Taktu þátt í Lífshlaupinu

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. 

Markmið þess er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Lífshlaupið er góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig og skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sín á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur. Fullorðnir að lámarki 30 mínútur á dag og börn og unglingar að lámarki 60 mínútur á dag. Frá upphafi hafa um 200 þúsund einstaklingar tekið þátt í Lífshlaupinu en árlega taka á bilinu 15-20 þúsund starfsmenn vinnustaða og nemendur í grunn- og framhaldsskólum þátt.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 6. – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur).
  • framhaldsskólakeppni frá 6. – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur).
  • grunnskólakeppni frá 6. – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur).
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið. 

Þátttakendur þurfa að skrá sig til keppni á heimasíðu Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is og fara svo að skrá hreyfinguna. Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is, eða í síma: 514-4000.

Gangi ykkur vel í Lífshlaupinu 2019!