Unglingalandsmót UMFÍ 2022

Nú er farið að styttast í Unglingalandsmót UMFÍ sem verður um verslunarmannahelgina á Selfossi.

Mótið hefur ekki verið haldið síðastliðin tvö ár og því mikið gleðiefni að það geti loksins farið að rúlla af stað.

Opnað verður fyrir skráningu á Unglingalandsmót þriðjudaginn 5. júlí nk.

https://www.sportabler.com/shop/umfi/unglingalandsmot

 

 

Á mótinu er boðið upp á keppni í 23 íþróttagreinum fyrir 11-18 ára þátttakendur frá föstudeginum 29.júlí til sunnudagsins 31. júlí.

Greinarnar sem eru í boði:

  • Biathlon,
  • bogfimi
  • borðtennis
  • fimleikalíf
  • frisbígolf
  • frjálsar íþróttir
  • glíma
  • golf
  • götuhjólreiðar
  • hestaíþróttir
  • knattspyrna
  • kökuskreytingar
  • körfubolti
  • mótokross
  • pílukast
  • rafíþróttir
  • skák
  • stafsetning
  • strandblak
  • strandhandbolti
  • sund
  • taekwondo
  • upplestur

 

 

Dagskrá mótsins liggur fyrir og er hún bæði geysispennandi og stórskemmtileg. Yfir daginn verður keppt í fjölda greina en boðið upp á tónleika fyrir alla fjölskylduna á kvöldin.

Unglingalandsmót UMFÍ er fjölskylduhátíð fyrir börn og ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Skráningargjald er 8.500 krónur. Allir þátttakendur á þeim aldri eru velkomnir á mótið og er ekki skilyrði að vera í íþróttafélagi. Gjaldið greiðir fyrir tjaldsvæðið fyrir alla fjölskylduna (fyrir utan rafmagn) og aðgang að tónleikum með landsþekktu tónlistarfólki öll kvöld, aðgangur er að leiksvæði fyrir öll yngri systkini þátttakenda og gleði fyrir foreldra og önnur fylgimenni.

Þú getur séð dagskránna hér fyrir neðan.

Dagskránna og ítarlegri upplýsingar um keppnisgreinar, afþreyingu og tónlistaratriðin er að finna á www.ulm.is

Unglingalandsmót UMFÍ er líka á Facebook