UMF Tindastóll - Skíðadeild

María Finnbogadóttir. Mynd úr einkasafni.
María Finnbogadóttir. Mynd úr einkasafni.

María Finnbogadóttir, frá skíðadeild Tindastóls er þátttakandi á HM unglinga í Alpagreinum sem fram fer þessa dagana í Davos í Sviss. Á þriðjudaginn  keppti hún í stórsvigi kvenna þar sem hún stóð sig með ágætum og hafnaði í 56. sæti af 102 keppendum. Í gær keppti María svo í svigi en þar átti hún það sameiginlegt með fjölda annarra þátttakenda að ljúka ekki fyrri ferð 

Alls keppa átta Íslendingar á mótinu og er hægt að nálgast fréttir af því og úrslit hér.