Tindastóll - Körfuknattleiksdeild

Viðar og Ingólfur Jón ásamt hluta iðkenda í 10. flokki kvenna sem voru formanninum til stuðnings við…
Viðar og Ingólfur Jón ásamt hluta iðkenda í 10. flokki kvenna sem voru formanninum til stuðnings við móttöku viðurkenningarinnar. Mynd: Hjalti Árnason

Körfuknattleiksdeild Tindastóls fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ fimmtudaginn 8. nóvember síðastliðinn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Viðurkenningin var afhent í hálfleik í æsispennandi leik Tindastóls og Grindavíkur í úrvalsdeild karla. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni deildarinnar Ingólfi Jóni Geirssyni viðurkenninguna.

Frétt ÍSÍ