Íþróttir og ofbeldi ráðstefna 30. janúar 2019 í tengslum við Reykjavik International Games.

Í tengslum við Reykjavik International Games 2019 stóðu Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Reykjavíkurborg, Ungmennafélag Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík fyrir ráðstefnu um íþróttir og ofbeldi.

Hér má finna upptökur frá ráðstefnunni.

Einnig er hægt að horfa á allar upptökurnar  á Youtube rás RIG.

Á meðal fyrirlesara eru þekktir erlendir og innlendir einstaklingar:

  • Lilja D. Alfreðsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra
  • Hafdís I. Helgudóttir Hinriksdóttir, félagsráðgjafi MA og meðferðaraðili hjá Fyrsta skrefinu. Hún hefur sérhæft sig í áfallafræðum, ofbeldi innan íþrótta og starfar við áfallameðferð.
  • Sandra Kirby, Prófesor Emerita í Háskólanum í Winnipeg, Kanada. Phd. í Sálfræði. Fyrrverandi Ólympíufari fyrir Kanada í róðri. Stofnandi WomenSport International Task Force on Sexual Harrasment and Abuse. Fyrrverandi meðlimur í aðgerðarhóp UNICEF sem rannsakaði og veitti ráðgjöf til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum í íþróttum. Er í ráðgjafanefnd fyrir Out in the Fields, rannsókn á fordómum gagnvart hinsegin fólki í heimi íþróttanna.
  • Dr. Mike Hartill, Reader frá Háskólanum Edge Hill, Englandi. Hefur haldið fyrirlestra um barnavernd í íþróttum síðan árið 2002. Hann meðstýrir verkefninu Voice: Voices for truth and dignity, verkefni sem berst gegn kynferðislegu ofbeldi í Evrópu í gegnum raddir þolenda og aðstandenda. Skrifaði Sexual Abuse in Youth Sport: A sociocultural analysis og ritstýrði Safeguarding, Child Protection and Abuse in Sport ásamt Melanie Lang. Er ráðgjafi fyrir sjálfstæða rannsókn ensku knattspyrnusamtakanna (e. English Football Association) um kynferðislega misnotkum barna í knattspyrnu.
  • Karen Leach, fyrrverandi sundkona frá Írlandi. Þolandi kynferðisofbeldi frá aldrinum 10 – 17 ára frá hendi þjálfara síns. Er ein af röddunum í verkefninu Voice: Voices for truth and dignity, verkefni sem berst gegn kynferðislegu ofbeldi í Evrópu í gegnum raddir þolenda og aðstandenda.
  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, kennari á Íþróttafræðisviði við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur hjá Rannsóknum og greining ehf.
  • Dr. Colin Harris, fyrrverandi atvinnumaður hjá Chelsea.
  • Salvör Nordal, Doktor í heimspeki frá University of Calgary í Kanada 2014. Skipaður umboðsmaður barna árið 2017.
  • Þorbjörg I. Jónsdóttir, útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1993. Þorbjörg Inga hefur einnig hlotið diploma í alþjóðarétti frá Háskólanum í Helsinki og mannúðarrétti frá alþjóðaráði Rauða krossins og lauk námi í viðskipta- og rekstarfræði hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands árið 2000.
    Þorbjörg Inga er hæstaréttarlögmaður á eigin lögmannsstofu, Lagaþingi, og hefur starfað við lögmennsku frá árinu 1996 og verið stundakennari í kröfurétti o.fl. við Háskólann á Bifröst frá 2007.   Þorbjörg Inga var formaður Kvenréttindafélags Íslands um árabil og hefur verið í fyrirsvari fyrir Kvennaráðgjöfina frá 1997, sem er endurgjaldslaus lögfræði- og félagsráðgjöf fyrir konur.
  • Arnar Sveinn Geirsson, er 27 ára gamall og hefur lifað og hrærst í íþróttum allt sitt líf og spilaði bæði handknattleik og knattspyrnu til 17 ára aldurs en þá valdi hann það síðarnefnda.  Síðustu tvö ár hefur hann orðið Íslandsmeistari með uppeldisfélagi sínu Val. Hann steig nýlega fram og greindi frá því að hafa unnið illa eða alls ekki úr móðurmissi sem hann varð fyrir 11 ára gamall. Hann áttaði sig ekki á því fyrr en nýlega hvernig klefamenningin og stemningin almennt í íþróttaheiminum er og að þessi stemning væri ekki til þess fallin að hjálpa einstaklingum sem lenda í áföllum eða erfiðleikum.
  • Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.
  • Håvard Ovregård, er ráðgjafi norska Íþrótta- og Ólympíusambandinu og íþróttasambandi fatlaðra í Noregi. Hann stýrir vinnu sambandanna gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Tók þátt í að búa til norskar leiðbeiningar gegn kynferðislegri áreitni (árið 2010) og bjó nýlega til leiðbeiningar til þess að meðhöndla mál af þessum toga. Er meðlimur í Pool of European Experts on Sexual Violence in Sport.