UMFÍ - Úthlutanir úr Fræðslu og Verkefnasjóði

Fræðslu og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar m.a með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. 

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Umsóknarfrestir eru tveir á ári, 1. apríl og 1. október.

Úthlutun fer fram sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert. 

Eftirtalin aðildarfélög, auk Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) hlutu styrk úr Fræðslu og Verkefnasjóði UMFÍ þann 17. október sl.

  • Golfklúbbur Sauðárkróks - fyrir þjálfaramenntun og útgáfu á afmælisriti GSS.
  • Tindastóll frjálsíþróttadeild - fyrir þjálfara- og dómaranámskeið.
  • Tindastóll körfuknattleiksdeild unglingaráð - Fyrir fyrirlestra og námskeið fyrir iðkendur og foreldra.
  • Frjálsíþróttaráð UMSS - Fyrir fyrirlestra fyrir iðkendur.
  • UMSS - fyrir Sögu UMSS 1910-2020 í myndum, skyndihjálpanámskeið og Málþing á Fræðsludegi UMSS 2019.