Velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.
Boðið verður upp á um 20 íþróttagreinar á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fer fram á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Mótið er haldið í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) og sveitarfélagið Múlaþing.
Heilmikil afþreying verður fyrir alla fjölskylduna alla helgina og tónleikar á kvöldin. Fjölbreytt dagskrá verður alla dagana og ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Opið er fyrir skráningu í greinar á mótið fram á sunnudagskvöldið 27. júlí næstkomandi.
Mótið hefst fimmtudaginn 31. júlí og lýkur því sunnudagskvöldið 3. ágúst.
Keppnisgreinar:
Borðtennis - fimleikar - frisbígolf - frjálsar íþróttir - glíma - golf - grasblak - grashandbolti - hestaíþróttir - hjólreiðar - knattspyrna - krakkahreysti - kökuskreytingar - körfubolti - motocross - pílukast - rafíþróttir - skák - stafsetning - sund og upplestur.
Eftir sunnudaginn verður mögulega hægt að bæta við í einhverjar greinar, en það verður háð því hversu mörg pláss eru í boði. Þess vegna verður ekki hægt að ganga að því vísu.
Unglingalandsmótið er tilvalinn vettvangur til að prófa nýjar greinar. Ef keppandi er ekki með liðsfélaga þá er hægt að skrá sig „án liðs“ og mótshaldari sér um að setja saman lið.
En hvernig breyta þátttakendur skráningu sinni?
Hér eru leiðbeiningar
Boðið verður líka upp á fjölda opinna greina fyrir alla aldurshópa, allskonar sem hægt er prófa og margt fleira. Þetta verður sannkallað fjölskyldufjör.
Fjöldi þátttakenda í nokkrum greinum hefur breyst á milli ára. Grasblak er ein þeirra greina en þar hefur orðið veruleg fjölgun bæði á þeim sem geta verið innan vallar og í liðum. Þar eru nú fjórir í hverju liði inni á vellinum í stað tveggja áður. Að sama skapi hefur verið bætt við nokkrum greinum í frjálsum íþróttum og keppnisflokkum í frisbígolfi
Á meðal annarra viðburða:
Pútt- og vippkeppni - fótboltafjör fyrir 9-10 ára - fimleikar fyrir öll - badminton - körfuboltapartý - sundlaugapartý - dans og diskó - frisbífjör fyrir fjölskylduna og tónleikar!
Upplýsingar og skráning
Tjaldsvæði mótsgesta
Tjaldsvæði fyrir mótsgesti opnar eftir hádegi fimmtudag 31. júlí. Ef þú og þínir vilja koma degi fyrr er hægt að kaupa sig inn á svæðið hjá rekstraraðilum tjaldsvæðisins. Bílum á að leggja utan tjaldsvæðis á meðan mótinu stendur.
Þátttökugjald á Unglingalandsmóti UMFÍ er 9.900 krónur fyrir hvern keppanda. Innifalið í verðinu er tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Aðeins þarf að greiða aukalega fyrir rafmagn sem er 5.000 krónur til 27. júlí en hækkar eftir það í 7.500.
Allir þátttakendur UMSS fá niðurgreitt mótsgjald um 4.000 kr. en þið þurfið að muna að velja Ungmennasamband Skagafjarðar sem ykkar samband.
Við hvetjum fólk til að ganga frá greiðslu fyrir aðgang að rafmagni sem fyrst.
Því miður er ekki mögulegt að skipta tjaldsvæði Unglingalandsmóts UMFÍ eftir sambandsaðilum. Tjaldsvæðið er engu að síður stórt og ætti að rúma alla.
Skrá og greiða fyrri rafmagn.
Tónlist og fjölskyldufjör
Eftir að hafa stundað íþróttir allan daginn er frábært tækifæri að taka fram dansskóna og skemmta sér á kvöldin með gömlum og nýjum vinum.
Allir tónleikar helgarinnar fara fram í Bragganum, sem er við tjaldsvæði mótsgesta. Á föstudagskvöldinu verður þó undantekning þegar þær Ína Berglind og Jóna Þyrí syngja við setningu mótsins á Vilhjálmsvelli kl. 20:00.
Tónleikadagskráin:
Fimmtudagur 31. júlí: DJ Hilmir Dagur Ólafsson og DJ Sigríður Svandís Hafþórsdóttir.
Föstudagur 1. ágúst: Ína Berglind Guðmundsdóttir og Jóna Þyrí Snæbjörnsdóttir syngja á mótssetningu.
Laugardagur 2. ágúst: DJ Ragga Hólm, Stebbi Jak og Hafþór og Júlí Heiðar og Dísa.
Sunnudagur 3. ágúst: Magni Ásgeirsson, DJ Ernir Daði og VÆB
