Opið fyrir skráningar á Unglingalandsmót 2023 á Sauðárkróki

Hvað er Unglingalandsmót?

Unglingalandsmót UMFÍ hafa farið fram reglulega frá 1992 og árlega frá 2002 um verslunarmannahelgina. Mótið er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Hvenær er mótið 2023?

Mótið 2023 fer fram  fram um verslunarmannahelgina 3. - 6. ágúst á Sauðárkróki. Skráningargjald er 8.900 kr. Öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta skráð sig til leiks. Ekki er skilyrði að vera skráð/ur í ungmenna- eða íþróttafélag. Opnað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 4. júlí 2023.

Skrá mig á Unglingalandsmót

Þátttökugjald er 8.900kr. Innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum, viðburðum, sundlaugum í Skagafirði og tjaldsvæði mótsins. Athygli er vakin á því að einnig er hægt að skrá sig í gegnum app Sportabler.

Skrá mig til leiks!