Opið hestaíþróttamót (UMSS) verður haldið á Sauðárkróki 5.-6. maí. Keppt verður í hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt, snúa við, svo frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt er eins) ef næg þátttaka næst.
-  Fjórgangur V1, tölt T1 og T2 og fimmgangur F1- fullorðnir - einn inná í einu.
-  Fjórgangur V2,  tölt T3, fimmgangur F2 - yngra flokkar - 2-3 inná í einu.
Við skráningu þarf að gefa upp: 
 1. nafn og kennitölu knapa 
 2. nafn og fæðingarnúmer hests (IS) 
 3. keppnisgrein 
 4. uppá hvaða hönd keppandinn vill riða (ekki fullorðnir)
Senda skráningu á fritz@mi.is . Skráningu lykur fimmtudaginn 3. maí kl 21.00.
Skráningargjald er 4.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 - 26 - 1997 Kt: 670269-0359 MUNA- skýring: nafn á hesti.
Hestaíþróttaráð Ungmannasamband Skagafjarðar UMSS
 Magnús B. Magnússon, Sigurður Rúnar Pálsson, Friðgeir Jóhannsson, Guðmundur Þ. Elíasson, Þórarinn Eymundsson og Elisabeth Jansen
Næstu mót eru.
OPIÐ Forkeppnismót - sunnudagur 3. júní - bara forkeppni
 Greinar: 
 1.       5 gangur (F1) 
 2.       Tölt (T1)
 3.       gæðingaskeið 
 4.       skeiðkappreiðar, 150m. og 250m.  
 5.       100 m skeið
OPIÐ Kvöldmót - föstudagur 8. júní - bara forkeppni
 Greinar: 
 1.       4 gangur (V1) 
 2.       Slakataumatölt (T2) 
 3.       skeiðkappreiðar 150m. og 250m. 
 4.       100 m skeið
Mótin eru öll (3) viðurkennt sem punktamót fyrir Íslandsmót og T1 á LM.