UMF Tindastóll - Frjálsíþróttadeild

Ísak Óli, Þóranna Ósk og Jóhann Björn.
Ísak Óli, Þóranna Ósk og Jóhann Björn.

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur birt landsliðshóp sinn fyrir 2018 en í honum eru þrír Skagfirðingar, Ísak Óli Traustason í grindahlaupi og fjölþraut, Jóhann Björn Sigurbjörnsson í spretthlaupum og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir í hástökki.

Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að Þóranna Ósk og Ísak Óli hafi staðið sig frábærlega á mótum vetrarins innanlands og utan, og endurkoma Jóhanns Björns á hlaupabrautina eftir nokkurt hlé, á MÍ og í Bikarkeppni nú nýlega, var glæsileg.

Óhætt er að segja það góðan árangur hjá frjálsíþróttadeild Tindastól að eiga þrjá fulltrúa í landsliðshópnum.

Heimild: Feykir.is