Íþróttasjóður - Opnað hefur verið fyrir umsóknir

Vakin er athygli á því að Rannís hefur opnað fyrir umsóknir í íþróttasjóð vegna verkefna fyrir árið 2024. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna, sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að inngildingu í íþróttum.
  • Íþróttarannsókna.
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Umsóknarfrestur er til kl. 15.00 mánudaginn 2. október 2023.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Sækja skal um á þessari slóð.

https://www.rannis.is/sjodir/aesku-ithrotta/ithrottasjodur/

Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum. Ekki er hægt að sækja um lægri styrki en 250 þúsund.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfang ithrottasjodur@rannis.is eða í GSM síma 699 2522