Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og hreyfingu og fólki á besta aldri að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt!
Í boði eru eftirfarandi 14 íþróttagreinar fyrir þá þátttakendur sem verða 50 ára á árinu og eldri; badminton – boccía – bridds – frjálsar íþróttir – golf – pílukast – pokavarp – pútt – pönnukökubakstur – ringo – skotfimi – stígvélakast – sund.
Eftirfarandi greinar eru í boði fyrir alla aldurshópa; blak – bogfimi – frisbígolf - götuhlaup – pokavarp – petanque –– minigolf – ringó – hlaupaskotfimi –led Badminton – sundleikfimi.
Þátttökugjald er einungis 5.500 kr.
Þegar búið er að ganga frá skráningu á þátttökugjaldi verður tölvupóstur sendur á netfang þitt svo til samstundis. Í skeytinu er kvittun fyrir greiðslu á mótið og hlekkur til að ganga frá skráningu í greinar mótsins. Nóg er að smella á hlekkinn og þá ferðu á greinasíðuna.
Við skráningu í greinar er hægt að búa til lið, þar geturðu bætt þér í lið og ýmislegt fleira sem þarf að klára áður en mótsdagur rennur upp.
Góðar stundir við keppni og leik á 50+ á Ólafsfirði og Siglufirði í lok júní.