Ungmennasamband Skagafjarðar og Sveitarfélagið Skagafjörður óska efir sjálfboðaliðum vegna plokkunar í fjörum Borgar- og Garðssands þann 25. maí nk.

Borgarsandur
mynd: www.feykir.is
Borgarsandur
mynd: www.feykir.is
Stefna á þátttakendum í fimm fjörur á Norðurlandi vestra, þann 25. maí næstkomandi. Tvær fjörur eru staðsettar við Sauðárkrók, ein við Hvammstanga og tvær úti á Skaga. Þátttakendur plokksins mæta í fjörurnar og byrjað verður á því kl. 10:00 að safna saman rusli. Í framhaldinu verða reistar vörður undir leiðsögn listamanna frá Listaháskóla Íslands, Nes listamiðstöð á Skagaströnd og Textíllistamiðstöðinni á Blönduósi. Reiknað er með því að dagskránni verði lokið í síðasta lagi kl. 16:00. 

Markmiðið með verkefninu er að auka þekkingu almennings á umhverfismálum og mengun hafsins. Þema smiðjanna er „Varða“ en talið er að maðurinn hafi reist sér vörður allt frá steinöld. Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi stýrir verkefninu í samstarfi við Biopol á Skagaströnd en tveir vísindamenn hjá Biopol eru búnir að þræða norðurströndina til að skoða fjörur þar sem rusl berst að landi. 

Í verkefninu felst að vísindin og listirnar leggja saman til að skapa vettvang til að vekja athygli á þeirri ógn sem mengun hafsins er lífi á jörðinni. Þátttakendur á hverjum stað ákveða undir leiðsögn þess listafólks sem leiðir þá vinnu hvernig þeir skilgreina sína vörðu og með hvaða hætti hún varpar ljósi á eða leggur til lausn/lausnir á mengun hafsins. Styrkur fékkst til verkefnsins bæði frá Uppbyggingarsjóði og Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Lee Ann Maginnis stýrir verkefninu fyrir Textílmiðstöð Íslands. Hún vil hvetja íbúa á Norðurlandi vestra til að taka þátt og mæta í fjörurnar laugardaginn nk.

Verkefnið verður í framhaldinu kynnt sem hluti af opnun Norðurstrandarleiðarinnar þann 8. júní næstkomandi á „Degi hafsins“. Hér má nálgast nánari upplýsingar um Norðurstrandarleiðina.