Unglingalandsmót UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ hafa verið haldin frá árinu 1992. Mótin hafa vaxið og sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar sem saman koma þúsundir barna og ungmenna ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Unglingalandsmótin hafa hvarvetna vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til mikillar fyrirmyndar með allri framkomu hvort sem er í keppni eða leik.

Unglingalandsmót UMFÍ er sannkölluð íþrótta- og fjölskylduhátið sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina.

Meiri upplýsingar er hægt að finna á www.ulm.is 

Opnað verður fyrir skráningar 1. júlí nk.

Það verða 22 keppnisgreinar í boði:

  • Boccia
  • Bogfimi
  • Dorgvieði
  • Fimleikalíf
  • Fótbolti
  • Frisbígolf
  • Frjálsar íþróttir
  • Glíma
  • Golf
  • Götuhjólreiðar
  • Hestaíþróttir
  • Kökuskreytingar
  • Körfubolti
  • Motocross
  • Ólympískar lyftingar
  • Skák
  • Skotfimi
  • Stafsetning
  • Strandblak
  • Strandhandbolti
  • Sund
  • Upplestur

Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) niðurgreiðir þátttökugjald fyrir keppendur UMSS á mótið.

UMSS hettupeysurnar sem slógu í gegn í fyrra eru til sölu og hægt er að koma til að panta og máta á skrifstofu UMSS á Víðigrund 5 alla virka daga, peysan er á 3.000 kr.

 UMSS hettupeysurUnglingalandsmót 2018