Styrkir vegna náms í lýðháskóla

UMFÍ og Højskolernes Hus í Kaupmannahöfn gerðu með sér samstarfssamning um verkefni tengt námsdvöl íslenskra ungmenna í dönskum lýðháskólum. Højskolernes Hus heldur utan um alla lýðháskóla í Danmörku og því er námsframboðið fjölbreytt.

Markmið með styrkveitingunni er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn. Einnig tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið.

UMFÍ veitir annarsvegar ferðastyrk og hinsvegar dvalarstyrk. Heildarupphæð ferðastyrks fer eftir fjölda umsókna. Dvalarstyrkur fer jafnframt eftir fjölda umsókna og dvalartíma hvers og eins, þ.e. styrkt er um ákveðna upphæð fyrir hverja viku.

Styrkirnir eru greiddir út eftir á, þ.e. í júlí 2019. Til þess að uppfylla kröfur um styrkinn þurfa umsækjendur að skila tveimur verkefnum. 

Umsóknarfrestur er til 1. september 2018 fyrir haustönn og heilt ár. Umsóknarfrestur fyrir vorönn er 10. janúar 2019. 

Opnað verður fyrir umsóknir í byrjun ágúst 2018.

Sjá nánar á síðu UMFÍ. https://www.umfi.is/um-umfi/umsoknir-og-sjodir/