Krakkafrjálsar

Í sumar og haust fer FRÍ - Frjálsíþróttasamband Íslands í ferðalag og heldur æfingar á víð og dreifð um landið. Ferðalagið er hafið og hafa þegar verið æfingar í Stykkishólmi, á Blönduósi, á Skagaströnd og á Borg.
 
Krakkafrjálsar verða í Varmahlíð föstudaginn 3. júlí kl. 13:00–14:00.
Æfingin er opin öllum börnum á aldrinum 5–12 ára og þátttakendur fá að spreyta sig í fjölbreyttum greinum frjálsíþrótta.
Frábært tækifæri til að prófa, hreyfa sig og hafa gaman saman.
Allir velkomnir!