Starf sjálfboðaliða í nýjasta tölublaði Skinfaxa

Nýjasta tölublað Skinfaxa, tímarits UMFÍ, var að koma úr prentsmiðjunni og er á leiðinni til áskrifenda. Blaðið er stútfullt af brakandi fersku efni úr ungmennafélagshreyfingunni.

Starf sjálfboðaliða í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni er ómetanlegt.

Í þessu blaði er kastljósinu beint að sjálfboðaliðum, fólk spurt að því hvernig sé að vera sjálfboðaliði í íþróttahreyfingunni og á viðburðum UMFÍ, hver tækifærin eru, hverjar áskoranir séu og pælt í því hvernig hægt sé að gera sjálfboðaliðum hærra undir höfði.

Á meðal efnis í blaðinu:

  • Viðtal við Hjörleif Kristin Hjörleifsson, formann Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH). Hjörleifur hefur starfað sem sjálfboðaliði í íþróttahreyfingunni um árabil og undirbýr nú ásamt fleirum Landsmót UMFÍ 50+ sem verður í Stykkishólmi í lok júní.
  • Viktoría er formaður Íþróttafélagsins Ívars. Hún segir ljúft og skylt að gefa til samfélagsins.
  • Starf sjálfboðaliða er gott fyrir ferilskránna, segir Embla Líf, formaður Ungmennaráðs UMFÍ.
  • „Þar sem ég er hvort eð er að drepast….“ Sigurlaug Þór Hermannsdóttir segir frá áhugaverðu bréfi sem bóndi vildi að hún varðveitti.
  • Sjálfboðaliðar í Noregi og Gullna vafflan.
  • Sjálfboðaliðar og forvarnir.
  • Sara í Ungmennaráði UMFÍ er ánægð með öll tækifærin.
  • Gunnar Helgason: Huga þarf að ábyrgð sjálfboðaliða.
  • Formaður UMFÍ: Hjálpumst að svo allir geti tekið þátt í íþróttastarfi.
  • Ungmennafélagið Trausti sameinar fólk með pílukasti.
  • Ný þjónustumiðstöð UMFÍ opnar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
  • Í blaðinu er margt, margt fleira…

Skinfaxi er málgang UMFÍ og hefur það komið út óslitið frá árinu 1909.

Áskrifendur og sambandsaðilar UMFÍ eru að fá blaðið í hendur um þessar mundir. Einnig er hægt að nálgast eintak í íþróttamiðstöðvum, á sundstöðum, bensínstöðum og hjá sambandsaðilum um allt land á næstu dögum. 

Þú getur lesið nýjasta tölublað Skinfaxa á www.umfi.is: 

Skinfaxi 1. tbl. 2023

Þú getur lesið eldri tölublöð Skinfaxa allt aftur til fyrsta tölublaðs á Netinu: Eldri tölublöð Skinfaxa.

Þú getur líka smellt á myndina hér að neðan og náð í nýja blaðið á PDF-formi.