UMF Tindastóll - Körfuknattleiksdeild

1. leikur í úrslitarimu Tindastóls og KR hefst í kvöld kl 19.15
Algjör skyldumæting er á leikinn og ætlar enginn að missa af þessari veislu.

Forseti Íslands Hr. Guðni Th Jóhannesson er búinn að hafa samband við okkur og ætlar sko ekki að missa af þessu og mun mæta á leikinn.

Einnig hefur það heyrst að Skagafjarðar sonurinn Auðunn Blöndal verði líklega á heimaslóðum á morgun.
Forsala verður á leikinn frá 16.30 og hvetjum við fólk að nýta sér það.
Óli og félagar verða með gæðaborgarana og ætti enginn að láta þá framhjá sér fara.

Stuðningsmannabolir eru til sölu í Tánni og svo í íþróttahúsinu frá 17:00 fyrir leik.

Barna- og fullorðinsstærðir

ÁFRAM TINDASTÓLL!!

ÁFRAM UMSS!!!