Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. En eftir rúma viku hittast þátttakendur á Landsmóti UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit, á Akureyri og Dalvík til að keppa, hlæja, hreyfa sig, hitta gamla kunningja og eignast nýja vini. Þetta er upplifun og keppni þar sem hægt verður að keppa í ringó og boccía, pílukast, sundi, hjólreiðum, golfi og mörgu fleiru. Greinarnar eru fjölmargar og stemningin verður góð.
Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
Mótsgjald
Þátttökugjald er 6.000 krónur og fyrir það er hægt að taka þátt í öllum greinum mótsins. Þegar greiðslu á þátttökugjaldi er lokið er hægt að skrá sig í einstakar keppnisgreinar. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega til þess að taka þátt í opnum greinum, bara mæta og skemmta sér með fjölskyldu og vinum!
Skráning fer fram HÉR og er opin til miðnættis 19. júní. Hér má sjá ítarlega dagskrá.