Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar - keppandi frá Skíðadeild Tindastóls

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (The European Youth Olympic Festival, EYOF) er íþróttahátíð fyrir evrópsk ungmenni á aldrinum 14-18 ára. Hátíðin er haldin á oddatöluári bæði vetrar og sumarhátíð. Íþróttagreinar eru tíu á hvorri hátíð fyrir sig. Hátíðin hefur verið mikilvæg fyrir ungt íþróttafólk álfunnar í gegnum tíðina. Margir af fyrri keppendum á hátíðinni hafa síðar náð alla leið á efsta getustigi í sínum greinum.

Skíðadeild Tindastóls á einn keppanda á mótinu - Stefán Jón Ólafsson, son Ólafs Björns Stefánssonar og Helgu Daníelsdóttur. Til hamingju með þennan flotta árangur.

Hér er hægt að nálgast dagskrá mótins og horfa á keppnina

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í ár hefst þann 20. mars nk., í Vuokatti í Finnlandi.  ÍSÍ verður með hóp keppenda á aldrinum 15 - 18 ára á hátíðinni sem stendur yfir til 25. mars nk. Átta íslenskir keppendur keppa í alpagreinum, fjórir í gönguskíðagreinum, fjórir í snjóbrettagreinum og einn keppandi í listskautum. Alls verður keppt í níu íþróttagreinum á hátíðinni.

Fyrsta hátíðin var haldin í Brussel 1991 og hét þá Ólympíudagar æskunnar. ÍSÍ hefur jafnan reynt að senda fríðan hóp ungs fólks til hátíðarinnar og í Brussel voru þátttakendur 27 úr fjórum íþróttagreinum. Fyrsta árið var eingöngu sumarhátíð en strax 1993 var einnig komið á vetrarhátíð og hefur svo verið síðan þá.

„Fair Play“ eða háttvísi er eitt af megin einkunnarorðum hátíðarinnar. Mikið er lagt upp úr því að þetta sé skemmtun og að þátttakendur kynnist ungu fólki frá öðrum löndum Evrópu. Ekki er lagt upp með að áherslan sé sú sama og á Ólympíuleikum þeirra fullorðnu eða á heimsmeistarakeppnum.

Vefsíða EOC um EYOF