Landsmót Hestamanna 2026

Landsmót hestamanna verður á Hólum í Hjaltadal næsta sumar og er miðasala á mótið hafin á vef mótsins, landsmot.is.

Sérstakt forsölutilboð er í gangi til áramóta. Í færslu á Facebook-síðu Landsmóts í gær var sagt frá því að framkvæmdanefnd Landsmóts hestamanna á Hólum 2026 kom saman til fundar á Hólum í vikunni. Erindið var að hitta fulltrúa Háskólans á Hólum og fulltrúa mannvirkjanefndar LH og skoða þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið á væntanlegu mótssvæði í sumar.

Á heimasíðu Landsmóts eru upplýsingar fyrir þá sem hafa áhuga á að leigja frá sér herbergi/hús/hýsi eða eitthvað slíkt til landsmótsgesta, en slíkum erindum er svarað í netfanginu gisting@landsmot.is. Þá er þeim sem hafa áhuga á að starfa sem sjálfboðaliðar á mótinu bent á að senda tölvupóst á netfangið landsmot@landsmot.is

Sjá frétt á Feykir.is