungmennasambandins  til að afhenda Hvatningarverðlaun UMSS .

Í ár var afhent Hvatningarverðlaun síðustu þriggja ára. En árið 2020, voru fimmtán íþróttaiðkendur á aldrinum 12 - 17 ára tilnefndir af aðildarfélögum UMSS það ár. Hvatningarverðlaunin eru veitt iðkendum sem eru áhugasamir, með góða ástundun, sýna góða hegðun innan vallar sem utan, eru góðir félagar og teljast vera góð fyrirmynd annara unglinga. 

Golfklúbbur Skagafjarðar - Tómas Bjarki Guðmundsson og Una Karen Guðmundsdóttir

Hestamannafélagið Skagfirðingur - Kristinn Örn Guðmundsson og Þórgunnur Þórarinsdóttir

Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári - Kristinn Örn Guðmundsson og Herdís Lilja Valdimarsdóttir

Ungmennafélagið Neisti - Sævar Snær Birgisson og Marta Birna Eiríksdóttir

Ungmennafélagið Tindastóll

        Júdódeild - Konráð Jónsson og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir

        Frjálsíþróttadeild – Stefanía Hermansdóttir

        Knattspyrnudeild – Einar Í. Sigurpálsson og Margrét Rún Stefánsdóttir

        Körfuknattleiksdeild – Örvar Freyr Harðarson og Marín Lind Ágústsdóttir

Þá voru veitt Hvatningarverðlaun UMSS 2021, en það ár voru 12 íþróttaiðkendur á aldrinum

12 - 17 ára voru tilnefndir af aðildarfélögum UMSS.

Golfklúbbur Skagafjarðar - Brynjar Már Guðmundsson og Dagbjört Sísí Einarsdóttir

Hestamannafélagið Skagfirðingur - Sveinn Jónsson og Ólöf Bára Birgisdóttir

Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári - Daníel Smári Sveinsson og Bryndís Erla Guðmundsdóttir

Ungmennafélagið Tindastóll

      Badmintondeild – Emma Katrín Helgadóttir

      Frjálsíþróttadeild – Amelía Ýr Samúelsdóttir

     Knattspyrnudeild – Bragi Skúlason og Magnea Petra Rúnarsdóttir

      Körfuknattleiksdeild – Bogi Sigurbjörnsson og Rebekka Hólm Halldórsdóttir

     

og að lokum voru veitt Hvatningarverðlaun 2022 og voru 19 ungir íþróttamenn tilnefndir;

Golfklúbbur Skagafjarðar – Markús Máni Gröndal og Dagbjört Sísí Einarsdóttir

Hestamannafélagið Skagfirðingur – Alexander Leó Sigurjónsson og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir

Ungmenna og Íþróttafélagið Smári - Halldór Stefánsson og Bríet Bergdís Stefánsdóttir

Ungmennafélagið Neisti - Björn Austdal Sólbergsson, Valgerður Rakel Rúnarsdóttir og Greta Berglind Jakobsdóttir

Ungmennafélgið Tindastóll

              Badmintondeild – Emma Katrín Helgadóttir

              Frjálsíþróttadeild – Hafþór Ingi Brynjólfsson og Efemía Ösp Rúnarsdóttir

              Júdódeild - Freyr Hugi Herbergsson   og Jo Althea Sandoval Mertola

              Knattspyrnudeild - Hilmar Örn Helgason og Hulda Þórey Halldórsdóttir

              Körfuknattleiksdeild – Einar Í. Sigurpálsson og Fanney María Stefánsdóttir

              Skíðadeild – Lára Sigurðardóttir

Þá var komið að þvi´að veita viðurkenningar til aðila sem stunda eða þjálfa hjá aðildarfélögum UMSS fyrir landsliðsval/þátttöku hjá sérsamböndum ÍSÍ árið 2022.

  • Alex Arnarson Körfuknattleikssamband Íslands
  • Baldur Þór Ragnarsson landliðsþjálfari Körfuknattleikssamband Íslands
  • Eyrún Ýr Pálsdóttir Landssamband Hestamannafélaga
  • Friðrik Hrafn Jóhannsson landsliðsþjálfari Körfuknattleikssamband Íslands
  • Ísak Óli Traustason Frjálsíþróttasamband Íslands
  • Helgi Jóhannesson landsliðsþjálfari Badmintonsamband Íslands
  • Orri Már Svavarsson Körfuknattleikssamband Íslands
  • Sigtryggur Arnar Björnsson Körfuknattleikssamband Íslands
  • Sigurður Arnar Björnsson landliðsþjálfari Frjálsíþróttasamband Íslands
  • Sigurður Gunnar Þorsteinsson Körfuknattleikssamband Íslands
  • Stefán Jón Ólafsson Skíðasamband Íslands

Þá var komið að því að veita styrk úr Afreksmannasjóði UMSS, átta aðilar sóttu um í ár og fengu þau öll úthlutað úr sjóðnum samkvæmt ákvörðun stjórnar hans. Í stjórn sjóðsins sitja Gunnar Þór Gestsson, Guðrún Helga Tryggvadóttir og Ómar Bragi Stefánsson.

  • Andrea Maya Chirikadzi
  • Axel Arnarson
  • Björk Ingólfsdóttir
  • Ísak Óli Traustason
  • Margrét Rún Stefánsdóttir
  • Orri Már Svavarsson
  • Stefanía Hermansdóttir
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir

Formaður aðalstjórnar Ungmennafélags Tindastóls, Guðlaugur Skúlason tilkynnti að Pétur Rúnar Birgisson hafði verið valin íþróttamaður Tindastóls árið 2022. Tekið var stutt kaffihlé, þar sem Eysteinn tók upp þráðinn frá því að athöfnin hófst og söng fyrir okkur nokkur jólalög.  Eftir hlé var komið að því að tilkynna val á liði ársins.

Þrjú lið voru tilnefnd; Karlasveit Golfklúbbs Skagafjarðar, Meistaraflokkur kvenna knattspyrnudeild Tindastóls og Meistaraflokkur karla körfuknattleiksdeildar Tindastóls.  Titill hlaut Meistaraflokkur karla körfuknattleiksdeildar Tindastóls með 84 stig. Meistarafl.kvk. í knattspyrnu hlaut 67 stig og Karlasveit GSS hlaut 47 stig.

Sjö þjálfarar (teymi) voru tilnefnd í ár, og hlaut þríeykið Baldur Þór Ragnarson, Helgi Freyr Margeirsson og Svavar Atli Birgisson titill í ár en þeir þjálfuðu meistaraflokk karla í körfuknattleik sem lenti í 2. sæti í einni af bestu úrslitar rimmu sem átti sér stað í sl. vor. Fengu þeir alls 54 stig, í 2. sæti varð Halldór "Donni" Jón Sigurðsson með 43 stig og 3. sæti varð Jóhanna Heiða Friðriksdóttir með 39. stig.

Þá var komið að Íþróttamanni Skagafjarðar 2022. Tilnefndir voru 5 einstaklingar, Anna Karen Hjartardóttir kylfingur, Guðmar Freyr Magnússon hestamaður, Ísak Óli Traustason frjálsíþróttamaður, Jónas Aron Ólafsson knattspyrnumaður og Pétur Rúnar Birgisson körfuknattleiksmaður.

Íþróttmaður Skagafjarðar 2022 er Pétur Rúnar Birgisson, en hann hlaut 72 stig.

Í 2. sæti varð Ísak Óli Traustason með 56 stig og í 3. sæti Anna Karen Hjartardóttir með 37 stig.