Lífshlaupið 2026

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. 

Forsaga Lífshlaupsins er að árið 2005 skipaði þáverandi menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu.
 Starfshópurinn setti fram hugmyndir um mótun íþróttastefnu Íslands í skýrslunni, Íþróttavæðum Ísland, aukin þátttaka, breyttur lífsstíll.

Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta.

Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
Hreystihópar 60+ í þrjár vikur í febrúar

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 60+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega. 

Vef/Skráningarsíða Lífshlaupsins